Tíminn - 27.08.1988, Qupperneq 19
1
Laugardagur 27. ágúst1988
Tíminn '31"
Varð ríkur af að beygja skeiðar
Hver man ekki eftir Uri Geller,
sem öll blöð voru full af fyrir
nokkrum árum, af því hann gat
beygt skeiðar og stöðvað klukkur
með hugarorkunni einni? Margir
kölluðu hann loddara og hann var
rannsakaður á virtum stofnunum
en aldrei var sannað að brögð væru
í tafli.
Hvað um það, Geller ferðaðist
um heiminn og beygði skeiðar og
varð vellríkur af. Nú er hann sestur
að í Englandi og hefur fleiri járn í
eldinum. Til dæmis hefur hann vel
upp úr því að benda námufyrir-
tækjum á vænlegustu blettina til að
grafa á og einnig skrifar hann
bækur.
Konan hans heitir Hanna og þau
eiga tvö börn, Daniel 7 ára og
Natalie 5 ára. Þar til fyrir tveimur
árum bjó fjölskyldan til skiptist á
þeim 5 heimilum sem hún átti
víðsvegar um heiminn, en þá fór
Gellert að ráði ættingja sína og
settist til fulls að á Englandi.
- Því var eitt sinn spáð fyrir mér
að framtíðarheimili mitt væri hvítt
hús með súlum, segir Geller. - Því
varð ég hissa þegar eina húsið sem
111
111
ég varð verulega hrifinn af var í
bandarískum nýlendustíl, líklega
eina slíka húsið á öllu Englandi.
Það er í Berkshire og landareignin
liggur að Thamesá.
Uri og Hanna sáu sjálf um allar
innréttingar og keyptu húsgögnin
og allt sjálf. Þarna eru hlutir úr
dýrustu efnum, marmara, kín-
versku silki og nefna má borðstofu-
stóla með setum úr mótuðu gleri
eftir frægan listamann. Mikið er
um spegla og gamla vasa og þau
létu smíða sérstaklega fyrir sig
svartan leðursófa, 7 metra langan.
Geller er ákáfur líkamsræktandi
og hefur sérstakt herbergi bara til
þess. Hann skrifar gjarnan á þrek-
hjólinu og þar fara líka öll símtöl
fram í sambandi við vinnu.
Þegar talið berst að bognum og
snúnum hnífapörum, fer Geller
fram í eldhús og dregur fram
hnífapörin sem fjölskyldan notar.
- Eg lét gera þessi sérstaklega í
Sviss. Þau eru úr bronsi og mjög
hörðu, ryðfríu stáli segir hann. -
Það þýðir ekki fyrir mig að reyna
að beygja þau.
Ólöglegar nærbuxur
Uri Geller og fjölskylda hans við hvíta súluhúsið.
Geller-hjónin með sérsmíðuðu hnífapörin sem ekki er hægt að beygja.
Nicholas nokkur
Graham, framleiðandi
nærbuxna í San Fran-
cisco, varð nýlega 850
pörum af nærbuxum
fátækari þegar fulltrúar
bandarísku leyniþjón-
ustunnar létu greipar
sópa um framleiðsluna.
Umræddar nærbux-
ur voru sem sé skreytt-
ar með áprentuðum
500 dollara seðlum í
réttri stærð, nokkrum
þúsundum dollara á
hverju pari.
Svo vill til að bannað
er með lögum í Banda-
ríkjunum að nota doll-
ara í réttri stærð í öðr-
um tilgangi en sem
gjaldmiðil. Ef fólk vill
skreyta eitthvað með
seðlamyndum, verða
þær að vera að minnsta
kosti 75% minni en
raunverulegur seðill
eða 150% stærri.
Nicholas, sem á
meðfylgjandi mynd er
sjálfur klæddur pari af
buxunum umdeildu
tapar nokkru á þessu
uppátæki sínu því auk
þess sem hann þarf að
greiða sekt hefur leyni-
þjónustan tilkynnt að
fram fari nærbuxna-
brenna á hennar
vegum.
Ólympísk rödd
Söngvarinn Engelbert Humper-
dinck hefur nú verið valinn til að
syngja á setningarhátíð Ólympíu-
leikanna í Seoul í haust. Talsmaður
framkvæmdastjórnar leikanna lét
hafa eftir sér að ef til vill þætti
Aldrei fyrr og varla síðar hefur
Engelbert jafn marga áheyrendur.
einhverjum þetta val skrýtið þegar
stórstjörnur heimsins hafa hver
um aðra þvera reynt að komast í
þetta. Hann skýrir málið. - Kór-
eubúar blátt áfram elska lag
Humperdincks frá 1967 „Please
Release Me“. Talið er að þrír
milljarðar jarðarbúa geti átt mögu-
leika á að sjá þessa margumræddu
setningarathöfn.
Caine flytur heim
1 myndinni „Alfie“ sem flestir
kannast við ieikur Michael Caine
kvennabósa af svæsnustu gerð,
en utan vinnu lítur hann ekki við
öðrum konum en sinni heittelsk-
uðu Shakiru. Þau hafa nú verið gift
í ein 15 ár og það er ekki daglegt
brauð hjá kvikmyndaleikurum fyr-
ir vestan haf.
Michael Caine, sem nú er 54 ára,
hét upprunalega Maiírice Mickle-
white og ólst upp við þröngan kost
í London. Það var nánast tilviljun
að hann gerðist leikari og áratug
eftir að hann lék í fyrstu mynd
sinni, fór allt að ganga honum í
haginn. Hann varð sem sagt heims-
frægur fyrir leik sinn í Alfie árið
1966 og var tilnefndur til Óskars
fyrir frammistöðu sína þar.
Michael kvæntist leikkonunni
Patriciu Haines árið 1955 og þau
eignuðust dóttur saman en hjóna-
bandið varði ekki nema tvö ár.
Caine sór að kvænast aldrei framar
en forlögin ætluðu sér annað með
hann.
Við tökur á mynd um mann sem
vildi verða kóngur hittust þau
Shakira í fyrsta sinn. Hún var
sýningarstúlka og lék hina dular-
fullu Roxanne.
- Ég vissi strax að Shakira var
kona við mitt hæfi, segir hann. -
Hún hefur allt til að bera, gáfur og
glæsileika og er auk þess blíðlynd
og notarleg manneskja. Hann er
ekki óánægður með að Shakira er
hætt að leika. Þrátt fyrir það hefur
hún nóg að starfa, meðal annars
við fatahönnun, en samt er hún
mikið heima með dóttur þeirra
Natösju sem er 13 ára.
Caine-hjónin hafa lengst af búið
í Hollywood og Los Angeles vegna
hárra skatta á Englandi en nú eru
þau nýbúin að kaupa sér hús við
Thamesá heima.
- Ég fann hve Michael saknaði
Englands alltaf þegar hann horfði
á breskar landslagsmyndir í sjón-
varpinu, segir Shakira. - Loks var
hann orðinn svo illa haldinn að við
urðum að taka áhættuna á að flytja
heim.