Morgunblaðið - 26.11.2006, Side 80

Morgunblaðið - 26.11.2006, Side 80
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 330. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK. 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: auglysingar@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is  Norðlæg átt, víða 8–13 m/s og él norðanlands en hægviðri og bjart syðra. Lægir og birtir til norðanlands síðdegis. » 8 Heitast Kaldast 0°C -8°C BRESKA hljómsveitin The Stranglers mun halda tónleika 6. mars nk. á Nasa við Austurvöll. Sveitin hefur tvívegis haldið hljómleika hér á landi og í bæði skipti fengið mjög góðar viðtökur. Hljómsveitin hélt tónleika í Laugardalshöll árið 1978 og tróð síðan upp í Smáranum 4. desember fyrir tveimur árum. Mannabreytingar hafa orðið síðan Stranglers spilaði hér á landi síðast. Söngvarinn Paul Roberts hætti í sveitinni fyrr á þessu ári og skipta bassaleikarinn J.J. Burnel og gítarleikarinn Baz Warne því með sér söngnum. The Stranglers, sem stofnuð var árið 1974, gaf út sína sextándu hljóðversplötu sl. haust, Suite XVI. Stranglers til Íslands á ný Morgunblaðið/ÞÖK Innlifun Söngvarinn Paul Roberts verður ekki með Stranglers á Nasa í mars nk. HELLIRINN Búri í Leitahrauni fannst ár- ið 1992 og var þá talinn um 40 metra langur. Í maí árið 2005 tókst að opna ný göng og kom þá í ljós að hellirinn er 980 metrar að lengd. Þetta kemur fram í tveggja binda bók Björns Hróarssonar, jarð- og hellafræðings, sem kom út í vik- unni. Þar segir að 13. júní 1992 hafi Guð- mundur Brynjar Þorsteinsson, reyndur hellamaður, fundið og heimsótt nið- urfallið sem Búri, eins og hann nefndi hellinn, gengur út frá. Upp úr niðurfall- inu gengur um 40 m langur og mjög hruninn hellir en til suðurs varnaði stór- grýti allri för. Rúmum tveimur árum síð- ar fór hann aftur og hóf þá að forfæra grjótið, en náði ekki að ljúka verkinu. Árin liðu og ekkert var aðhafst þar til hellafiðringurinn gerði vart við sig hjá Birni í maí 2005. Eftir að hafa ráðfært sig við Guðmund Brynjar fór hann með fylgd- arliði í leit að niðurfallinu. Þegar þeir fundu gjótu Guðmundar Brynjars stakk Björn sér ofan í „og við blasti mikill salur og í honum tignarlegar ísmyndanir“. | 66 Búri ekki allur þar sem hann var séður Eftir Helgu Kristínu Einarsdóttur hke@mbl.is TILKYNNINGAR lögreglunnar í Reykjavík til barnaverndaryfirvalda tvöfölduðust á árunum 1999 til 2005, voru 1.146 árið 1999 en 2.331 í fyrra. Þetta kemur fram í máli Karls Steinars Valssonar aðstoðaryfirlögregluþjóns en Morg- unblaðið heldur í dag áfram að fjalla um sam- skipti foreldra og barna. Karl Steinar segir jafnframt, að komið hafi upp tilvik á liðnum árum, sem hafi verið óþekkt hér áður fyrr. „Við erum að tala um einstaklinga sem skilja mjög ung börn eftir í reiðileysi og þó að afleiðingarnar hafi ekki verið alvarlegar í þeim tilvikum var það ekki foreldrunum að þakka. Síðasta atvikið sem ég man eftir af þessu tagi varðaði ungbarn sem var skilið eitt eftir af því að móðirin fór út að skemmta sér. Ég man ekki eftir að hafa séð svona tilvik áður á þeim 20 árum sem ég hef starfað hjá lögreglunni.“ Karl Steinar segir að viðhorfið til yfirvalda virðist vera að breytast og þess hvað sé réttlæt- anlegt að aðhafast í garð þeirra. „Ég er alls ekki að tala um að lögregluyfirvöld séu hafin yfir gagnrýni, en það er einhver nýr tónn að koma upp í þessu tilliti sem maður áttar sig ekki fylli- lega á. Er það vegna þess að samfélagssýnin sem heimilin og skólinn eru að miðla til barna og unglinga er á einhvern hátt að veikjast? Eða er það af því að svigrúm einstaklingsins og tími til þess að fylgjast með hverju sem er, hvort sem er í gegnum netið eða með öðrum leiðum, er að hafa áhrif á sýn ungs fólks?“ spyr hann. Í gegnum lífið á þreifurunum Séra Jóna Hrönn Bolladóttir, sóknar- prestur í Garðaprestakalli, lýsir áhyggjum sínum af afskiptu uppeldi, „þar sem öllum grunnþörfum barna er sinnt og þeim kannski veitt mjög mikið í veraldlegu tilliti, en foreldr- arnir halda kannski að frelsi og fagmennska felist í því að leyfa börnunum að komast að sannleikanum sjálf, sem gerir að verkum að þau eru alltaf að reka sig á og gera mistök í mannlegum samskiptum.“ Tvöfalt fleiri tilkynningar lögreglu Karl Steinar Valsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir tilkynningar til barnaverndaryfirvalda hafa tvöfaldast á árunum 1995 til 2005  Vaxandi áhyggjur af ranghugmyndum um frelsi og uppeldi Morgunblaðið/Ómar Breytingar Karl Steinar Valsson segir áður óþekkt tilvik hafa komið upp á síðustu árum.  Er Ísland barnvænt? | 18 Eftir Karl Blöndal kbl@mbl.is EF Íslendingar legðu fram óskir á vettvangi Atlantshafsbandalagsins um aukið lofthelgiseftirlit myndu Pólverjar taka undir þær. „[K]omi fram beiðni verða Pól- verjar meðal þeirra, sem munu verða mjög hlynntir,“ segir Jerzy M. Novak, sendiherra Póllands hjá NATO. Undir þetta tekur Linas Linkevicius, sendiherra Litháens hjá NATO, og segir með vísan til eftirlitsins yfir Eystrasaltsríkjunum að það sama eigi að „gilda um alla lofthelgi Atlantshafsbandalagsins“. John Colston, aðstoðarfram- kvæmdastjóri hjá NATO, segir full- komlega skiljanlegt vilji Íslendingar endurskoðun varna. Bandamenn Ís- lands verði „reiðubúnir að ræða við Íslendinga um það hvernig við get- um tryggt með sem bestum hætti að Íslendingar búi ekki við lakari hlut, að gæsla öryggis í land- og lofthelgi sé ekki á skjön við það sem gerist hjá öðrum aðildarríkjum bandalags- ins.“ Per Poulsen-Hansen, sendiherra Danmerkur hjá NATO, segir að skoða eigi öryggi á N-Atlantshafi. Bandaríkjamenn hafi auk þess að draga varnarliðið brott frá Íslandi dregið úr viðbúnaði á Grænlandi. Nú sé aðeins eftir ratsjárstöðin í Thule. „Við erum því í þeirri stöðu þar sem segja má að hlutar NATO – því bæði Færeyjar og Grænland eru hluti af NATO – hafa ekki haft beint lofthelgiseftirlit,“ sagði Poulsen- Hansen. „Það eru engin áform um að breyta þeirri stöðu.“ Pólverjar tækju undir óskir um lofteftirlit Í HNOTSKURN »Aðildarríki Atlantshafs-bandalagsins hafa séð um lofthelgiseftirlit í Eystra- saltsríkjunum frá 2004. » Ítalir hafa séð um loft-helgiseftirlit í Slóveníu frá 2004. »Ekkert lofthelgiseftirlithefur verið í Færeyjum og á Grænlandi um nokkurt skeið og nú hefur Ísland bæst við.  NATO mun | 10 Á MEÐAN vetrarveður geisar eru fleiri sem vilja halda sig innandyra en mannfólkið. Fer- fætlingar sem villst hafa út í vonda veðrið haldast þar ekki lengi við en verða þeim mun vonsviknari þegar ljóst er að búið er að loka inngönguleiðum, eins og kötturinn Brandur. Morgunblaðið/Árni Sæberg Úti er veður vont

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.