Réttur


Réttur - 01.04.1980, Side 24

Réttur - 01.04.1980, Side 24
Magnús Kjartansson ur að ég á auðveklara með að kætast en reiðast. Sagan er hins vegar dæmigerð um ástand sem upp kom í þjóðfélaginu þeg- ar svokallað kalt stríð hófst í veröldinni að síðustu heimsstyrjöld lokinni. Valda- menn létu það boð út ganga að þjóðinni skyldi skipt í tvær gagnstæðar fylkingar, annarsvegar illa kommúnista og hinvegar Ijúfa lýðræðissinna og skyldi unnið að því að bægja illum kommúnistum úr öll- um áhrifastöðum í þjóðfélaginu, á sviði stjórnmála, verklýðsmála, íþróttamála og raunar á öllum sviðum sem félagafrelsi hefur leitt af sér. Þessi stefnumörkun hafði einna altæknst áhrif innan samtaka launafólks. Þar var tekist á um allt á flokkspólitískum forsendum, stjórnar- kjör í félögunum, kjör á landsþing, ákvarðanir um virka kjarabaráttu, kröf- ur þær sem fram skyldu bornar o.s.frv. Stjórnmálaflokkarnir allir tóku mjög ákafan hátt í þessari baráttu, réðu sér starfsmenn og komu á laggirnar stofnun- um sem ástunduðu pólitíska smala- mennsku, hvar og hvenær sem þess var talin þörf. Fundir í félögum launamanna voru fjölsóttir og umræður jafnan mikl- ar og heitar. En þótt til þessara átaka væri stofnað á mjög annarlegum forsendum snerust þau smátt og smátt í jákvætt fyrirbæri. Mönnum varð ljóst að flokksstimpillinn einn nægði ekki, heldur yrði að takast á um málefni. Hinar andstæðu fylkingar yrðu að vegast á um markmið en láta ekki nægja að draga menn í dilka eftir eyrnamerkingum. Þar með breyttust nei- kvæð átiik i jákvæða baráttn sem skilaði miklum árangri. Eg nefni atvinnuleysis- tryggingasjóð, sem því miður hefur orðið að nota allt of mikið, þótt sjóðurinn hafi í raun verið skertur stórlega með annar- legum áböggum og óðaverðbólgu. Ég nefni fimm daga vinnuviku og 40 starfs- stundir, sem mjög margir njóta, þótt allt of stórir hópar sjái enn ekki út úr aug- unum vegna þrældóms. Ég nefni leng- ingu orlofs, og margt annað gæti ég talið sem breytti gerð þjóðfélagsins í átt til aukins jafnréttis í þágu allra. Peningafjöldi og prósentur Sú kom tíð að menn urðu lúnir á sí- felldu stríði innan samtaka launafólks, því að þessi eilífa innri l)arátta lagðist á þá sem kjömir voru til forustu af ofur- þunga, einnig á þá örfáu menn sem snauð samtök gátu ráðið í störf. Síðan hefur þessum innri átökum linnt að mjög veru- legu leyti, aðferðin verið sú að leggja 88

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.