Réttur - 01.02.1928, Blaðsíða 41
Rjettur]
KOMMÚNISMINN OG BÆNDUR
43
sje þeirra blað, því hann og fylgiblöð hans úti um land,
en eigi önnur blöð samvinnumanna, njóta styrks frá
S. í. S. Enda veit jeg ekki betur, en flestum meðlimum
samivinnufjelaganna sje sendur »Tíminn« og áskrift-
argjaldið oftast skrifað á reikning þeirra í kaupfjelög-
unum. Þessar aðferðir hafa gefist ágætlega.
2. Atlis. Jeg held því fram í grein minni í »Rjetti«,
að leiðtogar Framsóknarflokksins telji búandlýð lands-
ins trú um, að samvinnufjelögin muni færa þeim öll
heimsins gæði upp í hendurnar svo að segja baráttu-
laust. Þetta kallar J. Þ. álygar. Stjettabaráttuna kall-
ar hann verk nokkurra illgjarnra oflátunga, er byrli
»fáfróðum og æstum verkalýð eitur haturs og öfund-
ar«. Hann er andvígur stjettabaráttunni við auðvaldið,
en telur vandamál þjóðfjelagsins leyst með því, að efla
samvinnufélögin. Með öðrum orðum: Hann heldur
fram nákvæmlega þeirri skoðun, er jeg eigna leiðtog-
um Framsóknarflokksins í grein mlnni í »Rjetti«. Rök-
semdir hans falla þannig á eigin bragði.
3. Aths. Og svo brýnir J. Þ. sparnað fyrir bændum
og kallar það fyrirhöfn þeirra. Sparnaður er leiðin út
úr ógöngunum! Þarna sjáið þjer bændur, hjer er yðar
hlutverk í þjóðfjelaginu! Er þetta nú ekki nákvæm-
lega sami tónninn og kveður daglega við úr herbúðum
íhalds og auðvalds? Alþýða manna, sem vart hefir
málungi matar, á að spara, nokkrir útvaldir fjárplógs-
menn og viljalaus verkfæri í hendi þeirra eiga að fara
með stjórnina og fjármálin. Verið ánægðir með kjör
yðar! Hlýðið eigi fortölum þeirra manna, sem hvetja
yður til að berjast fyrir betri kjörum og meiri menn-
ingu!
4. Aths. Þá heldur J. Þ. fram skoðunum um þrpun
samvinnunnar, er jeg hygg að sje nýstárleg nú á dög-
um, að minsta kosti meðal hinna vinnandi stjetta. Hef-
ir hann hjer fjarlægst allmjög bestu foi-vígismenn
þessarar merku hreyfingar. »Tilgangur samvinnunnar