Réttur - 01.02.1928, Blaðsíða 69
Rjettur]
FRA ÓBYGÐUM
71
Kjalvegur liggur upp frá Mælifelli í Skagafirði upp á
Mælifellsdal og eftir honum endilöngum. Síðan er haldiö
suður Haukagilsheiði og í Buga. Þá sveigir vegurinn vest-
ur yfir Þingmannaháls í Galtarárdrög og þaðan með fram
Haugahrauni að Haugum. Milli Galtarárdraga og Hauga
er stór steinn fast við veginn, og heitir hann Lambamanna-
steinn. Uppi á steini þessum og kringum hann eru marg-
ir steinar minni, sem ferðamenn hafa lagt þar sér til far-
arheilla. Frá Haugum liggur vegurinn um neðanverðar
Ásgeirstungur að Ströngukvísl, og er þá farið með fram
Mannabeinavatni að vestan.
Litlasandsvegur liggur upp frá Gilhaga um Gilhagadal
og Litlasand í Buga. Vegur þessi er ekki varðaður, og er
hann sjaldan farinn nú orðið.
Annar vegur liggur upp frá Steiná í Svartárdal í Húna-
vatnssýslu. Vegur þessi heitir Skínandi. Hann liggur suð-
ur hálsinn milli Svartárdals og Blöndudals, Steinárháls,
og síðan suður heiðina fram hjá Kurbrandi og að Galtar-
á. Þaðan er farið fram hæðirnar austan viö Blöndu og á
Kjalveg skaint fyrir utan Hauga. Vegur þessi er allskýr,
en ekki varðaður. Hann er greiöfær og góður. Liggur hann
að mestu um sléttlenda mela og móa, og eru þar víða
hlemmigötur. Upp á Skínanda liggja götur frá Fossum í
Fossadal.
Þegar farið er af Kjalvegi vestur á Stórasand, er sveigt
út af veginum í Galtárdrögum og haldið vestur hæöirnar
að Blöndu, og er hún riðin á Blönduvöðuin, eins og áður
er sagt.
Að gömlu lagi var Kjalvegur talin 26 stunda reið milli
bygða. Var þá talin 4 tíma reiö frá Mælifelli í Buga, en 6
tíma ferð þaðan á Hveravelli. Þetta mundi nú talin þcysi-
reið, því að vegalengdin öll, frá Mælifelli á Hveravelli,
mun vera nálægt 100 km.. Meö sæmilegu ferðalagi má
fara hana á 12—13 stundum.
Vatnahjallavegur liggur upp frá Torfufelli í Eyjafirði
yfir Vatnahjalla og að Eystri-Pollum viö Austari-Jökulsá.