Morgunblaðið - 26.11.2006, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 26.11.2006, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2006 31 Fimmtudaginn 30. nóvember standa Rannsóknafljónusta Háskóla Íslands og Einkaleyfastofan fyrir hádegisver›arfundi um einkaleyfi og hagn‡tingu rannsóknani›ursta›na hjá opinberum stofnunum. A›alfyrirlesari er Suni á Dalbø sem var umsjónarma›ur einka- leyfamála hjá Álaborgarháskóla frá 2001-2006. Hann mun fjalla um mikilvægi einkaleyfa fyrir háskóla og a›rar opinberar rann- sóknastofnanir og mi›la af reynslu sinni vi› a› byggja upp flessa starfsemi hjá Álaborgarháskóla. Fyrirlesturinn ver›ur í Tæknigar›i, Dunhaga 5, kl. 12.00 og ver›ur bo›i› upp á léttan hádegismat. A›gangur er ókeypis, en flátttakendur flurfa a› skrá sig í síma 525 4900 e›a me› tölvupósti á astridur@hi.is Stærsta málið Sækir að þér löngun til að láta að þér kveða í stjórnmálum? Þú varst reyndar að stíga lítið skref í þá átt …. „Ja, ég fór í framboð til sveit- arstjórnar í Rangárþingi og sit þar nú sem fyrsti varamaður. Ástæðan er sú hversu gaman mér finnst að vinna með fólkinu í sveitinni fyrir austan. Ég hrífst af þeirri sjálfsbjarg- arviðleitni sem einkennir líf þess og það hefur haft mikil áhrif á mig. Þeg- ar drífandi fólk í mínum ágæta Sjálf- stæðisflokki spurði hvort ég væri til í að vinna með þeim að framboði svar- aði ég játandi. Ég hafði verið fót- gönguliði í flokknum frá því ég var sex ára og það hefur hentað mér ágætlega. Andstæðingar okkar fyrir austan voru nokkuð öflugir og ég sá möguleika fyrir okkur að svara því og sækja fram. Það tókst; við jukum fylgi okkar verulega eða hátt í 30% og mynduðum meirihluta. Ég hafði sér- stakan augastað á orkunefnd, vildi verða Alfreð fyrir austan, og er vara- formaður þar. Reyndar komst ég svo að því að nefndin heitir fullu nafni veitu- og orkunefnd og holræsin eru óþægilega mikið aðalmál. Þannig að ég sit svolítið eftir í ræsinu með stjórnmálaferil minn!“ Hann hlær dátt. En langar þig í frekari landvinn- inga í stjórnmálum? „Nei, nei. Þetta var fínt. Ég kallaði mig strax stjórnmálamann og talaði sem slíkur á fundum. Þessir pólitísku fundir voru stórskemmtilegir og stór- kostlegt að þeir skuli enn vera til. En ég hef ekki þörf fyrir frekari afrek á þessu sviði. Ekki að sinni, að minnsta kosti.“ Ertu trúaður sjálfstæðismaður af því tagi sem finnst flokkurinn aldrei gera neitt rangt? „Nei. Ég er sannfærður sjálfstæð- ismaður en mér mislíkar samt ým- islegt. Í heildina stendur flokkurinn fyrir það sem maður vill, er til- tölulega heilsteyptur og hefur hrein- ar línur; ég vil hreinar línur í stjórn- málum. En það er mitt hjartans mál að Sjálfstæðisflokkurinn komi sér upp brúklegri umhverfisstefnu. Ef hann gerir það ekki mun hann verða fyrir hnjaski. Ég held að mjög margir góðir og gegnir sjálfstæðismenn af minni kynslóð og yngri séu búnir að fá skammtinn sinn af stóriðju. Kára- hnjúkarnir eru staðreynd en við eig- um að segja að þar með sé þetta orðið gott. Við viljum ekki þessi fjögur stóriðjuver í viðbót, sem eru í píp- unum. Ég vænti þess að flokkurinn finni sér almennilegan farveg í þessu stóra máli, í rauninni langstærsta máli sem Íslendingar standa frammi fyrir og snýst um landið sjálft.“ Óskar nefnir Hellisheiðarvirkjun. „Henni var platað inná okkur. Hún er jarðvarmavirkjun sem hljómaði sak- leysislega og umhverfið yrði ekki að stórum drullupolli. En hvað gerðist í staðinn? Um alla Hellisheiðina og Svínahraunið eru lögð ormaskrímsli, rörin, sem enginn áttaði sig á. Og nú skilst mér að eftir sé að leggja mikla mastrasyrpu með vírum og eru þó tvær fyrir. Þá verður Hellisheiðin einsog brauðrist að sjá. Kárahnjúkar og allt það eru þrátt fyrir allt ekki í al- faraleið. En það á ekki við um Hellis- heiðina; þar er mikil umferð og sjálfur keyri ég hana mörgum sinnum í viku. Það gengur ekki lengur að reikna út arðsemi virkjana á þeim grundvelli að línurnar séu í loftinu; þær verður að grafa í jörðu, þótt það kosti mun meira. Ella lítur umhverfið út einsog eggjaskeri. Viljum við sýna sjálfum okkur og öðrum svoleiðis land?“ Tvískipt líf Er það kannski ekki svo fjarlæg framtíðarsýn að Óskar Magnússon dragi sig út úr skarkala viðskiptalífs í borginni og helgi sig ritstörfum og kyrrlátu sveitalífi? „Nei. Ég er í mjög skemmtilegu starfi og hef margt í gangi, sem mér líkar vel. Það hentar mér ágætlega að lifa dálítið tvískiptu lífi og þakkarvert að eiga kost á því. En hér eftir mun ég taka skriftirnar alvarlega.“ Útgefandinn lofar fleiri bókum frá þér í káputexta, væntanlega ekki að þér forspurðum? „Nei. Þetta er auðvitað mont. Svo- lítið drýgindalegt. En mig langar til að skrifa fleiri bækur. Tímasetningar verða svo bara að hafa sinn gang. Ég er með fullt af hugmyndum.“ Ef þú lítur til baka: Hafa lífsviðhorf þín eða markmið breyst í áranna rás? „Ég held ekki. Ég er enn með sama andlega vegarnestið í grófum drátt- um. Mínar lífsskoðanir eru einfaldar og sjálfsagt frekar gamaldags. Ég var aldrei í sveit sem barn, heldur sendisveinn sem hjólaði um götur borgarinnar. En í kjarnanum er ég gamaldags einfaldur sveitamaður.“ Með glotti á vör heldur snyrtilegur gamaldags og einfaldur sveitamaður útí slaginn til fundar við útgefanda sinn. Hann er að fara að skoða bóka- auglýsingu. Hann vill helst heilsíðu. ath@mbl.is Í réttarsal Óskar Magnússon hrl., verjandi James B. Grayson, sem er við hlið hans, Örn Clausen hrl. og skjólstæðingur hans, Donald Feeney. Útvarpsþátturinn Í vikulokin Guðmundur Árni Stefánsson, Óskar og Guð- jón Friðriksson, en með þeim vann einnig Þórunn Gestsdóttir. » „Það er mitt hjart-ans mál að Sjálf- stæðisflokkurinn komi sér upp brúk- legri umhverfis- stefnu. Ef hann gerir það ekki mun hann verða fyrir hnjaski. Ég held að mjög margir góðir og gegn- ir sjálfstæðismenn af minni kynslóð og yngri séu búnir að fá skammtinn sinn af stóriðju.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.