Réttur - 01.04.1980, Síða 43
ísland hefði samþykkt að verða að eilífu
hluti af ,,det samlede danske Rige."1
eftir að Jón Sigurðsson hafði í allri frels-
isbaráttu vorri einmitt byggt sjálfstæðis-
kröfur okkar á því, að við hefðum með
Gamla sáttmála aðeins samið um erlend-
an konung yfir íslandi, aldrei um inn-
limun í annað ríki. —■ Svo langt ganga
þessir amerískt hugsandi innlimunar-
menn á Alþingi að þeir álíta það svik að
hafa ekki innlimað ísland í „veldi Dana-
konungs" 1908. (Sbr. skrif eins slíks í
Helgarpóstinum 8. febr. 1980, er hann
er að ráðast á Gunnar Thoroddsen: ,,Föð-
urbróðir hans var Skúli Thoroddsen,
sem sveik félaga sína á örlagastundu í
Kaupmannahöfn 1908.“
Eðlilega álíta slíkir menn það óhæfu
öfgamanna að hafa stofnað lýðveldi á
íslandi 1944, — í stað þess að láta dansk-
an konung vera æðsta mann landsins sem
fyrr. — Máske hefði það verið dýrleg hug-
sjón slíkra manna að verða „Kgl. minist-
er í det samlede danske Rige.“
Hjá þessum ofstækisfulla landráðalýð
eru það orðin svik við ísland að ofurselja
það ekki og innlima í erlent ríki. — Ekki
að undra þótt slíkir menn séu æstir í að
selja erlendum auðfélögum bestu auð-
lindir íslands til frambúðar.
-k
Hve djúpt mun þessi lýður sökkva ef
svo heldur fram sem nú horfir með við-
leitni til þess að níða íslenska sjálfstæðis-
baráttu og sverta minningu þeirra, er
háðu hana.
Þeir hafa enn sem komið er kinokað
sér við að svívirða Jón Sigurðsson fyrir
að mótmæla slitum þjóðfundarins, — en
hvemig skyldu menn með svona hugar-
far liafa brugðist við er sjálfur fulltrúi
konungsins, Trampe greifi hefði slitið
fundi þeim, til þess að hindra einhverja
„öfgamenn", máske undir áhrifum Febr-
úrbyltingarinnar, í að bera fram „róttækt
stjórnarskrárfrumvarp“ ,sem alls ekki var
í anda „miðlunarmanna"?
Skyldu þeir ekki hafa sagt: Allt er gott,
sem gerið þér, herra greifi, í nafni kon-
ungs, — og jafnvel bent greifanum á að
handataka vissa „öfgamenn", er mót-
mæla vildu, því blessaður danski herinn
væri við hendina og hægast að flytja slíka
„mótmælamenn“ af landi brott?
Hve langt skyldi vera þangað til svona
menn leggja til að setja myndina af
Trampe greifa inn í neðri deildar salinn
þar sem mynd mótmælamannsins Jóns
Sigurðssonar er nú — og hola henni nið-
ur annars staðar, — og flytja standmynd
Kristjáns 9. niður á Austurvöll í stað
styttunnar er þar stendur nú af „den for-
bandede vSlesvig-Holsteiner", — svo not-
uð séu skammaryrði danskra innlimunar-
blaða um uppreisnarmanninn gegn inn-
limun íslands í danska ríkið?
Eða eru þessir aumingjar hræddir við
að ganga svona langt, óttast þeir um at-
kvæðin, ef svo færi, af því ekki sé búið
að sökkva þjóðinni nógu djúpt?
Óttast þeir að hún kynni að rísa upp,
af því lijarta hennar væri enn óspillt, þó
tekist hefði um tíma að formyrkva huga
all margra?
SKÝRINGAR:
1) I. gr. uppkastsins endar með þeim orðum að ís-
land „danner saaledes sammen mcd Danmark en
Statsforlnndelse, det samlede danske Rige“ (á ísl.:
Danmörk og ísland cru því í ríkjasambandi, er
nefnist veldi Danakonungs").
Hér er ekki rætt, að utanríkismál og hervamir
voru óuppsegjanleg í höndum Dana, né lleiri slór-
hneyksli í sambandi við „uppkastið".
107