Tíminn - 15.10.1991, Síða 15
Þriðjudagur 15. október 1991 Tíminn 15
ÍÞRÓTTIR
Körfuknattleikur — Úrvalsdeild:
Haukar réðu ekki við Krebbs
— Grindvíkingar unnu öruggan sigur á Haukum 74-90
VALUR GERÐI 46 STIG
GEGN NJARÐVIKINGUM
VaJorlngimundarson, fymrutn lcik- Leikuritu» var spennandi lengst af. engan veginn á strik.
maður með Njarðvíkingum, sem nú Helsti munurinn á iiðunum er hve Stigin Tmdastóll: Valur Ingimund-
hin síðari ár hefur leikið með h'ði miklu meiri hreidd er í Uði íslands- arson 46, Kristinn Baidvinsson 13,
Tindastóis frá Sauðárkróki í úrvals- meistara Njarövödnga. Þeir sðkn- Karl Jónsson 8, Haraidur Leifsson
deildinni í körfuknattieik, reyndist uðu þó Teits Öriygssonar í þessum 4, Einar Einarsson 4 og Ivan Jonas
shmm gömiu féiögum erfiður á leik, en hann var veikur. Atkvæða- 3. Njarðvík: ísak Tómasson 28,
sunnudaghui, er iiðin mættust á mestír Njarðvíkinga voru ísak Tóm- Ronday Robinson 18, Jóhannes
Sauðárkróki. Valur var óstöðvandi asson og Ronday Robinson, en auk KristbjÖrnsson 8, Kristinn Einars-
ogskoraði46stigíieiknumeðatæp Vals Í Uði norðanmanna var Kristinn son 8, Eriðrik Ragnarsson 6 og
60% stiga líðs síns, sem mátti þoia Baldvinsson I aðalhiutverid. Athygii Hreiðar Hreiðarsson 2.
nauman ósigur, 78-86. vakti að Tékkinn Ivan Jonas uáði sér BL
Grindvfidngar komu, sáu og sigruðu á laugardaginn, er þeir mættu
Haukum í úrvalsdeildinni í körfuknattleik í íþróttahúsinu við
Strandgötu í Hafnarfirði. Gríndvfidngar réðu ferðinni frá fyrstu
mínútu og unnu öruggan sigur, 74-90. Sá sigur var þó full stór,
miðað við gang leiksins.
Gestimir voru komnir með 10 stiga
forskot eftir nokkurra mínútna leik,
8-18 og þennan mun náðu leikmenn
Hauka ekki að brúa. Minnstur mun-
ur á liðunum var þó 5 stig 23-28. í
leikhléi höfðu Grindvíkingar 6 stig
yfir, 36-42. í síðari hálfleik náðu
Haukar að minnka muninn í 3 stig,
62-65, en þá skiptu Grindvíkingar
um gír og náðu 12 stiga forystu, 66-
78, með góðum leikkafla. Skömmu
fyrir leikslok var staðan 70-81, en á
lokamínútunum tóku Haukamir
áhættu til að freista þess að jafna, en
Grindvíkingar reyndust vandanum
vaxnir og bónusvítaskot þeirra röt-
uðu rétta leið.
Dan Krebbs var yfirburðamaður á
vellinum í þessum leik, og er hann
greinilega í betri æfingu nú en í
fyrra. Það setti þó ljótan blett á leik
hans, er hann braut gróflega á Pétri
Ingvarssyni og var Krebbs í raun
heppinn að fá ekki reisupassann hjá
dómumm leiksins. Guðmundur
Bragason og Rúnar Ámason áttu
báðir mjög góðan leik og vöktu tvær
þriggja stiga körfur Rúnars athygli.
Þá er ógetið ágætrar frammistöðu
ungs leikmanns í Grindavíkurliðinu,
Bergs Hinrikssonar, en hann átti
skínandi góðan leik; efnilegur leik-
maður þar á ferð.
Hjá Haukum vakti athygli að
Bandaríkjamaðurinn Mike Dizaar
náði sér ekki á strik. Pétur Ingvars-
son og ívar Ásgrímsson vom bestir
hjá Haukum að þessu sinni, en Jón
Öm Guðmundsson var nokkuð frá
sínu besta. Jón Amar Ingvarsson átti
ágætan leik, en fékk sfna 4. villu
snemma í síðari hálfleik og lék lítið
eftir það. Hann fór síðan út af með 5
villur undir lokin, ásamt þeim ívari
Ásgrímssyni og Eggert Garðarssyni.
„Það var mjög gott að vinna þennan
leik eftir erfiðan leik gegn Þór um
síðustu helgi. Það gekk vel í dag, en
við verðum að bíða og sjá til með
framhaldið. Við ætlum okkur í úr-
slitakeppnina og þótt okkur sé ekki
spáð sæti þar, þá breytir það engu.
Síðustu tvö ár hefur Grindavíkurlið-
inu ekki verið spáð sæti þar, en raun-
in hefur nú orðið önnur. Riðillinn er
mjög erfiður og í raun ómögulegt að
segja hvernig þetta fer,“ sagði Gunn-
ar Þorvarðarson, þjálfari Grindvík-
inga, eftir sigurinn á Haukum.
IR-ingar unnu
nauman sigur
Keppni í 1. deild karia og kvenna
hófst um helgina. Á föstudaginn léku
Skagamenn gegn Hettí frá Egilsstöð-
um á Akranesi, og sigruðu heima-
menn 87- 71.
Bandaríkjamaðurinn Eric Rombach
var stigahæstur Akumesinga með 29
stig, en þeir Egill Fjeldsted og Jóhann
Guðmundsson gerðu 16 stig hvor.
Fyrir Hött gerði Sam Graham, sem er
Bandaríkjamaður, 36 stig, en Kristján
Rafnsson 22.
Á laugardag lék Höttur gegn ÍS og
tapaði öðm sinni, nú í Hagaskóla 73-
64. Sam Graham fór á kostum í Ieikn-
um og gerði 45 stig; frábær leikmaður
þar á ferð. Kristián Rafnsson gerði 12
stig. f jöfnu liði IS var Páll Amar stiga-
hæstur með 16 stig.
Breiðabliksmenn mættu nýliðunum í
Keilufélagi Reykjavíkur á laugardag og
var sá leikur ójafn. Breiðablik hafði
mikla yfirburði og sigraði 43- 99.
Bandaríkjamaður þeirra Breiðabliks-
manna var atkvæðamikill, en hjá þeim
Keilufélagsmönnum var Broddi Krist-
insson sterkastur.
Loks mættust Reynir og ÍR í Sand-
gerði á sunnudag. Reynismenn höfðu
undirtökin framan af, vom mest yfir
12 stig 34-22 í fyrri hálfleik, en ÍR-ing-
um tókst að komast yfir fyrir hlé 50-
53. Mest náðu ÍR-ingar 8 stiga forystu
í síðari hálfleik, en Reynismönnum
tókst að minnka muninn í 3 stig fyrir
leikslok, en þeir gerðu 5 þriggja stiga
körfur á síðustu 5 mín. leiksins.
Bandaríkjamaðurinn Larry Hotaling,
fyrrum leikmaður Hauka, var stiga-
hæstur í liði Reynis með 35 stig, en
Sveinn H. Gíslason átti einnig góðan
leik og skoraði 28 stig. Jóhannes
Sveinsson var stigahæstur í jöfnu liði
ÍR með 22 stig.
í 1. deild kvenna vann Keflavík stóran
sigur á KR 36-97 og Haukar unnu
Grindavík 43-31. BL
Ólafur Rafnsson, þjálfari Hauka,
hafði þetta að segja eftir leikinn: „Ég
átti von á þessu. Grindvíkingar hafa
verið í lægð að undanförnu, en við
áttum toppleik um síðustu helgi. í
dag héldum við að stemmningin
kæmi af sjálfú sér og því fór sem fór.
Annars elska ég vanmatið, sem
margir hafa á okkur, og það kemur
okkur til góða,“ sagði Ólafúr.
Stigin Haukar: Pétur Ingvarsson
15, Jón Arnar Ingvarsson 14, Mike
Dizaar 14, ívar Ásgrímsson 13, Jón
Örn Guðmundsson 6, Henning
Henningsson 6, Eggert Garðarsson
4 og Reynir Kristjánsson 2. Grinda-
vík: Dan Krebbs 18, Guðmundur
Bragason 16, Rúnar Árnason 14,
Bergur Hinriksson 14, Pálmar Sig-
urðsson 10, Hjálmar Hallgrímsson 5
og Marel Guðlaugsson 3.
Leikinn dæmdu þeir Kristinn Al-
bertsson og Kristján Möller og var
frammistaða þeirra þokkaleg. BL
Dæmigerðar myndir úr leik
Hauka og Grindvíkinga. Dan
Krebbs og Guðmundur Braga-
son eiga greiða leið að körfu
Hauka án þess að vamarmenn
Hauka komi vörnum við.
Meistararnir
unnu nýliðana
með 30 stigum
íslandsmeistarar Njarðvíkmga sigr-
uðu nýliða Skailagríms frá Borgar-
nesi með 30 stiga mun í Njarðvík á
fostudagskvöld, 93-63.
f leikhléi var staðan 52-37 Njarðvík-
ingum í vil.
Stigin Njarðvík: Teitur örlygsson 28,
Ronday Robinson 14, Kristinn Einars-
son 12, Jóhannes Kristbjömsson 11,
Friðrik Ragnarsson 8. Rúnar Jónsson
8, Ástþór Ingason 5, Isak Tómasson 5
og Brynjar Sigurðsson 2. Skallagrím-
ur: Maxim Krupatsjev 19, Eggert
Jónsson 12, Elfar Þórólfsson 10, Birg-
ir Mikaelsson 8, Guðmundur Kr. Guð-
mundsson 8, Hafsteinn Þórisson 4 og
Gunnar Jónsson 2. BL
ÍBK sótti 2 stig
til Akureyrar
Þórsarar, með Bandaríkjamanninn
Michael Ingram fremstan í flokki,
náðu ekki að stöðva Keflvíkinga í leik
liðanna nyrðra á sunnudagskvöid.
Keflvikingar fóru með öruggan sigur
af hólmi, 71-92, eftir að staðan í leik-
hléi var 31-40 gestunum í vil.
Jonathan Bow og Jón Kr. Gíslason
voru í aðalhlutverkum hjá Keflvíking-
um, en Ingram og Sturla örlygsson
hjá Þór.
Stigin Þór: Michael Ingram 28,
Sturla Örlygsson 18, Konráð Óskars-
son 8, Birgir Birgisson 6, Gunnar Ör-
lygsson 5, Björn Sveinsson 4 og Högni
Friðriksson 2. Keflavík: Jonathan Bow
26, Jón Kr. Gíslason 17, Nökkvi Jóns-
son 12, Kristinn Friðriksson 12, Sig-
urður Ingimundarson 11, Brynjar
Harðarson 6, Hjörtur Harðarson 6 og
Júlíus Friðriksson 2. BL
Karl tók af skarið
— Snæfell sigraði Skallagrím
í fyrstu orustu liðanna
Það sannaðist enn einu sinni að
margur er knár þótt hann sé smár, í
leik Skallagríms og Snæfeils í úrvals-
deiidinni í körfuknattleik í Borgar-
nesi á sunnudaginn. Kari Guðlaugs-
son, bakvörður þeirra Snæfellinga,
var heldur betur betri en enginn og
var maðurinn á bak við 69-75 sigur
þeirra í leiknum.
Karl skoraði 8 fyrstu stig liðs síns, og
aftur tók hann af skarið undir lok
leiksins og gerði 8 stig í röð. í leikhléi
hafði Snæfell 16 stiga forskot 23-39.
Skjallagrímsmenn náðu aðeins að
laga stöðuna fyrir leikslok í sínum
fyrsta úrvalsdeildarleik á heimavelli.
Áuk Karls voru þeir Bárður Eyþórsson
og Tim Harvey atkvæðamestir. Hjá
Skallagrími var Sovétmaðurinn Kru-
patsjev yfirburðamaður, en næstir
honum komu þeir Birgir Mikaelsson
og Eggert Jónsson. BL
Kari Guðlaugs: byrjar vel
með Snæfelli. Tlmr.my'ndlrAmlBJama