Tíminn - 27.08.1988, Qupperneq 4
4 Tíminn
Laugardagur 27. ágúst 1988
IHH REYKJKJÍKURBORG |f«
U 2--:---- '
'I* Aatuevi Stödm
Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur
óskar að ráða SJÚKRALIÐA í 50% starf frá 1.
september n.k., vegna heimahjúkrunar við heilsu-
gæslustöð Hlíðasvæðis, Drápuhlíð 14.
Upplýsingar um ofangreint starf eru gefnar á
skrifstofu framkvæmdastjóra heilsugæslustöðva,
Barónsstíg 47, sími 22400 og hjá hjúkrunarfor-
stjóra heilsugæslustöðvar Hlíðasvæðis, sími
622320.
Frá grunnskólanum
Mosfellsbæ
Skólasetning mánudag 5. september.
Varmárskóli yngri deild:
Börn 10, 11 og 12 ára mæti kl. 10.00.
Börn 7, 8 og 9 ára mæti kl. 11.00.
Forskólabörn verða boðuð bréflega.
Eldri deildir: 7. bekkur kl. 9.00
8. bekkur kl. 10.00
9. bekkur kl. 11.00
Skólastjóri.
Fundur Vestnorræna þingmannaráösins:
Vilja samvinnu í
viðræðum við EBE
Á fundi Vestnorræna þingmannaráðsins, dagana ló.og 17.júlí s.l., í
Ilulissat (Jakobshavn) á Grænlandi, var samþykkt tillaga þess efnis að
ríkisstjórnir landanna þriggja sem sæti eiga í ráðinu, ísland, Grænland og
Færeyjar, ættu að hafa með sér mun nánari samvinnu, en nú er, í öllum
viðræðum við Efnahagsbandalag Evrópu um nýja viðskiptasamninga.
Töldu fundarmenn, að ef löndin
hvert og eitt, gerðu viðskiptasamn-
inga við EBE yrði það til að veikja
stöðu þeirra á innra markaði banda-
lagsins, sem verður að veruleika
1992. Staða þeirra yrði mun sterkari
ef þau bæru gæfu til að standa saman
í þessum viðræðum.
Á fundinum í Ilulissat komu einn-
ig fram í ræðum fulltrúa frá öllum
löndunum umtalsverðar áhyggjur
vegna stöðu efnahagsmála, lækkandi
fiskverðs á heimsmarkaði, mengun-
arhættu í Norður-Atlantshafi og
stöðu þessara landa gagnvart innra
markaði Efnahagsbandalags Evr-
ópu.
Þá var samþykkt tillaga, þar sem
eindregið er hvatt til aukins sam-
starfs á sviði rannsókna og aðgerða
til að koma í veg fyrir mengun
Norður-Atlantshafsins, og lýst
áhyggjum yfir mengunarhættu vegna
slysa er kynnu að verða vegna stöðu-
gt aukinna hernaðarumsvifa á hafinu
umhverfis okkur.
Einnig var mikið fjallað um sam-
skipti landanna á viðskiptasviðinu
og þörf á aukinni samvinnu og
auknum viðskiptum. Þá var fjallað
um menningarsamskipti og lagt til
að námsmönnum og listamönnum
yrðu veittir styrkir til dvalar í ein-
hyerju hinna landanna. Ferðir ung-
menna báru einnig á góma og hvatt
var til að greitt yrði fyrir ferðaiögum
ungs fólks á milli landanna.
Umtalsverður tími fundarins fór í
að ræða hvernig tryggja mætti fram-
gang tillagna þingmannaráðsins í
þingum viðkomandi Ianda og innan
ríkisstjórnanna. Var niðurstaðan sú,
að ráðið samþykkti, að allar tiilögur
þess yrði kynntar á þingum landanna
og þannig reynt að tryggja að þær
yrðu að veruleika.
f Vestnorræna þingmannaráðinu
eiga sæti þingmenn frá grænlensku
og færeysku landstjórnunum og Al-
þingi. A fundum ráðsins er fjallað
um sameiginleg áhuga-og hags-
munamál landanna þriggja, en ráðið
gerir tillögur til stjórnvalda í marg-
víslegum málaflokkum. Fundir í
ráðinu eru haldnir árlega.
Núverandi formaður Vestnorræna
þingmannaráðsins er Preben Lange,
landsþingmaður í Grænlandi, en for-
maður Islandsdeildar er Friðjón
Þórðarson, alþingismaður. -gs
Hugbúnaöur:
ISAL vill íslenskt
íslenska Álfélagið hf. hefur gert
samning við hugbúnaðarfyrirtækið
TölvuMyndir hf. í Reykjavík um
að hanna hugbúnað fyrir fram-
leiðsluáætlanir steypuskála álvers-
ins, ásamt tengingum við tölvukerfi
rafgreiningar og rannsóknastofu
fyrirtækisins. Tillögur Tölvu-
Mynda hf. uppfylltu mun betur
kröfur ISAL en þær lausnir sem
boðnar voru af hálfu sérhæfðs
bandarísks fyrirtækis, sem einnig
var leitað til.
Óhætt er aðsegja, að samningur-
inn taki til stórs verks á íslenskan
mælivarða.
HJ OLAGRAFAN
SEM
SKARAR FRAMÚR
BUNADARDEILD
ARMULA3 REYKJAVIK SlMI 38900
Industríal
Stöð 2 í það heilaga
Eins og kunnugt er var hresst upp
á guðshúsið í Viðey jafnhliða við-
gerðum á Viðeyjarstofu. Nú þykir
fínast af öllu fínu að sigla út í Viðey
á góðviðrisdögum og ganga upp að
altari í kirkjunni til að staðfesta
hjúskaparsáttmála.
Mikið verður um dýrðir í Viðeyj-
arkirkju í dag þegar landsþekkt
andlit verða pússuð þar saman í
hjónaband. Brúðguminn heitir Þórir
Guðmundsson en brúðurin Adda
Steina Björnsdóttir. Bæði eru þau
fréttamenn á Stöð 2.
Um lcið og dropateljari gratúlcrar
er himnafaðirinn beðinn um spegil-
sléttan haffíöt, þannig að brúðhjónin
megi ganga án teljandi sjóriðu upp
að altari Guðs.
Veislugestir duttu
í sjóinn
Dropateljara hafa borist fregnir af
miklu samkvæmi í Viðey þar sem
hóað var saman útvöldum stórmenn-
um sem voru að skapi borgarein-
valdsins Davíðs að kvöldi opnunar-
hátíðar Viðeyjarstofu og Viðeyjar-
kirkju. Mun vel hafa verið veitt í
samkvæminu, en þó ekki hlotist af
nein teljandi vandræði. Þó átti sér
stað óhapp þegar búið var að ferja
einn hóp veislugesta frá Viðey og
inn í Sundahöfn. Tveir háttsettir
embættismenn borgarinnar tóku tal
saman á flotbryggjunni sem þarna er
og fór vel á með þeim. Hyggst þá
annar styðja sig við bátinn sem flutt
hafði þá yfir, en svo óheppilega vildi
til að báturinn var þá farinn út ■
Viðey til að ná í annan hóp veislu-
gesta. Skipti engum togum að hann
riðaði til falls og ætlaði þá að grípa í
hinn embættismanninn og ekki vildi
betur til en að báðir duttu í sjóinn.
Ekki varð spariklæddum embættis-
mönnunum meint af volkinu en
sagan segir að enginn reykvískur
leigubflstjóri hafí viljað taka þá upp
1 °g því hafi þeir farið heim í
sendiferðabfl.
Flísin og frumskógurinn
DV birtir eina af untvöndunar-
greinum sínum í fyrradag
í dálki blaðsins „Sandkorn.“ Að
þessu sinni er það blaðamaðurinn
Jónas Fr. Jónsson sent agnúast út í
Tímann og Ólaf Sigurðsson frétta-
mann ríkissjónvarpssins.
Fyrst sakar Jónas Tímann um að
skrífa íþróttafréttir eftir ríkisútvarp-
inu og síðar í „Sandkorni“ sakar
hann Ólaf Sigurðsson um að gera
upp á milli fjölmiðla í þætti sem
hann stjórnaði um efnahagsmál.
Skal nú engan undra þó Ólafur hafí
gert það þar sent DV var annar
miöillinn.
Það er hinsvegar nokkuð athygl-
isvert að ein af fáum fréttum DV frá
í fyrradag skuli hafa verið úrdráttur
úr annarri af forsíðufréttum okkar
frá sama degi, án þess að getið sé
hvaðan fréttin sé upprunnin. En það
var einmitt þessi sami Jónas er tók
úrdráttinn úr frétt Tímans. Svo virð-
ist því sem Jónas þessi hafí tekið
eftir flísum í augum náunga sinna en
sjái ekki frumskóginn í eigin auga.
Sjálfsagt fylgir þcssi umþóttunarþörf
nafninu.