Tíminn - 10.05.1988, Side 15
Þriðjudagur 10. maí 1988
Tíminn 15
illlllllH MINNING ..111 11_'■ .. 1 .. ■
Karl Gunnarsson
fyrrum bóndi í Hofteigi
Fæddur 16. apríl 1914
Dáinn 30. apríl 1988
Enda þótt Gunnar Jónsson frá
Háreksstöðum í Jökuldalsheiði
byggi aðeins í 14 ár á Fossvöllum í
Jökulsárhlíð, var hann síðan kennd-
ur við Fossvelli. Stundum þó við
bernskustöðvarnar sem þeir aðrir
synir Jóns Benjamínssonar, er marg-
ir urðu þjóðkunnir og með íslend-
ingum vestanhafs og nefndir Háreks-
staðabræður. - Kona Gunnars á
Fossvöllum var Ragnheiður dóttir
Stefáns sjálfseignarbónda í Teigaseli
á Jökuldal, Bjarnasonar. Varð þeim
hjónum auðið 14 barna, er flest voru
fædd áður en þau komu að Fossvöll-
um í fardögum 1918. Húsmóðurstörf
Ragnheiðar voru mikil, er hinn stóri
unglinga- og barnahópur óx úr grasi,
en gestagangur í mestan máta.
Liggja Fossvellir um þjóðbraut
þvera frá fornu fari eins og gerð
trébrúarinnar á Jöklu fyrr á öldum
sýnir. Dró og síst úr á þessari öld, að
landssímastöð var á Fossvöllum frá
fyrsta tíma símans í landinu og
pósthús. Búsumsvif voru mikil sem
jafnan síðan og jarðabætur, en
Gunnar var þekktur umbótasinni og
framkvæmdamaður, er á sannaðist á
Fossvöllum, þótt kreppan hlyti að
þrengja einnig að stórbúinu, og á
árunum 1909-16, erþau Ragnheiður
bjuggu á hinni afskekktu útvegsjörð
Húsavík eystri. Par fæddist Karl
sonur þeirra hinn 16. apríl 1914. Var
hann því í fyrstu bernsku, er flust
var í Bakkagerðisþorp og síðan að
Fossvöllum. Þar ólst hann upp við
aðstæður, sem voru hinar ólíkustu
og í Húsavík, þó að all margt fólk
væri þar á köflum.
Karl var við bundinn á Fossvöll-
um, að undan skilinni skólavist og
vinnu úti í frá, fram að þrítugu og
raunar búandi þar fardagaárið 1943-
44 á móti Ragnari bróður sínum, en
Ragnar tók við jörð og búi af
foreldrum þeirra 1932. Sat hann
jörðina til dauðadags 31. mars 1967
við mikla rausn og umsýslu, en síðan
ekkja hans, Anna Einarsdóttir, og
börn þeirra. Skemmra varð í búskap
Karls á Fossvöllum en þeir bræður
munu hafa ætlað, er Karli gafst færi
á Hofteigi á Jökuldal, prestsseturs-
stað, sem ekki hafði verið veittur í
16 ár. Úr kjörinni nýbýlisstofnun í
landi Fossvalla varð ekki því sinni og
fór Karl búnaði sínum að Hofteigi
lýðveldisárið. Tóku hann og kona
hans, Guðrún Stefánsdóttir frá
Sleðbrjót, við Hofteigi, er Benedikt
Gíslason fræðimaður lét þar að fullu
af búskap, en hann hafði haldið
staðinn frá 1928. Með þeim réðst til
bús í Hofteigi yngsti bróðirinn frá
Fossvöllum. Var það Hermann, þá
24 ára stúdent. Félagsbúskapurinn
varð honum til mikils stuðnings við
framhaldsnám, en að loknu guð-
fræðiprófi vígðist hann að Skútu-
stöðum 1949. Síra Hermann varð
skammlífur. Hann lést af slysförum
á Skútustöðum aðeins 31 árs. Ör-
stuttu síðar dó Ragnheiður móðir
þeirra, 75 ára að aldri, en Gunnar
frá Fossvöllum kvaddi á hásumri
1957, 86 ára öldungur, manna létt-
færastur og glaðastur í sinni, gestur
sonar síns og tengdadóttur í Hof-
teigi.
Búskaparsaga Karls og Guðrúnar
í full 38 ár í Hofteigi er um miklar
byggingaframkvæmdir á húsalausu
prestssetrinu, ræktun stórra túna allt
um takmarkalitla útbeit á hinni
landsþekktu fjárjörð, en þau höfðu
hátt á 5. hundrað fjár á árabili,
jafnvel fleira, þegar búið var stærst.
Hafði Benedikt Gíslason að vísu
gert ýmsar aðbætur, en eftir hinum
gamla byggingarhætti, enda ábúðin
ótrygg. Hlutu Karl og Guðrún að
sæta því og bjuggu við þá annmarka
og bæjarkulda, uns þau fengu loks
formlegt byggingarbréf og gátu haf-
ist handa um húsagerð. Reistu þau
vandað íbúðarhús 1954, og var það
lýst og hitað frá heimarafstöð frá
1964, en svo mikil útihús, að talin
eru fyrir 560 fjár. Vélakostur varð
að vísu góður og vinnuafköstin slík,
að hjúahald var löngum ekkert, en
börnin, sem stunduðu langskóla-
nám, gjarna heima á sumrum, er
mögulegt var og léttu bústörfin sem
mest þau máttu. Elst barnanna er
Björg, félagsráðgjafi í Reykjavík,
þá Ragnheiður stúdent og kennari í
Þrándheimi, Stefán mag. art. og
menntaskólakennari í Reykjavík,
Gunnar, flugmaður á Akureyri, og
Bergþóra, semer hjúkrunarfræðing-
ur og búsett í Áhus við Kristjánsstað
í Svíþjóð. - Var barnalán Hofteigs-
hjóna mikið og bar þar engan skugga
á, að ekkert þeirra systkina bjóst til
að taka við jörð og búi af foreldrun-
um. Þegar það var sýnt, en astma-
sjúkdómur sem Karl hafði lengi átt
við að stríða, aftraði harðri vinnu-
kröfu að nokkru, var flutningur frá
Hofteigi undirbúinn af yfirvegun og
með góðum fyrirvara. Mun hér einn-
ig hafa komið til, að svo mikið var
þegar aðhafst um byggingar og
ræktun, að naumast varð meir að
gert, og Karli leiðst kyrrstaðan og
einhliða viðhald, er honum þótti
búskapur án húsagerðar og nýræktar
vera. Fækkun sauðfjár og samdrátt
til sveita sá hann fyrir í all löngum
og afar leiðum aðdraganda þeirra
mála. Og hann gladdist yfir menntun
barnanna í víðsýnni, skarpri hugsun
og hvarf burt af vettvangi hins langa
og stranga starfsdags á Dal og frá
æskustöðvum beggja hjóna í Hlíð.
Stóð heimili þeirra Guðrúnar síðan
að Eyjabakka 30 í Reykjavík, fallegt
kvöldsetur, prýtt góðum munum og
dýrmætum minningum að austan.
Þegar litið er um öxl og til Hof-
teigsbóndans, sem nú er kvaddur,
skipa hinar verklegu framkvæmdir
og vitneskjan um stórbúskap hans
veglegan sess. Minna á forsjá hans
og kapp, atorku og viðbrigða þraut-
seigju. Allt bar og, úti og inni, vitni
hinni ýtrustu snyrtimennsku, sem að
verðleikum var viðurkennd af
Menningarsamtökum Héraðsbúa og
almennt, einkum meðan þjóðvegur-
inn lá undir hlaðvarpanum. - Margt
annað kemur í hugann, sem var svo
ríkt og heilt í huga þessa drenglund-
aða, trúfasta vinar, gerhugula og
glettna manns. Hann átti tóm til
bóklestrar og valdi við fjölhæfi.
Aflögu voru ljúfar stundir, er hann
sat með gestum, veitull og kátur og
fræddi um fyrri tíð, menn og mál-
efni, af sannri frásagnarlist. Brá þá
iðulega fyrir saknaðarhreim, eins og
þegar föður hans var getið eða síra
Sigurjóns föðurbróður hans á
Kirkjubæ. Ellegar sorgaratburða og
slysfara, sem fylltu næman hugann
viðkvæmni og samúð.
Karl átti svo margt og fjölbreytt
íhugunarefni, að létti honum hinn
afar langa erfiðisdag og gladdi, Iregar
hlé varð á og á vökunni. Asamt
vitundinni um návist eiginkonunnar,
hins alúðarfulla og elskusama vinar,
var það honum sú gnægð, að hann
harmaði lítt það hlutskipti að búa í
afar dreifbýlu og afskekktu samfé-
lagi, þar sem félagsmál voru fábreytt
og óhægt að sinna. Var hann að
sjálfsögðu reiðubúinn til hverrar
skyldugrar þátttöku, en lét öðrum
eftirsóknina með öllu frjálsa. Skal
hér aðeins getið setu kirkjubóndans
í sóknarnefnd með þeim Hvannár-
konum, Kristjönu Guðmundsdóttur
og Lilju Magnúsdóttur. Var sam-
vinna þeirra bæði löng og farsæl,
enda þeim öllum sá lífsskilningur
nákominn, að sælla er að gefa en
þiggja. Var Karli ánægjuefni, er síra
Gísli Brynjólfssyni, fulltrúi Jarð-
eignadeildar ríkisins, fól honum að
rífa það, sem uppi hékk af gamla
bænum og jafna rústirnar á staðar-
hlaðinu, en girðingu um kirkjugarð-
inn færði hann út og bætti og vann
mjög að sjálfur. Stærsta skrefið var
endurnýjun kirkjuhússins 1970-72.
Gleðin var einlæg við verkalok,
þegar hann málaði hið nýjaða og
fegraða guðshús í Neðra-Dal utan. í
þau 4 ár, sem ég þjónaði Hofteigs-
sókn, var mér ávallt ljós og mikils
virði hinn góði hugur staðarbónd-
ans, konu hans og fjölskyldu til
kirkjunnar. Móttökurnar í Hofteigi
voru slíkar, að messuferðirnar þang-
að voru sérstakt tilhlökkunarefni.
Fyrir þá samfundi og annað allt skal
þakkað hinum trúfasta, gengna vini,
þegar sáð er dauðlegu, en upp rís
ódauðlegt.
Ágúst Sigurðsson
Illllllllllllllllllllllillll FRÍMERKI
LitliFacit—1988
Litli Facitinn er kominn um svipað
leyti og lóan, með ný verð og örlítið
hærri fyrir íslensk og önnur frímerki,
hversu lengi sem dugar að hækka
það sem ekki selst á uppgefnu verði.
Þetta er litprentuð, einföld útgáfa
af stóra Facit listanum fyrir Norður-
löndin. Þarna eiga að vera komin
með öll frímerki sem út komu fyrir
áramótin 1987/1988, og á því verði
sem höfundar töldu gild um það
leyti. Litprentunin er í fjórum litum.
Þá eru flest frímerkjahefti sögð vera
með, en mikil er sú einföldun að því
er ísland varðar, því að þar eru
aðeins skráð 6 hefti. Kílóvara er
skráð til verðs, fram til 1976. Árssett
eru einnig skráð en aðeins fram til
1974, en eins og kunnugt er voru þau
seld á Islandia 73, í plastbókum, árin
1970-1973. Fyrstadags bréf eru
einnig skráð frá 1929, en mikið
vantar þar í. Þá eru einnig blokkirn-
ar 8 skráðar sérstaklega. Hvorki eru
miximkort eða sýningarstimplar
skráðir fyrir fsland, þótt slíkt sé
tekið fram í kynningu.
Það eru í raun tveir litlu Facit
listar sem koma út á vorin. Annar er
aðeins fyrir Svíþjóð, en hinn fyrir öll
Norðurlöndin. Sænski listinn er hins
vegar eins og fyrstu 96 síðurnar í
Norðurlandalistanum.
Norðurlandalistinn kostar 80
sænskar krónur, en sænski listinn
einn kostar 40 sænskar krónur.
Sé tekið eitt dæmi um verðlagn-
ingu, eða 25 króna merkið Alþingis-
hús. Þá er það verðlagt í stóra Facit
í fyrra á Skr. 1700,- og 145,-. Það
verð breytist ekki enda ríflega sex-
falt í íslenskum krónum. Listi Frí-
merkjahússins skráir það á kr. 4000,-
og 450,- en íslensk frímerki á kr.
5000,- og 450,-. Þarna er Facit á
annað hundrað prósent hærri en
íslensku listarnir.
Annars er frágangur listans og
prentun vönduð innan þess ramma
er honum er settur.
Það er Frimárkshuset A/B í Lek-
sand í Svíþjóð, sem gefur út Facit
listann.
Sigurður H. Þorsteinsson.
FORD PICKUP 1983
4x4 LXT 250 F með 6,9 Dieselvél. Fljótandi öxlar,
gúmmíklædd skúffa. Ekinn aðeins 52.000 mílur.
Nýinnfluttur. Upplýsingar í símum 92-46644 og
985-20066.
Óska eftir beitilandi
fyrir 4-5 hesta á Suðurlandi. Þarf að vera vel girt
með skjólum og mikið grasgefið. Tími: miður júní
til miðs desember.
Tilboð merkt Beitiland sendist Tímanum fyrir 14.
þ.m.
Járnhálsi 2 Sími 83266 110 Rvk.
Póstholf 10180
UE
Dráttarvélar
Sannarlega
peninganna virði.
VELAR 0G ÞJ0NUSTA HF. - Velaborg
JÁRNHÁLSI 2
- SÍMI 83266 -686655
t
Eiginmaður minn
Svavar Jóhannsson
f.v. útibússtjóri Samvinnubankans á Patreksfirði
Viðihvammi 7, Kópavogi
lést í Borgarspítalanum að morgni 6. maí.
Fyrír hönd aðstandenda
Hulda Pétursdóttir
t
Hjartanlegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur hlýjan
vinar hug ( veikindum og við útför
Svanhildar Þorleifsdóttur
og heiðruðu minningu hennar á saknaðar stundu.
GUÐ BLESSI YKKUR ÖLL
Ftagnar Þórarinsson
Þorleifur Ragnarsson, Hanna Kristín Jörgensen og börn
Sigurlaug Ragnarsdóttir, Þórður Pálmi Þórðarson og börn
Þórunn Ragnarsdóttir, Birgir Gestsson og börn
Ragnhildur Ragnarsdóttir og börn
t
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa
Valdimars Stefánssonar
Þráinn Valdimarsson Elise Valdimarsson
Hörður Valdimarsson Erla Bjarnadóttir
Vilhjálmur Valdimarsson Sigfríður Sigurðardóttir
Stefán Valdimarsson
Ásdís Valdimarsdóttir
Erla Valdimarsdóttir
Hrafnhildur Valdimarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn