Tíminn - 06.04.1994, Síða 4
4
fPnttttm
Miövikudagur 6. apríl 1994
STOFNAÐUR 1 7. MARS 191 7
Utgáfufélag: Tímamót hf.
Ritstjóri: jón Kristjánsson
Ritstjórn dg auglýsingar: Stakkholti 4, 105 Reykjavík
Inngangur frá Brautarholti.
Sími: 631600
Símbréf: 16270
Pósthólf 5210, 125 Reykjavík
Setning og umbrot: Tæknideild Tímans
Prentun: Prentsmibja
Frjálsrar fjölmiblunar hf.
Mánaöaráskrift 1400 kr. m/vsk. Verö í lausasölu 125 kr. m/vsk.
Utanríkisviðskipti
íslendinga
í tengslum við þá stöðu, sem upp er komin um
samskipti íslands og Evrópusambandsins í kjölfar
samninga Efta-ríkja um aðild að sambandinu, hafa
umræður um aðild að Nafta skotið upp kollinum.
íslensk utanríkisviðskipti hvíla á þremur megin-
stoðum. Það er Evrópumarkaðurinn, Bandaríkjá-
markaður og viðskipti við Japan. Til þessara
þriggja markaðssvæða fóru árið 1993, 94,1% af út-
flutningi okkar. Þar af fóru 68,9% til Efta- og ES-
ríkjanna, 15,9% til Bandaríkjanna og 9,3% til Jap-
ans.
Af þessum tölum sést að aðild að Nafta nægir
okkur engan veginn ein til þess að tryggja fyllstu
hagkvæmni í utanríkisviðskiptum. Það verður að
vinda bráðan bug ab því að koma okkar málum
gagnvart Evrópusambandinu í farveg, í samræmi
við þær samþykktir um tvíhliða viðræður sem fyr-
ir liggja þar um. Hins vegar er full ástæða til að
meta stöðuna gagnvart markaði í Norður-Amer-
íku. Þar kemur til greina fríverslunarsamningur
við Bandaríkin eða að leitað sé eftir slíkum samn-
ingi við Nafta. Ljóst er að hagsmunirnir eru mest-
ir á Bandaríkjamarkaði, en furðu lítið hefur verið
um viðskipti við Kanada, þótt í því landi eigum
við ef til vill meiri tengsl en í nokkru öðru og þar
séu fleiri af íslensku bergi brotnir en í nokkru öðru
ríki.
Fótfesta í viðskiptum með fríverslunarsamning-
um ættu að gera Island aðgengilegri kost fyrir er-
lenda fjárfestingu heldur en landið hefur verið. Að
slíku máli verður að huga. Ein ástæðan fyrir því að
atvinnuástand slaknar stöðugt hérlendis er sú ab
fjárfestingar eru í lágmarki. Skuldastaða þjóbar-
innar út á við þrengir möguleikana til lántöku er-
lendis. Þess vegna verður að huga að því hvernig
hægt er að laða erlent áhættufjármagn að landinu.
Það er staöreynd að fjármagn flæðir yfir landa-
mæri og milli heimsálfa, og hin einstöku ríki
leggja á það mikla áherslu að laða að sér fjármagn
og þau umsvif sem því fylgja. Vib íslendingar verð-
um að metá stöðu okkar í þeim slag ekki síður en á
öðrum sviöum.
Þriðja markabssvæði okkar íslendinga er Japan,
og ýmsir líta nú með vaxandi áhuga til Kína þar
sem hagvöxtur er mikill um þessar mundir. Fréttir
berast af því að utanríkisráðherra hafi í heimsókn
sinni í Kína tilkynnt um áform um að opna þar
sendiráð. Þessi ákvörðun kemur á óvart, þar sem
um árabil hefur verið rætt um möguleika á sendi-
ráði í Japan, en ekki verið ráðist í það, og aðeins
rætt um sendifulltrúa í Kína. Tímanum er ekki
kunnugt um hvað liggur ab baki yfirlýsingum ut-
anríkisráðherra, en tekur undir þá stefnu að ís-
lendingar verði að styrkja sig í samskiptum við As-
íulöndin.
Hins vegar veldur það áhyggjum hvað abgerðir
íslendinga í utanríkismálum virbast tilviljana-
kenndar um þessar mundir og einkennast af slöku
samráði stjórnarflokkanna. Ef íslensk stjórnvöld
vilja láta taka mark á sér á alþjóðavettvangi, meg-
um við síst vib fálmkenndum aðgerðum og yfirlýs-
ingum varðandi utanríkismál.
Forza Reykjavík!
Forza Italia er nafn á stjómmála-
afli sem átt hefur velgengni aö
fagna á Ítalíu upp á síökastiö.
Þetta stjómmálaafl er hinn hægri-
sinnaöi flokkur fjölmiölakóngs-
ins Silvios Berlusconi, sem vann
mikinn sigur í þingkosningunum
á Italíu á dögunum. Óvíst er þó
hvort sá sigur muni duga honum
til aö komast til valda, því óein-
ing er uppi milli flokkanna sem
vom meö honum í kosninga-
bandalagi. Svokallaö Noröur-
bandalag hefur alfarið hafnab því
aö vinna meö nýfasistum, þó svo
aö Forza Italia hafi ekkert á móti
þvi.
Hér heima á íslandi hafa menn
fylgst meö velgengni fjölmiöla-
kóngsins og fundist talsvert til
hennar koma, þó einstaka gagn-
rýnisraddir hafi heyrst um að fjöl-
skyldupólitík fjölmiölakóngsins
beri nokkum keim af fjölskyldu-
pólitík mafíunnar.
Misjafnlega hrifnæmir
En eins og svo oft er það þó vel-
gengnin sem mestu skiptir, og
Berlusconi hefur notið velgengni
fram til þessa. Hér heima á Islandi
hafa menn veriö misjafnlega hrif-
næmir fyrir Forza Italia, en þó
sker einri flokkur sig úr hvaö
þetta varöar. Þetta er Sjálfstæðis-
flokkurinn, sem á síöustu vikum
hefur sérhæft sig í því að líkja eft-
ir öllum þeim stjómmálaöflum
sem gengiö hefur vel.
Eins og landsmenn rekur eflaust
minni til, fómuöu sjálfstæðis-
menn flestum borgarfulltrúum
sínum í von um að fá betri við-
tökur hjá kjósendum. Þeir fóm-
uöu stefnumálum sínum til
margra ára og em nú búnir að
koma sér upp eftirlíkingu af
helstu stefnumálum R-listans.
Þeir hafa gengið svo langt að af-
GARRI
neita sínum helstu afreksverkum
á kjörtímabilinu, s.s. í málefnum
Fæðingarheimilisins og SVR, í
von um aö þeir geti orðið vinsæl-
ir eins og R-listinn. Síöast en ekki
síst fórnuöu þeir borgarstjóra sín-
um til að rýma til fyrir „mýkri"
manni, til þess aö líkja eftir R-list-
anum sem er svo vinsæll með
sína manneskjulegu ásýnd.
Allt fengiö aö láni
Garri hefur ábur bent á þaö varö-
andi D-listann, hversu varasamt
þaö getur verið aö velja sér hraö-
soðna eftirlíkingu þegar frum-
myndin stendur mönnum til
boða. Enn á ný kemur fram þessi
tilhneiging Sjáifstæöisflokksins til
aö líkja eftir þeim sem vel gengur.
Það er bókstaflega ekkert ekta viö
frambob D-listans, allt e'r fengiö
aö láni og með öllum tiltækum
ráðum reynt að líkja eftir þeim
sem sjálfstæðismenn telja að hafi
tekist að vinna hylli kjósenda.
Ekki einu sinni slagorö Sjálfstæb-
isflokksins í þessari kosningabar-
áttu er þeirra eigiö. Borgarstjórinn
nýi sendi út bækling rétt fyrir
páska til að kynna nýja D-listann
og sanna að þar væri nú sama og
ekkert eftir af gamla borgarfull-
trúadótinu, sem stjórnaö hefur
borginni á kjörtímabilinu. Og
nýja slagoröiö, sem kynnt var,
hljómar sjálfsagt kunnuglega fyrir
þá sem kunna ítölsku. „Áfram
Reykjavík" er hiö frumlega slag-
orö, en á ítölsku hljómar þaö
„Forza Reykjavík". „Áfram Ítalía"
er stjómmálaafl sem gekk vel í
kosningum á Ítalíu. Samkvæmt
eftirhermuhugmyndum og
barnslegum þjóðlífsskilningi
reykviskra sjálfstæðismanna er
um ab gera aö gá hvort „Áfram
Rekjavík" muni þá ekki virka meö
sama hætti!
Fólk án frumleika getur oröiö ab
ágætis embættismönnum, þar
sem rútínan og endurtekningin
skapar festu. En fólk án ffumleika
getur aldrei tekib af skarið og bú-
iö til betra ástand úr þeirri lá-
deyðu sem ríkir í Reykjavík í dag.
Bergmálið getur nefnilega aldrei
komið í staö söngvarans.
Gani
Björk er
Björk
Gfrls ín the Band
jjýiiORC cr ACp^fsmi curr* R*, w;aííast /
Wouscs* smgst and a\her Imlíttanal
8 trappíngs öjf í<aj«a.U? jKtp staní. Womön
»re ?he new, bráwny-fotvc in pop, leadtng
Úie group»maklng the Uwgjhcst, mo$t, Umo-
vathtf soundte, A sjnnpler
Me*Shzll n&mnOoetto
U2 PhMfí
Thc OiicúgOím ts (li<* currcnf
darling of tit<? nlU',mMh r pnp
stcnc. í-.>f hrr iuncs thúi)
for her rcírcfhingiy mgty taui
aZ&nwívc shihidc i<nvnrd
mcn and romoo«*,
THE CRANBEPBieS
Brasli stnd hnpoUive lcíid
si«gi!f Dc.brcs O'JdotTÍári
pmvídcs ihomébdic híio ihaí
drívcs ths? Jíard-etliiwl-hof !
rnichv -Jovc' ssmg* <:•}' this
popoisir lrí«h gr<:«»{i,
íkríii hliti., ;í h-d'-iím, n
mhilscr sísu.í » hass
pbyot-"who conld bc
CtKilór? I ivr imrd-edged
í íxoK c.Ivmí! r.n'c, geníiðr
íitid Jm*e coiiccaí m <>k»
heart.
fyrttöíoxrtfí
dw oifm ÍCtíJinid'bom !»ag-
orT strpng suíg h»t thr? terhno
is nd fonk bssckíng \m
JoflyTn-gmwhxsg voíco hstvc
Oi.:.'dchcTá<Smu-c-ci>;i>f.ív>-.
Konur eru skapandi afl í poppheim-
inum og hafa tekiö þar frumkvæð-
ið, segir í síöasta tölublaði Newswe-
ek. Því til staðfestingar eru birtar
myndir og örstuttar umsagnir um
fjórar konur sem skara fram úr að
frumleika í æðislegri veröld popps-
ins. Meðal þeirra er Björk.
Þaö er freistandi að velta því fyrir
sér hvaö gerir Björk svona sérstæöa
í hörðum samkeppnisheimi og í
hverju frami hennar er fólginn. í
sjónvarpsviötali, sem Steinunn Sig-
urðardóttir átti viö tónlistarkonuna
og sent var út s.l. laugardag, situr
helst eftir í manni hve sjálfstæð
Björk er.
Hún þorir að vera hún sjálf og fara
sínar eigin leiöir, mynda sér eigin
skoðanir og tjá þær á sinn bama-
lega og einlæga hátt. Þegar betur er
aö gáð, em svör Bjarkar við spurn-
ingum heimsins gáfulegri og betur
ígmnduð en flestra þeirra sem ein-
lægt em ab viðra álit sitt á öllum
fjandanum, sem manni kemur ekki
við, meb hraðmæltri skrúömælgi.
Björk Guðmundsdóttir ögrar ekki
meö dólgslegri framkomu og ljót-
um munnsöfnuði, eins og margir
popparar telja sér skylt og raunar
takmark. Þaö er í hæsta lagi að hún
vekur áreiti hjá penpíum með því
aö ganga meö bam á öðmm stöð-
um en fólk á ab venjast að konur í
því standi troöi upp og klæða sig aö
eigin smekk, en ékki samkvæmt
forskrift hátískufólks eöa bamings-
manna gítara.
Veraldargengi Bjarkar byggist á
sjálfstæði hennar. Hún er öðm vísi
vegna þess að hún þorir aö nota
góðar gáfur sinar til aö hugsa, skapa
og starfa eftir sínu höfði en ekki
annarra.
Á víbavangi
Þeir eiginleikar em miklu fágætari
en ætla mætti í fljótu bragöi. Múg-
mennskan reynir að steypa alla í
sama mót og em fjölmiðlunin og
skemmtanaiðnaðurinn engin und-
antekning frá þvi.
Misjafnlega hárprúbir popparar
em búnir að lemja sama taktinn og
iðka sömu fettur og brettur í sömu
ljósadýrðinni í 20 ár. Þar hermir
hver eftir öömm og allt er það fyrir
löngu staðnab og gengið sér til húð-
ar. En þab em áheyrendumir líka,
svo að þama leiöir haltur blindan.
Þá em það konumar sem skapa
nýjan hljóm, hversu langlífur sem
hann kann að verða, og er Björk á
meðal þeirra.
Peningar em frelsi, sagöi Björk í
umræddu viðtali og átti þar við fjár-
hagslegt sjálfstæði, og stendur þar
skör framar í skilgTeiningu á mikil-
vægi peninganna en herskarar hag-
fróbra og launþegaforkólfa.
Kvennabaráttan hefur staðið í 100
ár og er enn á byrjunarreit eldhús-
verkanna. Tæknin er yndisleg og
gerir lífib fallegra og betra, ef við
læmm að umgangast hana. Nútím-
inn er bestur allra tíma, ef við hætt-
um ab bölsótast út í hann og gríp-
um góbu tækifærin.
Heimssýn Bjarkar er jákvæð og
eins og annað í fari hennar er hún
sjálfstæð. Hún er ekki bundin skoð-
unum eða kennikerfum annana og
það gæðir hana þeim sjaldgæfa eig-
inleika að vera frjáls.
Björk er ekki landkynning eins og
múgskoðunin vill hafa hana, og
setur enda ísland í sjöunda sætið í
forgangsröð áhugamála sinna, ef
rétt er munab úr samtalsþættinum
við hana.
Satt best að segja hefur undirritað-
ur lítinn áhuga eða skilning á popp-
heiminum og kann lítt að meta
framlag einstaklinga til þeirrar
heimsmyndar og alls þess auglýs-
ingaskmms sem henni þjónar. En
frumleg hugsun Bjarkar og sú
óháða lífssýn, sem hún býr yfir, ger-
ir hana sérstæða og áhugaveröa í
staðlabri veröld.
Vonandi verður hún þab um
ókomna tíð og fer sínar eigin leiðir
og verður aldrei gangandi eða
syngjandi auglýsing fyrir feröa-
mannaútveg eða eitthvab álíka.
Björk er Björk og þab á hún að fá
að vera, svo bamalega sem það
kann að hljóma. OÓ