Fréttablaðið - 22.10.2008, Blaðsíða 24
22. OKTÓBER 2008 MIÐVIKUDAGUR
Maður kemst aðeins nær
Frelsaranum og frið jólanna í
náttúruperlunni Viðey þar sem
veisluborðin svigna undan
íslenskum jólakrásum og and-
rúmið smitar alla af dýrðlegu
hátíðaskapi.
„Ásamt þjóðlegu, klassísku jóla-
hlaðborði leggjum við áherslu á
að gestir geti notið rólegrar kvöld-
stundar undir huggulegum und-
irleik í einstakri náttúruumgjörð
og hátíðlegu húsi þar sem blikar
á jólaljós höfuðborgarinnar hand-
an merlandi hafaldna Sundanna,“
segir Jón Örn Jóhannesson mat-
reiðslumeistari í Viðeyjarstofu,
þar sem byrjað verður að veita af
girnilegu jólahlaðborði laugardag-
inn 15. nóvember.
„Við tvísetjum ekki í húsið því
við viljum að fólk eigi kvöldið út af
fyrir sig í jólalegu andrúmi Viðeyj-
arstofu, á milli fyrstu og síðustu
siglingar milli hafna. Þannig lendir
enginn í kapphlaupi við klukkuna
að komast yfir sem mest á afmörk-
uðum tíma, enda eðlilegt að gefa
sér minnst tvo tíma til að njóta
lystisemda hússins til fulls og hafa
magamál fyrir sem flestar af ljúf-
fengum, heimagerðum jólakrás-
um,“ segir Jón Örn sem ásamt mat-
reiðslumeisturum sínum lagar allt
frá grunni sem á jólaborðið fer.
„Við matbúum allt sjálf; öll
okkar salöt, síldarrétti, rauðkál og
sultur. Ábætisréttir eru heimatil-
búnir, gamaldags Ris a la mande,
sérrítriffle og fleira. Þá eldreykj-
um við íslenskan silung, gröfum
gæs, heimagerum lifrarkæfu og
íslenskar hreindýramedalíur, svo
fátt sé upptalið,“ segir Jón Örn
sem nýtur þess að taka á móti
gestum í Viðeyjarstofu þegar nær
dregur jólum.
„Viðey er einstaklega jólaleg og
kyrrðin algjör og himnesk. Húsið
skreytum við hátt og lágt mjög há-
tíðlega og hvetjum gesti til að taka
sér fárra mínútna göngu að friðar-
súlu Johns Lennon, sem er geysi-
lega skemmtilegt innlegg í þá upp-
lifun sem Viðey er.“
Jólahlaðborðið í Viðey er opið
föstudags- og laugardagskvöld,
en auk þess fyrir fyrirtæki og
hópa öll virk kvöld vikunnar.
Fyrsta kvöldsigling út er klukk-
an 19 og síðasti bátur fer í land á
miðnætti. - þlg
Heillandi Viðeyjarstofa í jólaljósum í sveitakyrrð innan höfuðborgarinnar, umlukin dimmbláu hafi og stjörnubjörtum himni.
Jólakrásirnar í Viðey eru heimagerðar í öllum sínum fjölbreytileika og sönn upplifun
fyrir alla sælkera og unnendur jólamatar.
Í heimkynnum jólanna
24. - 26. október 2008
Færeyskir dagar
Maður ársins í Færeyjum 2007 Birgir Enni listakokkur og
aðrir færeyskir listamenn sjá um matarstemninguna eins
og hún gerist best í Færeyjum . Dansleikir föstudags- og laugardagskvöld.
Dúettinn Neil Joensen og Eyðun Ásason skemmta matargestum
og leika með hljómsveit Rúnars Þórs fyrir dansi.
Sími 565-1213
www.fjorukrain.is
HVAR ER ÞÍN AUGLÝSING ?
Allt sem þú þarft... ... alla daga
föstudagur
KRAFTMIKIL
OG TIL Í ALLT
Íris Björk Tanya
Jónsdóttir seldi
verslunina GK í
vikunni og einbeitir
sér að öðrum
verkefnum
FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS
DAGVAKTIN
Á HVÍTA
TJALDIÐ?
Þótt landinn elski Dag-
vaktina ætla höfundar
ekki að gera fleiri þætti
STRÁKUR
MEÐ SINN
EIGIN STÍL
Baldur Rafn Gylfason
er kominn aftur í hár-
greiðslubransann
STJÖRNU-
BRÚÐKAUP
ÁRSINS
Birgitta Haukdal gekk að
eiga Benedikt Einarsson
um helgina
17. október 2008
ULTRATONE
heimili&hönnun
LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 2008
INNLIT
Útsýni til allra átta
JÓHANN MEUNIER EIGANDI LIBORIUS
Notagildi í hávegum haft
Í ALDANNA RÁS
Gerður Helgadóttir
matur
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MAT ]
september 2008
Þórey Jónsdóttir kann uppskrift
að kryddaðri kjötsúpu
Austurrísk gúllassúpa
Kíkt í heimsókn á Café Loka
Rammíslensk veisla
Nanna Rögnvaldardóttir skrifar
Tilbrigði við
íslenskan haustmat
HUGLEIÐING UM HAUSTIÐ VINSÆLT HRÁEFNI Á VESTURLÖNDUM
GALDURINN Á BAK VIÐ GÓÐAN CAPPUCCINO VERSLUN SÆLKERANS
Kósíkvöld
Uppskriftir að notalegum stundum
1
Neytendastofa
VIGTARMENN
Námskeið til löggildingar vigtarmanna verður
haldið á Neytendastofu, Borgartúni 21, dagana 6.,
7. og 8. október nk.
Endurmenntunarnámskeið verður haldið
13. október.
Allar nánari upplýsingar um verð og skilmála, svo og
aðstoð við skráningu þátttakenda, eru veittar í síma
510 1100 og á heimasíðunni www.neytendastofa.
is/mælifræðisvið/löggilding vigtarmanna/námskeið
vigtarmanna.
Skráningu lýkur föstudaginn 19. september nk.
Suðurlandsbraut - sími 588 3031 - www.stra.is30
Tölvuumsjón
Rekstrarfélag Stjórnarráðsbygginga
Starfið
Hæfniskröfur
Umsóknarfrestur
Vinsamlega athugið að fyrirspurnum verður eingöngu svarað hjá STRÁ MRI.
Guðný Harðardóttir STRÁ MRI
stra@stra.is
óskar eftir að ráða tölvu- og/eða kerfisfræðing til
starfa. Rekstrarfélagið sér um notendaþjónustu gagnvart starfsmönnum flestra
ráðuneytanna ásamt miðlægum tölvubúnaði þeirra. Fjöldi útstöðva er um 550.
felst í notendaþjónustu og meðal helstu verkefna er viðhald og uppsetningar á
Windows útstöðvum, þjónusta við Málaskrár/GoPro, Lotus Notes, Office og önnur forrit.
eru að umsækjendur séu menntaðir á sviði tölvutækni, s.s. tölvufræði,
kerfisfræði, tölvunarfræði og/eða með sambærilega menntun. Þekking á Lotus Notes
og GoPro er æskileg. Áhersla er lögð á faglegan metnað, skipulagshæfni og sjálfstæði í
vinnubrögðum auk sveigjanleika í mannlegum samskiptum.
er til og með 22. september nk. Laun verða skv. kjarasamningi
starfsmanna Stjórnarráðsins og fjármálaráðherra. Gengið verður frá ráðningu fljótlega.
(gudny@stra.is) hjá veitir nánari upplýsingar.
Vinsamlega sendið umsóknir/starfsferilskrár og meðfylgjandi prófgögn til .
Viðtalstími er alla virka daga frá kl.13-15 meðan á umsóknarferlinu stendur.
Fagmennska í yfir ár20
www.stra.is
REKSTRARFÉLAG STJÓRNARRÁÐSBYGGINGA
fasteignir
15. SEPTEMBER 2008
Fasteignasalan Perla Investments og RE/MAX
Bær eru með til sölu íbúðir við Punta Prima
strönd á Spáni.
Í búðirnar eru í blokk við Punta Prima-strönd, sem hefur notið mikilla vinsælda og er bæði í 30 mínútna akstursfjarlægð frá Alicante-flugvelli
og Murcia-flugvelli.
Íbúðin á myndinni til hliðar skiptist niður í opið
eldhús, stofu/borðstofu, tvö svefnherbergi, baðher-
bergi og verönd. Íbúðunum fylgir sameiginlegur
garður með tveimur sundlaugum auk sameiginlegs
púttvallar.
Þær eru í nokkurra mínútna göngufjarlægð frá
ströndinni, þar sem óviðjafnanlegt útsýni er út á
Miðjarðarhafið.
Þá er öll þjónusta innan seilingar. Hægt er að rölta
á nærliggjandi veitingastaði og eins eru kjörbúðir,
veitingastaðir, apótek, barir og fleira staðsett
í þjónustukjarna í tíu mínútna göngufjarlægð.
Að auki er stutt í ýmiss konar afþreyingu fyrir
alla fjölskylduna, þar á meðal golf, tívolíferðir,
vatnagarð og fleira.
Þess skal getið að íbúðirnar kosta frá 201.160
evrum.
Þessi eign ásamt fleirum verður kynnt í opnu húsi
á Spánareignum hjá Remax Bæ Malarhöfða 2, helg-
ina 20. og 21. september á milli klukkan 12 til 16
báða daga.
Nánari upplýsingar veitir RE/MAX Bær, um-
boðsaðili Perla Investments á Íslandi. Snorri Sig-
urfinnsson í síma 864 8090, ss@remax.is. Magnús
Ninni Reykdalsson í síma 694 9999, maggi@remax.
is. Frekari upplýsingar um fasteignakaup á Spáni
eru fáanlegar á vefsíðunni www.perla.is.
Fyrsta flokks íbúðir
fáanlegar á Spáni
Íbúðin í blokkinni skiptist í opið eldhús, stofu/borðstofu,
tvö svefnherbergi, baðherbergi og verönd. Íbúðunum fylgir
sameiginlegur garður með tveimur laugum auk sameiginlegs
púttvallar. Öll þjónusta og afþreying eru innan seilingar frá
þeim.
Fr
um
FÖSTUDAGUR 24. okt.
LAUGARDAGUR 25. okt.
SUNNUDAGUR 26. okt.
SUNNUDAGUR 26. okt.
MÁNUDAGUR 27. okt.
Föstudagur:
Vikulegt sérrit á léttu nótunum. Viðtöl við þjóðþekkta
einstaklinga, allt það nýjasta í tísku, heilsu og hönnun
svo dæmi sé tekið.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir
í síma 512-5462 eða sigridurdagny@365.is
Heimili & hönnun:
Vikulegt sérrit um heimili & hönnun, hugmyndir fyrir
öll rými heimilisins sem og áhugaverðar fréttir úr heimi
hönnunar jafnt innanlands sem utan.
Nánari upplýsingar veitir Hlynur Þ. Steingrímsson
í síma 5125439 eða hlynurs@365.is
Matur:
Mánaðarlegt sérrit um mat, veisluhald,
matreiðslumenn og matgæðinga.
Nánari upplýsingar veitir Bjarni Þór Sigurðsson
í síma 512-5471 eða bjarnithor@365.is
Atvinnublaðið:
Mest lesna atvinnublað landsins
– alla sunnudaga
Nánari upplýsingar veitir Viðar Ingi Pétursson
í síma 512-5426 eða vip@365.is
Fasteignir:
Fasteignablað Fréttablaðsins - alla mánudaga.
Auglýsendur athugið að panta þarf auglýsingar
fyrir klukkan 12 föstudaginn 24. október.
Nánari upplýsingar veitir Ruth Bergsdóttir í símum
512-5469 / 694-4103 eða ruth@365.is
Smærri fjármálafyrirtæki
Þrengingar
kalla á
samþjöppun
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
H E L S T Í Ú T L Ö N D U M
Óli Kristján Ármannsson og Björn Ingi Hrafnsson
skrifa
Seðlabanki Íslands ætti að lækka stýrivexti um
0,25 prósentustig á vaxtaákvörðunardegi sínum
á morgun, samkvæmt áliti skuggabankastjórnar
Markaðarins. Að þessu sinni voru skiptar skoðanir
innan bankastjórnarinnar. Tveir vildu fremur horfa
til væntinga erlendra greinenda og hættunnar á
frekara gengisfalli og halda vöxtum óbreyttum.
Hinir vildu hefja lækkunarferli stýrivaxta nú þegar
og forða með því frekara kreppuástandi.
Sameiginleg niðurstaða er svo varfærnisleg
lækkun sem undirbyggja þarf rækilega með gögn-
um, svo sem með því að birta nýjan stýrivaxtaferil.
Ólafur Ísleifsson, lektor við Háskólann í Reykja-
vík, segir stöðuna í efnahagslífinu einkennast af
mikilli óvissu og hættu, meðal annars vegna skorts
á lánsfé. Þá hafi ekki tekist að styrkja gjaldeyris-
forða Seðlabankans nema að takmörkuðu leyti.
„Það lán sem tilkynnt var um í síðustu viku, en
hefur reyndar ekki enn verið tekið, er auðvitað
aðeins sem lítið skarð í stórri ísaldarstæðunni og
var af kurteisisástæðum ekki hlegið beint út af
borðinu,“ segir hann.
Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar,
segir mestu skipta nú að vega saman verðbólgu-
hættuna annars vegar og hættuna á kreppu hins
vegar. Hann horfir meðal annars til reynslunnar af
fyrri samdráttarskeiðum, svo sem þegar lækkun
stýrivaxta hófst síðla árs 2001, skömmu áður en
verðbólga náði hámarki.
Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningar
Glitnis, segir verðbólguhorfur jafnframt góðar og
líkur á að verðbólgumarkmiði Seðlabankans verði
náð á þriðja fjórðungi næsta árs. „Í þessu háa
vaxtaumhverfi og í ljósi þessarar verðbólguspár tel
ég rétt að bankinn lækki vexti sína í nokkuð stórum
stökkum á næstu mánuðum,“ segir hann.
Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greiningardeildar
Kaupþings, telur einnig að Seðlabankinn þurfi að
bregðast hratt við með örum stýrivaxtalækkunum
þegar verðbólgan tekur að hjaðna og þá jafnvel
með fjölgun vaxtaákvörðunardaga. Lækkunarferlið
segir hann hins vegar kalla á góðan undirbúning og
telur vart hægt að hefja það nema í tengslum við
útgáfu Peningamála, efnahagsrits Seðlabankans, á
vaxtaákvörðunardegi í nóvember. Þar hafi bankinn
vettvang til að skýra ákvörðun sína og sýn á efna-
hagsframvinduna.
Skuggabankastjórnin
vill 25 punkta lækkun
Skuggabankastjórn Mark aðarins áréttar að tími sé kominn
á lækkun stýrivaxta. Hættara sé við kreppu en verðbólgu.
Olíuverð lækkar | Verð á hrá-
olíu hefur lækkað nokkuð hratt
upp á síðkastið og lá við 102 dali
á tunnu þegar best lét í gær. Í júlí
stóð verðið í hæstu hæðum, fór í
rúma 147 dali á tunnu.
Kauphöllin sprakk | Fjárfestar
í Bretlandi komu að lokuðum
dyrum hjá Lundúnamarkaðn-
um í Bretlandi á mánudag. Tvö-
falt meiri velta með hlutabréf en
aðra daga varð til þess að kaup-
hallarkerfið brann yfir. Þetta er
alvarlegasta kerfisbilun á bresk-
um hlutabréfamarkaði í átta ár.
Þjóðnýting gleður | Gengi
hlutabréfa tók kipp upp á við
víða um heim á mánudag eftir
að Henry Paulson, fjármálaráð-
herra Bandaríkjanna, greindi frá
yfirtöku ríkisins á hálfopinberu
fasteignalánasjóðunum Fannie
Mae og Freddie Mac á sunnu-
dag. Þetta eru umfangsmestu
björgunaraðgerðir í sögu fjár-
málageirans.
Mikið atvinnuleysi | Atvinnu-
leysi mældist 6,1 prósent í
Bandaríkjunum í síðasta mánuði,
samkvæmt nýjustu tölum banda-
rísku vinnumálastofnunarinnar.
Atvinnuleysi hefur ekki verið
meira í tæp fimm ár.
Óbreyttir vextir | Bæði Eng-
landsbanki og evrópski seðla-
bankinn ákváðu í síðust viku að
halda stýrivöxtum óbreyttum. Að-
stæður í efnahagslífinu og yfir-
vofandi samdráttur í hagvexti lá
til grundvallar ákvörðununum.
Þóra Helgadóttir
Verðleiðrétting
ekki alslæm
6
Starfsmenn vilja kaupa
Heitt í holunum
hjá Enex
2 2
Hlutabréf í Eimskipafélaginu
voru færð á athugunarlista í
Kauphöllinni í gær, vegna um-
talsverðrar óvissu varðandi verð-
myndun vegna hættu á ójafnræði
meðal fjárfesta, líkt og segir í til-
kynningu.
„Þetta er ábending til fjárfesta
um að verðmyndun sé óvenju óviss
um þessar mundir og felur því í
sér hvatningu til þeirra að kynna
sér málið vel áður en ákvarðanir
eru teknar,“ segir Þórður Frið-
jónsson, forstjóri Kauphallar-
innar, í samtali við Markaðinn.
Verð á hlutabréfum í Eimskip
hefur nánast verið í frjálsu falli
síðustu vikur og mánuði. Á einni
viku hefur gengi bréfanna til að
mynda lækkað um ríflega þriðj-
ung. Fyrir um ári var gengið um
43, en var komið niður fyrir 10 kr.
á hlut í gær.
Eins og fram hefur komið í
Markaðnum situr Eimskip enn
uppi með ábyrgð upp á 25 millj-
arða króna vegna sölu á bresku
ferðaskrifstofunni XL Leisure
Group fyrir tveimur árum. Unnið
hefur verið að endurfjármögnun,
en henni er ekki lokið og herma
heimildir Markaðarins að skyndi-
legt fall nú geti tengst óvissu um
lyktir þeirrar vinnu. - bih
Eimskip í
frjálsu falli
www.trackwell.com
Vistvænn
kostur!
MIÐVIKUDAGUR 29. okt.
Markaðurinn:
Vikulegt sérrit um allt er snýr að viðskiptum
og efnhagsmálum – alla miðvikudaga.
Nánari upplýsingar veitir Laila Awad
í síma 512-5451 eða laila@frettabladid.is
Eftirfarandi sérblöð fylgja Fréttablaðinu á næstunni
FIMMTUDAGUR 23. okt.
Veljum íslenskt
Sérrit um hvað íslenskur iðnaður hefur upp á
að bjóða - bæði í vörum og þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Benedikt F. Jónsson í síma
512-5411 eða benediktj@365.is
veljum íslenskt
FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 2008
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI