Réttur - 01.02.1928, Blaðsíða 57
Rjettur]
FRA ÓBYGÐUM
59
um er Litlisandur. Um hann lá áður fyr fjölfarinn fjallveg-
ur úr Skagafirði framanverðum í Buga.
Austan við hálsinn norðanverðan er Gilhagadalur,
grunnur fjalldalur og gróðursæll. Hann liggur upp frá Gil-
haga og stefnir til suðvesturs. Nær hann upp að Litlasandi.
Sunnan við dalinn taka »Hraunin« við. Hallar þeim hægt
riiður að brúnum Svartárdals.
Fjöllin norður frá Litlasandi og Gilhagadal liggja að
inestu í heimalöndum, og verður því fátt eitt sagt frá þeim
hér.
Næst fyrir norðan Litlasand er fell það, sem VatnafcII
heitir, en fyrir norðan það Nónfjall. Þá kemur Miðfjall og
síðan langt fjall, hátt og hömrótt, sem heitir Járnhryggur.
Nyrstur og mestur er Mælifcllshnjúkur. Milli hans og Járn-
liryggs er Tröllaskarð. Austan við Mælifellshnjúk og Járn-
lirygg er Hamrahciði, há hlíö og hömrótt, eins og nafnið
bendir til. Hún nær suður undir Gilhagadal.
Vestan við Mælifellshnjúk er Mælifellsdalur, þrörigur
dalur, en grunuur. Vestan við hann er Reykjafjall, en að
austan hálsar og fell, sem liggja suður og vestur frá Mæli-
fellshnjúk. MiIIi hálsa þessara eru tveir litlir dalir, sem
heita Ytri- og Syðri-Kálfadalur. Ytri-Kálfadalurinn ligg-
ur liggur nokkru hærra en hinn, en báðir eru þeir ofar en
Mælifellsdalur, og renna lækir úr þeim niður í Mælifellsá.
Mælifcllsdalur liggur hér um bil í hásuður. Um miðjan
dalinn er lítil bugða til vesturs, og heitir hún Krókur.
Hálsinn austan við bugðu þessa heitir Krókfjall. Það skil-
ur Mælifellsdal og Syðri-Kálfadal. Suður frá Krókfjalli er
Þornwðsfell, allhátt fjall og einkennilegt.
Mælifellsdalur er grösugur og ekki skortir þar hesta-
haga, en heldur er þar slarksamt og blautt undir fæti,
einkum í Króknum. Kjalvegur liggur eftir dalnum, og var
þar áður illfært framan af sumri, en nú hefir vegurinn
verið bættur og má heita góður. Syðst á dalnum er slétt
grund, sem Biskupsflöt heitir. Þar hafa margir áð, þeir
sem Kjalveg hafa farið.