Tíminn - 27.08.1988, Blaðsíða 3
LJaÚgárdaguí 27. júlí 1988
Tíminn 3
Skýrslan komin um verktakastarfsemi á Keflavíkurflugvelli:
Steingrímur vill slá
einkarétt Aðalverktaka
Steingrímur Hermannsson, utanríkisráðherra, hefur lagt fram
skýrslu sérstakrar nefndar sem hafði það verkefni að kanna
verktakastarfsemi á Keflavíkurflugvelli. Bendir nefndin réttilega á
að íslenskir Aðalverktakar hafi haft góðan tíma til að efla fyrirtækið
og gera því kleift að sinna öljum viðgerðum og verkum með skjótum
hætti og góðum arði. Eru íslenskir Aðalverktakar núna öflugasta
fyrirtæki á íslandi, ef frá er talin Reykjavíkurborg, eins og
utanríkisráðherra orðaði það á blaðamannafundi í gær.
Lagði nefndin fram nokkrar tillög- gengur út á að ástand mála verði
ur sem komu frá ýmsum aðilum og
þar á meðal ein frá Verktakasam-
bandi íslands. Alls eru tillögurnar
fimm og þar með talin sú tillaga er
óbreytt. Af þessum fimm tillögum er
Steingrímur hrifnastur af þeirri
þriðju, sem gengur út á að íslenskir
Aðalverktakar verði gerðir að al-
Athugasemd viö frétt Tímans 25. ágúst
um kaup á bifreið fyrir dómsmálaráöuneytiö:
RÆTIN SKRIF
Hr. ritstjóri
í blaði yðar 25. ágúst er frétt um
kaup á sérstaklega styrktum lög-
reglubíl, sem settur hafi verið
„undir rass á skrifstofumanni" eins
og það er svo smekklega orðað.
Því er skemmst til að svara að
fréttin er tilhæfulaus.
Umrædd bifreið sem er Volvo af
240 gerðinni er keypt fyrir eftirlit
ráðuneytisins með löggæslu í land-
inu og er það Gísli Guðmundsson
yfirlögregluþjónn, sem notar bif-
reiðina á eftirlitsferðum sínum.
Síðan ráðinn var yfirlögregluþjónn
í ráðuneytið hefur verið kappkost-
að að hann fari árlega f hvert
lögreglustjóraembætti og oftar eft-
ir því sem þörf er á. Gísli fer
fjölmargar ferðir vegna starfs síns
í lögreglustjóraembættin í fjöl-
mennustu byggum landsins, þ.e. á
höfuðborgarsvæðinu og á Reykja-
nesi. Öll notkun þeirrar bifreiðar,
sem Gísli hefur haft til afnota, er
nákvæmlega skráð og nam notkun
hennar til lengri ferða á s.l. ári um
8 þúsund kílómetrum til skemmri
ferða um 120 þúsund kílómetrum á
Samtals nam því embættisakstur
Gísla um 20 þúsund kílómetrum á
s.l. ári. Fyrir nokkrum árum var
reynt að nota bílaleigubíla við
löggæslueftirlitið, en það þótti fjár-
hagslega óhagkvæmt miðað við að
ráðuneytið hefði sérstaka bifreið
til þessar nota.
Síðast liðin 2 ár hefur ráðuneytið
notað bifreið af gerðinni Opel
Record, sem keypt var ný, en
þegar fá þurfti sérstaka bifreið til
löggæslustarfa í Mosfellsbæ var
bifreiðin látin til þess verkefnis.
Þegar Volvo-bifreiðin var pönt-
uð óskaði fjárlaga- og hagsýslu-
stofnun eftir greinargerð um þörf
fyrir bifreiðina og féllst hún á þær
skýringar sem gefnar voru eftir
nákvæma athugun. Þar á meðal
var samþykkt sú ráðstöfun að
kaupa bifreiðina með 129 hestafla
vél í stað 118 hestafla og er ætlunin
með því að athuga við notkun
hennar af hálfu ráðuneytisins,
hvort hún henti betur til löggæslu-
starfa, en þær gerðir Volvo-bif-
reiða, sem notaðar hafa verið hér
á landi. Aukakostnaður vegna
stærri vélar nam 35 þúsund
krónum. Bifreiðin er hins vegar
ekki sérstaklega styrkt til lög-
gæsluaksturs eins og sagt er í
fréttinni, en í Svíþjóð eru slíkir
bílar framleiddir sérstaklega skv.
kröfum lögreglunnar og kosta þá
mun meira, en umrædd bifreið.
Frásögn blaðsins er skrifuð í
„rætnum“ stíl með upphrópunum
um hættulegar prófanir bifreiðar-
innar, yfirlögregluþjónninn nefnd-
ur „skrifstofumaður" í niðrandi
skyni, bíllinn er kallaður leynivopn
o.s.frv. Þá er blandað saman frá-
sögn af kaupum ráðuneytisins á
bifreið til löggæslueftirlits og
ástandi lögreglubíla almennt,, sem
verið hefur til athugunar að undan-
förnu til undirbúnings sérstaks
átaks á því sviði. Fullyrt er að
bíllinn sé keyptur án þess að Inn-
kaupastofnun ríkisins hafi komið
nærri kaupunum, sem eru staðlaus-
ir stafir. Þá er rætt um merkingu
bifreiðarinnar, en hún er að sjálf-
sögðu merk sem ríkisbifreið, en
ber ekki ljósabúnað lögreglubif-
reiða, enda eigi notuð sem slík.
Skrif, sem þessi eru til vansa
fyrir aðstandendur þeirra og lýsir
best innræti þeirra.
Dónismálaráðuneytið,
25.ágúst 1988
ATHUGASEMD VID
SKRIF RÁÐUNEYTIS
Hvað varðar innræti okkar á
Tímanum, teljum við það fyllilega
standast samanburð við þeirra er í
dómsmálaráðuneytinu sitja.
Við vísum því á bug að fréttin sé
skrifuð í rætnum tón. Það er hlut-
verk fjölmiðla að benda á það sem
betur má fara í þessu þjóðíélagi og
í umræddri frétt bendum við á
aflmikinn bíl er dómsmálaráðu-
neytið hefur til afnota, á meðan
hluti bílaflota lögreglunnar stenst
ekki kröfur þær er bifreiðaeftirlitið
gerir til bifreiða sem í notkun eru.
Þá verður það að teljast athygl-
isvert að fjárlaga- og hagsýslustofn-
un hafi tekið greinargerð ráðuneyt-
is svo góða og gilda um notkunar-
þörf. Ætti nú að vera leikur einn
að panta inn aflmikla bíla fyrir
lögregluembættin f landinu.
Nýleg dæmi sýna að lögreglan
hefur misst af ökuþórum fyrir þær
sakir að bílar embættisins standast
ékki kraftmiklum fólksbifreiðum
snúning. Megintilgangur fréttar
okkar var að benda á þetta.
Þá viljum við að gefnu tilefni
taka fram að frétt okkar var ekki
skrifuð til höfuðs Gísla, en það er
nú einu sinni hann er hefur með
bílinn að gera.
Varðandi smekklegt orðalag, þá
á ráðuneytið það við sína undir-
menn. Vissulega má finna smekk-
legri orð en rass, en það var nú það
orð er lögreglan sjálf tók sér í
munn. Stofnanamálið myndi að
sjálfsögðu vera sitjandi.
Eggert Skúlason,
fréttastjórí.
menningshlutafélagi. Því fylgi ekki
mjög róttæk breyting gagnvart kost-
um núverandi fyrirkomulags. Breyt-
ingin yrði hins vegar sú að fleiri
aðilum yrði heimilað að koma inn í
þetta stærsta fyrirtæki sem sér um
framkvæmdir fyrir varnarliðið á
Keflavíkurflugvelli. Stærsti ókostur-
inn yrði samt sá að mati ráðherra að
hætta myndi skapast á því að það
festist í sömu rásinni og yrði sama
einokunarfyrirtækið. Telur ráðherra
þá hugmynd mjög athugandi að
opna þetta fyriræki með þessum
hætti og slá á þann einkarétt sem
íslenskir Aðalverktakar hafa notið í
áratugi.
Óskir varnarliðsins hafa enn ekki
borist ráðuneytinu um framkvæmdir
á næsta ári. Stærstu framkvæmdir
verða þó trúlega lagning akbrautar
meðfram flugbrautinni 020. Ekki er
þó ljóst hvort þeir fá leyfi fyrir þeim
framkvæmdum þar sem niðurskurð-
ur á framkvæmdum þeirra var um
14% í ár og verður að öllum líkind-
um svipaður á næsta ári.
KB
Stakk
afogók
á staur
Ölvaður ökumaður á fimm-
tugsaldri keyrði á ljósastaur í
Túnbrekku í Kópavogi um kl.
1:00 aðfaranótt föstudags.
Lögreglan sá til ökumanns-
ins rétt áður en hann keyrði á
staurinn. Hann ók BMW bif-
reið og stakk af þegar lögreglan
ætlaði að stoppa hann, en lög-
reglan mátti sín lítils á frekar
kraftlítilli lögreglubifreiðinni
og náðist ekki að veita bifreið-
inni eftirför. Talið er að ölvaði
ökumaðurinn hafi verið á hátt
í 200 km hraða þegar ferð hans
var sem mest.
Maðurinn slapp með lítil
meiðsl, en bifreiðin er mikið
skemmd. -gs
Nýja „bflafangelsið“ við Holtaveg.
Tímamynd Pjetur
Lögreglan í Reykjavík:
„Bíia-
fangelsi“
við
Holtaveg
Myndarleg girðing hefur verið
reist utan um svæði sem Lögreglan í
Reykjavík er að taka í notkun við
Holtaveg, skammt frá Miklagarði.
Verður þetta svæði notað undir bíla
sem teknir eru í vörslu lögreglunnar
fyrir brot af ýmsu tagi. Er þar í
langflestum tilfellum um að ræða
bíla sem teknir eru vegna stöðubrota
og eru þeir um 5-10 talsins sem
lögreglan þarf að hafa afskipti af á
degi hverjum vegna slíkra brota.
Það eru þeir bílar sem valda hvað
mestri hættu, bæði í bílaumferð og
fyrir gangandi vegfarendur, sem
dregnir eru í burtu af kranabílum.
Nýja svæðið er athafnasvæði sem
borginni er gert skylt að útvega
samkvæmt nýlegri lögreglusam-
þykkt en hingað til hefur verið
notast við portið fyrir aftan lögreglu-
stöðina við Hverfisgötu. Það hefur
jafnan verið yfirfullt af bílum, bæði
bílum starfsmanna og bílum sem
teknir eru vegna brota, og því er
þetta kærkomin viðbót við plássið.
Svæðið verður tekið í notkun á
næstu dögum og verður það vaktað
úr kofa þeim sem sést á meðfylgjandi
mynd. . JIH
VEIÐIHORNIÐ'
Umsjón Eggert Skúlason i
„LAXAFYLLERI“
Ævintýraleg góð veiði hefur verið
í Laxá í Kjós í sumar og enn er
ekkert lát á. I gær fyrir hádegi
veiddust tuttugu grálúsugir laxar á
neðsta svæðinu og þeir voru fimm-
tán fyrir hádegi í fyrradag einnig
lúsugir. Alls voru á hádegi í gær
komnir um 3350 laxar og er áin nú
að nálgast met það er sett var í
Þverá/Kjarrá árið 1978, þegar
veiddust 3558 laxar.
Haldi veiði áfram í líkingu við
það sem verið hcfur má telja víst
að metið falli. Fimmtán dagar eru
eftir og sagði Árni Baldursson,
einn af leigutökutn Laxár, í samtali
við Tímann í gær að þetta hlyti að
hafast, þar sem sjö til átta standa
vaktina á hverjum degi.
Sjálfur segist Ámi hafa veitt vel
f sumar og mikið í Kjósinni. „Þetta
hefur verði eitt allsherjar laxafyll-
erí,“ sagði Árni og hló.
Þjórsá enn
spurningarmerki
í sumar hefur Árni Jónsson
bóndi að Króki í Ásahreppi við
Þjórsá auglýst laxveiðileyfi í ánni.
Veiðihornið setti sig í samband við
Árna og spurði hvernig hefði
gengið. Árni sagði að lítið hefði
verið um að menn hefðu komið til
veiða, enda áin verið erfið til vciða
í sumar. Mikið vatn hefði vérði í
ánni og framburður. Enginn fiskur
er enn kominn á land á stöng fyrir
landi Króks en Árni sagði að hann
seldi leyfi áfram í sumar og fyrir þá
er hafa áhuga látum við fljóta með
símanúmer Árna. Síminn er 98--
75946.
Eins og Árni benti á lagast áin
mikið þegar líður fram á haustið og
er best fallin til stangveiða að vor-
og haustlagi.
Verði af frekari virkjunarfrant-
kvæmdum vænkast hagur stanga-
veiðimanna með tillifi til Þjórsár.
Þá verður ánni veitt í Þórisvatn og
yrði það til þess að nær allur jökull
myndi hverfa úr henni að sögn
Árna. -ES