Tíminn - 10.05.1988, Qupperneq 20
Aiiglýsingadeild hannar
auglýsinguna fyrir þig
■■■v ' ■ ■ ■ ' ' ■
Okeypis þjónusta
j
Tíniinn
Matvöru- og fiskbúðum
fækkað um 77 á 10 árum
Öll matarinnkaup Reykvíkinga í stórmörkuðum og sjoppum eftir 10-15 ár?:
Verða öll matarinnkaup Reykvíkinga í stórmörkuðum og söluturnum eftir nokkur ar?
Búið verður að loka öllum
matvöruverslunum (hverfa-
verslunum) og öllum fískbúð-
um i Reykjavík eftir 10-15 ár
og „matvöruverslun“ í borg-
inni því komin í stórmarkað-
ina, sjoppurnar og bakaríin,
þ.e. ef þróunin verður áfram
hin sama og hún hefur verið
síðustu 10 árin.
í svari Borgarskipulags Reykja-
víkur við fyrirspurnum sem Sigrún
Magnúsdóttir borgarfulltrúi gerði í
borgarráði, kemur m.a. fram að
frá 1977 til 1987 fækkaði hverfa-
verslunum um 66 (úr 156 í 90) og
fijkbúðum um 10 (úr 28 í 18). Að
meðaltali hefur því matvöruversl-,
unum fækkað um 6-7 ár hvert og
gætu því allar verið horfnar innan
10-15 ára ef sama þróun heldur
áfram. Benda má á að þótt
þriðjungur Reykvíkinga búi í nýj-
ustu hverfunum, Breiðholti, Árbæ
og Grafarvogi eru þar aðeins 18
matvöruverslanir samtals.
Á sama tíma hafa stórmarkaðir
bæst við í Miklagarði, Mjódd og
Kringlunni. Tala þeirra sem hafa
kvöldsöluleyfi hefur hins vegar lít-
ið breyst, eða úr 123 í 119 (sem
þýðir að sjoppur eru orðnar 30%
fleiri enn hverfaverslanir) og starf-
andi bakaríum í borginni hefur
fjölgað um fjórðung, úr 26 í 33.
í sambandi við fyrirspurn sína
vitnaði Sigrún til skýrslu Borgar-
skipulags um „Verslunarkönnun í
Reykjavík 1981“ þar sem bent er á
nauðsyn stefnumörkunar borgar-
yfirvalda í verslunarmálum og
stefnumið sett fram. Meðal þeirra
markmiða er; að ekki verði lengra
en 400 metrar (300 m radíus) frá
þorra heimila í næstu matvöru-
verslun - að spornað verði gegn
fækkun matvöruverslana í grónum
hverfum - og að jafnvægi haldist
milli stórmarkaða og minni mat-
vöruverslana. Samkvæmt því
spurði Sigrún m.a. hve margar
hverfaverslanir ættu nú að vera í
Reykjavík, hvernig borgaryfirvöld
ætli að sporna gegn fækkun hverfa-
verslana og hvað teljist æskilegt
jafnvægi milli stórmarkaða og
minni matvöruverslana.
í svari Borgarskipulags kemur
m.a. fram að um 10.000 Reykvík-
ingar búi utari við 400 m fjarlægðar-
mörkin. Til að breyta því þyrfti
10-15 nýjar matvöruverslanir, fyrst
og fremst í Grafarvogi, Árbæjar-
hverfi, Breiðholti og Fossvogi.
Hins vegar standi hverfaverslanir
víða mjög þétt í elstu hverfunum.
Hvað varðar stórmarkaði segir
Borgarskipulag að borgaryfirvöld
geti takmarkað fjölda nýrra stór-
markaða og ráðið staðsetningu
þeirra. í þvf sambandi sé mikilvægt
að nýir stórmarkaðir verið ekki
byggðir í eða nærri grónum hverf-
um þar sem hverfaverslanir veiti
næga þjónustu (Kringla? Mikli-
garður?).
Stórfækkun matvöruverslana í
Reykjavík á sama tíma og fjöldi
sjoppa/söluturna stendur í stað get-
ur m.a. vakið þá spurningu hvort
sjoppurnar hafi í stórauknum mæli
verið að taka við hlutverki hverfa-
verslananna. í því sambandi má
rifja upp að í Reykjavík jókst velta
sjoppanna um rúmlega 37% frá
1986 til 1987 en matvöruverslana
(annarra en stórmarkaða) aðeins
um 19% á sama tíma. Tölur um
þessa þróun s.l. áratug eru ekki
handbærar fyrir Reykjavík sérstak-
lega, en á landsvísu jókst hlutfall
sjoppusölunnar úr u.þ.b. þriðjung
upp í helming af veltu matvöru-
verslana á árunum 1979-1987. Sú
viðbót jafngilti um 1.600 milljóna
viðbótarveltu hjá sjoppunum á síð-
asta ári. - HEI
Ragnar kaupir
„Grandavagninn“
Ragnar Júlíusson, stjórnarfor-
maður Granda hf., sendi Davíð
Oddssyni, borgarstjóra, bréf í gær
þar sem hann segist hafa farið þess
á leit við stjórn Granda hf. að fá að
leysa til sín bifreið þá, sem hann
hefur haft til afnota frá fyrirtækinu.
Pessi ákvörðun Ragnars kom í
kjölfarið á samtali sem hann átti
við borgarstjóra í fyrradag.
Tíminn talaði við Davíð í gær og
spurði hvort hann hafi þrýst í
Ragnar að fara þessa leið. „Þetta
var hans eigin ákvörðun. Það eina
sem ég gerði var að ræða þetta mál
við hann í tengslum við það hvernig
forsendurnar hafa breyst hjá fyrir-
tækinu frá því þessí ákvörðun var
tekin. Ég taldi mikilvægt að hann
leysti þetta mál hið snarasta en
hann tók þessa ákvörðun sjálfur,"
sagði Davíð. Hann sagðist eiga
von á því að stjórnin samþykkti
þessa ósk Ragnars þar sem þetta
væri góður kostur.
Eins og fram hefur komið áður
sagði Davíð á borgarstjórnarfundi
fyrir helgi að bílakaup sem þessi
væru algeng. Sigrún Magnúsdóttir,
borgarfulltrúi Framsóknarflokks-
ins, sagðist, í samtali við Tímann,
ætla að kynna sér hvort slíkt við-
gengist hjá öðrum fyrirtækjum sem
borgin á hlut í. „Ég átti ekki við að
slíkt væri algengt á vegum borgar-
innar. Ég veit að hún er ekki svo
mikill kjáni að halda að ég hafi
verið að tala um það. Hún þarf
ekkert að kynna sér það. Það
liggur alveg ljóst fyrir hvaða reglur
eru varðandi borgarfyrirtæki,"
sagði Davíð. JIH
Enn ein ásökun um lögregluofbeldi litið dagsins Ijós:
Kærði lögregluna
unnar. málavextir óljósir og hefur vísað
Böðvar Bragason lögreglustjóri málinutilrannsóknarhjáRannsókn-
athugaði málið í gær, en þykja arlögreglu ríkisins. -SÓL
Fundur Halldórs og Makhloufs:
Formlegt boð
um f undahöld
Rúmlega þrítugur maður hefur nú
kært tvo lögregluþjóna fyrir fanta-
skap og tilgangslausa handtöku að-
faranótt sunnudags.
Maðurinn hafði tekið sér far með
leigubíl áleiðis til vinnustaðar síns,
en leigubílstjórinn, sem er fyrrver-
andi kona mannsins, ók of greitt og
var stöðvuð af lögreglubíl, sem ekki
hafði ökuljósin kveikt. Leigubíl-
stjórinn var færður í lögreglubílinn,
en þegar spurningaflóð lögreglu-
þjónanna var orðið til þess að mað-
urinn var orðinn of seinn til vinnu,
fór hann út úr leigubílnum og gekk
að lögreglubílnum. Þar fann hann
að því að lögreglan væri að stöðva
fyrir brot, meðan hún fremdi annað.
Lögreglumaðurinn vatt sér þá út úr
lögreglubílnum, samkvæmt fram-
burði mannsins, skellti honum utan
í bílinn og síðan í götuna, sparkaði
í hann og handjárnaði. Maðurinn
var síðan færður niður á lögreglu-
stöð, en á leiðinni var barsmíðunum
haldið áfram, auk þess sem hann var
kallaður illum nöfnum. Manninum
var síðan sleppt eftir að hafa verið
spurður spjörunum úr, fór á Borgar-
spítalann og fékk áverkaskýrslu.
Hann kærði síðan málið til lögregl-
Halldór Ásgrímsson, sjávarút-
vegsráðherra, sem gegnir starfi utan-
ríkisráðherra í fjarveru Steingríms
Hermannssonar, átti í gær fund með
dr. Makhlouf, fulltrúa PLO, frelsis-
samtaka Palestínuaraba, sem nú er
staddur hér á landi.
Á fundinum mótmælti Halldór
fréttatilkynningu sem samtökin
sendu frá sér eftir fund Steingríms
Hermannssonar og Makhloufs í síð-
asta mánuði, og baðst Makhlouf
afsökunar á mistökunum, sem ekki
hefðu orðið ef tilkynningin hefði
verið borin undir báða aðila, eins og
æskilegt hefði verið.
Á fundinum lagði dr. Makhlouf
fram formlegt boð til utanríkisráð-
herra um fund með leiðtogum PLO,
en ekki var getið um fundartíma eða
fundarstað. Halldór sagðist ætla að
koma skilaboðunum áleiðis til
Steingríms.
Fundarboðið verður rætt á ríkis-
stjórnarfundi og þar verður tekin
ákvörðun um málið. -SÓL