Tíminn - 10.05.1988, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Þriðjudagur 10. maí 1988
Aðalfundur Kaupfélags Hvammsfjarðar í Búöardal í gær:
Stofnað hlutafélag um
rekstur afurðastöðvar
Tæplega 21 milljónar króna tap varð á rekstri Kaupfélags
Hvammsfjarðar á sl. ári. Vaxtatekjur námu 19 milljónum en
vaxtagjöld voru rúmar 63 milljónir. Vaxtagjöld hækkuðu um 77%
frá árinu 1986 til ársins 1987. Þetta kom fram á aðalfundi
kaupfélagsins, sem haldinn var í Búðardal í gær.
Langtímalán kaupfélagsins voru um áramót 31 milljón króna
en skammtímalán 329 milljónir. Eigið fé fyrirtækisins er nú
neikvætt um rúmar 23 milljónir.
Ólafur Sveinsson, kaupfélags-
stjóri, sagði að ástæða númer eitt,
tvö og þrjú fyrir taprekstri á síðasta
ári væri gífurlegur vaxtakostnaður.
„Raunasaga fyrirtækisins er auð-
vitað löng. Það hefur átt í erfiðleik-
um í nokkur undanfarin ár. Á sl.
ári breyttist fjármagnskostnaður
til hins verra og kaupfélagið var í
vaskilum alla daga ársins vegna
fjármögnunar á sauðfjárafurðum.
Áfurðareikningur sem slíkur er
gífurlega stór baggi á öllum slátur-
leyfishöfum," sagði Ólafur. Að-
spurður sagði hann að ekki mætti
tengja erfiðleika kaupfélagsins við
miklar fjárfestingar fyrirtækisins á
undanförnum árum. „Ég bendi á
að langtímalán kaupfélagsins eru
ekki nema um 31 milljón króna.
Þar af leiðandi getur hér ekki verið
um að ræða fjárfestingarfyllerí
Jóns Baldvins," sagði Ólafur.
Nú þegar hefur verið gripið til
niðurskurðarhnífsins sem svar við
versnandi afkomu. Matvöruversl-
un félagsins í Stykkishólmi var
lögð niður um áramót og öllum
starfsmönnum trésmíðaverk-
stæðisins í Búðardal, 15-17 að tölu,
var sagt upp störfum um síðustu
mánaðamót. Ólafur sagðist búast
við fleiri samdráttaraðgerðum á
næstunni. Hann nefndi að trúlega
yrði byggingaröruverslun kaupfé-
lagsins í Stykkishólmi lögð niður
innan tíðar.
Þrátt fyrir að kaupfélagið hafi
hætt rekstri trésmíðaverkstæðisins,
er ekki enn ljóst hvort starfsemi
þess líður endanlega undir lok.
„Við höfum boðið starfsmönnun-
um upp á að selja þeim reksturinn
og leigja fasteignina. Þannig að ef
menn sjá einhverja vitglóru í því
að halda áfram og standa að þessu
sjálfir, þá hafa þeir möguleika á
því,“ sagði Ólafur.
Á aðalfundinum í gær samþykkt
að taka afurðastöðina út úr rekstri
kaupfélagsins og gera hana að
hlutafélagi. Þegar hefur verið leit-
að til fjölmargra aðila, innan sem
utan héraðs, um rekstur afurða-
stöðvarinnar. Ólafur sagði heima-
menn hafa tekið mun betur í þessa
hugmynd en hann hefði þorað að
vona. Hann vildi aðspurður ekki
tjá sig um þá utanaðkomandi aðila
sem óskað hefur verið eftir að
legðu hlutafé í rekstur afurða-
stöðvarinnar. „Ef tekst að stofiia öflugt
hlutafélag í kringum rekstur af-
urðastöðvarinnar, yrði kaupfélagið
á eftir með lítið annað en verslun-
arrekstur á sinni könnu,“ sagði
Ólafur Sveinsson. ÓÞH
Gunnlaugur Helgason flugmaður, sitjandi á vinstri væng TF-TÚN, tekur við borðveifunni að launum fyrir átta daga
vel heppnað ferjuflug frá Texas. Vélin er af gerðinni „Air Tractor“ og er áberandi gul að lit - öryggisins vegna.
Tímamynd Gunnar
Landgræösla ríkisins fær nýja TF-TÚN:
Landgræðsla að
hefjast að nýju
Ný áburðarflugvél er nú komin til landsins og ber hún sömu
einkennisstafí og eldri vél Landgræðslunnar, sem brotlenti í
Fljótshlíð í júlí í fyrra, TF-TÚN. Nýja vélin er landbúnaðartæki af
bestu gerð enda ber hún tegundaheitið „Air Tractor“, sem gæti
útlagst sem „loftatraktor“ eða „loftspilduljón“.
Mikill fengur verður að þessari vél
sem getur afkastað mjög miklu þar
sem stutt er í flugvelli. Hún ber hátt
í 1,5 tonna blöndu af fræi og áburði
í hverri ferð og er hún hönnuð sem
dreifingarvél frá grunni.
TF-TÚN er keypt frá Texas og var
henni flogið frá Lubbock í Texas.
Tók ferjuflugið átta daga í heild og
var það Gunnlaugur Helgason, flug-
maður hjá Flugleiðum, sem flaug
henni heim í vetrarorlofi sínu. Þótti
mönnum fara vel á því að Gunnlaug-
ur tæki að sér flutningana þar sem
hann hóf einmitt flugferil sinn fyrir
27 árum hjá Landgræðslunni.
Sumarið 1961 var reyndar ekki síður
eftirminnilegt fyrir Svein Runólfs-
son, landgræðslustjóra, þar sem
hann vann þá við hleðslu vélarinnar
sem Gunnlaugur flaug. Fékk Gunn-
laugur afhenta borðveifu frá Land-
græðslunni fyrir framlag sitt og fyrir
að skila vélinni heim á öruggan hátt
í erfiðu og löngu flugi.
Air Tractorinn er af árgerð 1984
og hefur verið flogið um 500 flug-
stundir. Að sögn þeirra land-
græðslumanna er vélin í mjög góðu
ástandi. Er hún búin 600 helstafla
þrýstiloftsvél af gerðinni Pratt &
Whitney (turbo motor) og getur hún
borið 1000-1500 kg af áburði og
grasfræi í ferð. Var rými þetta notað
í fluginu frá Texas undir varaelds-
neytisgeymi. Þessi vél hefur ein-
göngu verið notuð til dreifingarflugs
í Texas.
Fullbúin til áburðarflugs kostar
vélin um 8,5 milljónir króna. Trygg-
ingarfé gömlu TF-TÚN nam tæpum
3 milljónum, en 5,4 milljónir króna
fengust sérstaklega til þessara flug-
vélakaupa við afgreiðslu fjárlaga
fyrir þetta ár.
Áformað er að áburðarflug hefjist
á þriðjudag eftir hvítasunnu. Byrjað
verður á uppgræðslustörfum á
Reykjanesi og flogið þangað frá
Keflavíkurflugvelli. Þar er um að
ræða umfangsmikið landgræðslu-
verkefni sem er hluti af landgræðslu-
áætlun fyrir árin 1987-91. Öll sveitar-
félögin á Suðurnesjum taka virkan |
þátt í þessu landgræðsluverki sem
staðið hefur í mörg undanfarin ár.
íslenskir Aðalverktakar leggja auk
þess fram 5 milljónir króna á þessu
ári til uppgræðslunnar, en á undan-
förnum árum hafa Byggingarverk-
takar Keflavíkur gefið myndarlega
til þessa verkefnis. Ofan á allt þetta
hefur mikið sjálfboðaliðastarf verið
unnið af ýmsum félagasamtökum á
Suðurnesjum. KB
Ársfundur lönþróunarsjóðs:
94 lán veitt
á síðasta ári
Á ársfundi Iðnþróunarsjóðs sem
fram fór á mánudag kom fram að
hagnaður sjóðsins á árinu 1987 var
rúmar 162 milljónir króna, en til
samanburðar má geta þess að hagn-
aður ársins á undan var 105 milljónir
króna. Jafnframt kom fram að eigin-
fjárstaða sjóðsins er mjög góð, en
eigið fé er alls um 1.400 milljónir
króna.
Þorvaldur Alfonsson fram-
kvæmdastjóri sjóðsins sagði að af-
koman mótaðist einkum af tvennu,
þ.e. miklu góðæri sem ríkti í íslensk-
um þjóðarbúskap á síðasta ári og að
með breytingum á lögum sjóðsins
1986 hefðu opnast möguleikar til að
auka þjónustu við lántakendur, sem
hefði leitt til bættrar afkomu og
orðið sjóðnum til eflingar.
í ársskýrslu Iðnþróunarsjóðs kem-
ur fram að lánveitingar sjóðsins
á síðasta ári hafi verið alls 94 talsins,
að upphæð 863 milljónir króna og
væri það veruleg aukning á lánastarf-
semi sjóðsins á árinu, miðað við árin
á undan. Langstærstur hluti lánveit-
inga á árinu fór til iðnfyrirtækja, eða
um 676 milljónir króna, þar voru
fyrirtæki á sviði matvæla og drykkj-
arvöruiðnaðar með stærstan hlut, en
einnig var lánað til fyrirtækja á
öðrum sviðum, s.s. viðskipta, sam-
gangna, þjónustu og fiskeldis, eða
samtals 187 milljónir króna.
Lög sjóðsins heimila ráðstöfun
10% af tekjuafgangi ársins til styrk-
veitinga og var á síðasta ári ákveðið
að næstu tvö árin verði 10 milljónum
króna varið til undirbúningsaðgerða
er stuðli að aukinni sjálfvirkni í
íslenskuni iðnaði og er verkefnið
unnið undir stjórn Iðntæknistofnun-
ar fslands í samstarfi við Iðnþróun-
arsjóð. - ABÓ
Staöa lektors í stjórnmálafræði við Háskólann:
Ólafur líklegur
Beðið er eftir úrskurði Birgis fs-
leifs Gunnarssonar, menntamála-
ráðherra, um hver fær lektorsstöð-
una í stjórnmálafræði við Háskóla
íslands. Ýmsir áhrifamenn úr Sjálf-
stæðisflokknum munu hafa lagt að
honum að veita Hannesi Hólmsteini
Gissurarsyni stöðuna. Samkvæmt
áreiðanlegum heimildum Tímans
hafa aðrir úr þingliði flokksins haft
á orði við Birgi að ekki væri stætt á
öðru en að veita Ólafi Þ. Harðarsyni
hana. Er það skoðun þeirra að
fræðimennsku og „akademísku"
sjálfstæði Háskólans væri greitt
þungt högg ef maður sem talinn er
hæfur þyrfti að láta í minni pokann
fyrir öðrum sem aðeins er talinn
hæfur að hluta. Sem kunnugt er
úrskurðaði fimm manna dómnefnd
kennara við Háskólann þá Ólaf og
Gunnar Helga Kristinsson hæfa til
að gegna stöðunni, en Hannes
Hólmstein hæfan að hluta.
Ólafur nýtur greinilega trausts
félagsvísindadeildarinnar því í kosn-
ingu kennara við deildina fékk Ólaf-
ur 15 atkvæði af 17, Gunnar Helgi
eitt en Hannes Hólmsteinn ekkert
atkvæði. Þá hafa nemendur safnað
undirskriftum til stuðnings Ólafi.
. JIH
Látinn er
Svavar
Jóhannsson
Svavar Jóhannsson, fv. útibús-
stjóri Samvinnubankans á Patreks-
firði andaðist á Borgarspítalanum
6. maí á 74. aldursári. Svavar var
fréttaritari Tímans í fjölda ára og
hafði á hendi ýmis trúnaðarstörf
fyrir Framsóknarflokkinn.