Fréttablaðið - 22.10.2008, Blaðsíða 35
„Í fjármálakreppum er nauð-
synlegt að vinna hratt og leita
til fólks sem býr yfir mikilli
reynslu,“ segir Ann Davies.
Hún starfar hjá markaðs- og
ráðgjafarfyrirtækinu KPMG í
Lundúnum í Bretlandi en vann
með Alþjóðagjaldeyrissjóðnum
að uppbyggingu fjármálageir-
ans í Taílandi í kjölfar efna-
hagslægðar sem gekk yfir Asíu
undir lok tíunda áratugar síð-
ustu aldar.
Davies fjallaði um störf sín
og áhrif fjármálakreppunnar á
fundi Félags viðskipta- og hag-
fræðinga í gær.
Davies sagði sjóðinn hafa lagt
til fjölda breytinga eftir banka-
hrunið í Taílandi, svo sem til-
slökun á heimildum erlendra
aðila til fjárfestinga í bönk-
um, sem áður takmarkaðist við
fjórðungshlut. Þá var nefnd
sett á laggirnar sem vann að
uppstokkun bankageirans þar
í landi.
Uppstokkunarferlið stóð
yfir frá nóvember 1997 fram í
febrúar árið eftir og nam kostn-
aðurinn 32 prósentum af lands-
framleiðslu. Davies taldi öðru
máli gegna nú og gerir ráð fyrir
að efnahagslífið hér beri merki
bankaþrotsins í um tvö ár áður
en það jafni sig.
Björgólfur Jóhannsson, for-
stjóri Icelandair Group, sem
hélt erindi ásamt Davies, var
á öðru máli. Taldi hann við-
snúninginn ganga hratt fyrir
sig enda sé hagkerfið smátt og
sveigjanleg. En landinn verði
að standa saman. - jab
MÁLIN RÆDD Björgólfur Jóhannsson
og Ann Davies voru ekki sammála um
hversu langan tíma efnahagslífið þurfi
til að jafna sig. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Lægðin varir
í tvö ár
KOSTAR ÞIG
EKKI KRÓNU!
Momentum greiðslu- og innheimtuþjónusta ehf. | Suðurlandsbraut 18, 108 Rvk. | Sími: 510 7700 | momentum@momentum.is
Milliinnheimta sem er kröfuhafa að kostnaðarlausu
Kynntu þér innheimtuaðferðir okkar á momentum.is
A
R
G
U
S
0
8
-0
1
7
4