Morgunblaðið - 26.11.2006, Síða 42

Morgunblaðið - 26.11.2006, Síða 42
borgarlandslag í byrjun aldar III 42 SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ S íðastliðin fimm ár virðist megináherzlan í bæj- arfélögunum fjórum, sem hér voru tekin til athug- unar, hafa verið á íbúðar- húsabyggingar og jafnvel á heilu íbúðarhúsahverfin. Það er að vonum því eftirspurnin er látlaus. Augljóst er að á næstu fimm árunum verða mikil tíðindi í Reykjavík þegar þar rís nýja Tónlistarhúsið ásamt stóru hót- eli með ráðstefnuaðstöðu, svo og nýj- um höfuðstöðvum Landsbanka Ís- lands. Vitanlega hefur höfuðborgin aðstöðu til að skáka öllum smærri bæjarfélögum sem ekki fá slík tæki- færi. Þau hafa bara lítið komið upp í Reykjavík síðastliðin fimm ár. Eins og vikið verður að síðar eru Hafnfirð- ingar nýlega búnir að gera stórátak í sínum miðbæ og eðlilegt að dálítið hlé verði á eftir. Við eigum líka eftir að sjá nýjan miðbæ í Garðabæ stækka til muna og byggjast niður að Hafn- arfjarðarvegi, hvort sem það gerist á næstu fimm árunum eða síðar. Á síð- asta ári hefur það einnig gerzt að eitt stærsta hús landsins hefur risið í Garðabæ. Við komum að því síðar. Það bezta úr íbúðarhúsageiranum á öllu höfuðborgarsvæðinu finnst mér vera 101 Skuggahverfi í Reykjavík, nokkrar blokkir í Salahverfi í Kópa- vogi svo og íbúðarhúsahverfið Sjá- land í Garðabæ. Að mörgu leyti tel ég það hafa tekizt bezt af framantöldu og að Garðabær hafi með því tekið af- gerandi forustu að þessu leyti. Marg- ir viðmælenda minna voru á sömu skoðun en hvergi nærri allir. Oft er talað um Sjálandshverfi, en það rétta er raunar að íbúðir þar eru á Sjálandi, sagði Eysteinn Haralds- son bæjarverkfræðingur sem fræddi mig um það sem verið hefur á döfinni. Það er þó aðeins fyrsti og annar áfangi þessarar byggðar sem búið er að byggja og verður án efa for- vitnilegt að sjá hvernig til tekst með það sem eftir er. Þarna er skipulagt af metnaði af hálfu bæjarfélagsins, séð til þess að fá góðan arkitekt í lið með sér og síðan er mikil atorka í framkvæmdinni. Skipulagsarkitekt hverfisins er Björn Ólafs en hann er einnig höf- undur bryggjuhverfisins við Graf- arvog í Reykjavík. Björn hefur lengi starfað í París en þar að auki hefur hann teiknað mörg einstök hús á Sjá- landi. Fyrir utan það sem þegar er komið upp af fyrsta og öðrum áfanga á Sjá- landi hefur meginbyggingarsvæði í Garðabæ verið á holtinu þar fyrir of- an og sunnan. Það heitir Ásahverfi og þar hefur á síðustu árum risið glæsi- leg og fjölbreytt byggð einbýlishúsa. Fyrir er í Garðabæ ein stærsta ein- býlishúsabyggð á landinu öllu og þarf allnokkuð til að taka því fram sem þar hefur verið bezt gert áður og tel ég raunar að það hafi ekki verið gert. Að byggja borgarumhverfi Sjáland sker sig úr og hefur heppn- ast vegna þess að þar hefur tekizt vel að byggja nýtt, þéttbýlt hverfi og lausnin á því er þó allt önnur en til að mynda í 101 Skuggahverfi. Segja má að báðar lausnirnar séu góðar. Sá sem kemur á Sjáland sér á auga- bragði að þar er ekki venjulegt og dæmigert úthverfi; hér hefur tekizt að ná fram einkennum borgarlands- lags án þess að byggja alltof þétt. Strandvegurinn er nú þegar frábær- lega falleg íbúðarhúsagata sem ugg- laust verður tekið mið af við hlið- stæðar framkvæmdir í nánustu framtíð. Öll hönnun er með sérstökum glæsibrag og eitt af því sem aðrir húsbyggjendur og verktakar gætu lært af er smekkleg litanotkun. Sá misskilningur er algengur að þetta sé einhvers konar bryggjuhverfi en sannleikurinn er sá að hér er byggt meðfram fallegri fjöru og hún blasir við, ósnortin, frá húsunum norð- anmegin. Í þriðja áfanga, sem er al- gerlega á byrjunarstigi, gæti hins vegar orðið bryggjuhverfi; þar er meðal annars gert ráð fyrir sjóbað- stað og bátabryggjum. Götu- og torganöfn eins og 17. júní torg, Langalína, Strandvegur og Strikið eru eins og flestir vita ættuð frá Kaupmannahöfn en það var skemmtileg hugmynd Hallgríms Helgasonar listamanns að end- urvekja þau hér. Jónshús – fyrir 60 ára og eldri. Þegar hér er komið sögu er búið að byggja í öðrum áfanga sex blokk- ir; sem hver um sig er sex hæðir en þær eru síðan samtengdar með fjög- urra hæða þjónustuseli í miðjunni. Þar verða matsalir og margvísleg rými til þjónustu fyrir eldri borgara. Innan í skeifunni sem blokkirnar mynda verður síðan ræktuð upp stór púttflöt, enda eru Gylfi og Gunnar, sem að byggingarfélaginu standa, vel þekktir golfarar. Þarna er sér- staklega höfðað til þeirra sem eru sextugir og þar yfir. Margir þekkja í þeim röðum að það getur komið sér vel að vera laus við eldamennsku og þeir munu eiga þess kost að geta keypt sér mat í þjónustuselinu. Í fyrsta áfanga Sjálands eru 265 íbúðir, í Jónshúsi, sem er annar áfangi, eru 296 íbúðir og 199 íbúðir verða í þriðja áfanga sem nær frá Jónshúsi fram á uppfyllingu sem skagar lengra út frá ströndinni. Ugglaust kannast margir við Jónshús frá ótal auglýsingamyndum. Sérstakur þaksvipur, þar sem boga- dregin þök eru yfir íbúðum á efstu hæð, og tengir þar með útlitið við húsin á Strandvegi. Útsýnið frá efstu tveimur hæðunum er frábært; til að mynda sést yfir eldri hluta Sjálands og út yfir Álftanes og til Bessastaða. Þar fyrir utan er í Garðabæ stórt, nýtt hverfi í byggingu í hallanum upp af Arnarnesi, austan Hafnarfjarð- arvegar. Þar eru götur kenndar við akra; fjölbýlishús ofan til í brekkunni en einbýlishús hið neðra. Þetta hverfi á svo langt í land að lítið er Glæsibragur í Garðabæ og Hafnarfjörður þenst út Með nýju hverfi við ströndina í Garðabæ, þar sem heitir Sjáland, hefur tekizt að skapa glæsilegt borgarumhverfi sem markar að sumu leyti tímamót, segir grein- arhöfundurinn, Gísli Sig- urðsson. Á sama tíma hafa Hafnfirðingar byggt Vallahverfi, sem er á stærð við kaupstað úti á landi og hefur svonefnt verktakaútlit verið gagn- rýnt þar. En innan um og saman við eru þar þó ágætlega hönnuð hús. IKEA-húsið Í Garðabæ var byggt stórhýsi á einkar fallegu hrauni og sáu margir eftir því. Enn er þó reynt að láta hraunið njóta sín í námunda vð húsið, sem er meira en 20 þúsund fermetrar og eitt hið stærsta á landinu. Sjáland Þétt byggð en engin háhýsi, fjögurra til sex hæða hús. Bogadregin þök setja svip sin á mörg húsanna. Garðabær Hér er horft niður að ströndini á Sjálandi, en neðsta húsaröðin er rétt ofan við fjöruna. Hæð húsanna er undirstrikuð með lóðréttum línum. Ljósmyndir/Gísli Sigurðsson. Jónshús Á þessum 6 hæða fjölbýlishúsum, sem heita einu nafni Jónshús og eru við Strikið í Garðabæ, er enginn smábæjarbragur. Arkitekt er Guðmundur Gunnlaugsson en Byggingarfélag Gylfa og Gunnars framkvæmir. » Sá sem kemur á Sjá- land sér á augabragði að þar er ekki venjulegt og dæmigert úthverfi; hér hefur tekizt að ná fram einkennum borg- arlandslags án þess að byggja alltof þétt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.