Morgunblaðið - 30.12.2006, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.12.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 354. TBL. 94. ÁRG. LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is SÁTTIR VIÐ SITT HLJÓMSVEITIN Í SVÖRTUM FÖTUM STENDUR Á TVENNUM TÍMAMÓTUM >> 39 BATNANDI MANNI ER BEST AÐ LIFA NÝÁRSHEIT ÁRAMÓTIN >> 20 MEGAS og Magga Stína semja tón- list, m.a. fjölda sönglaga, við leik- ritið Lífið – notkunarreglur eftir Þorvald Þorsteinsson sem Leik- félag Akureyrar frumsýnir í mars í samstarfi við Nemendaleikhús leik- listardeildar LHÍ. Megas hefur aldrei áður samið tónlist við heila leiksýningu og raunar aldrei samið tónlist við ann- an texta en sinn eigin með einni undantekningu, þar sem eru Pass- íusálmar Hallgríms Péturssonar. Megas segist „kresinn“ á texta sem hann vinnur með. „Ég er hins vegar afar spenntur fyrir verkefn- inu og textar Þorvaldar kveiktu verulega í mér,“ segir hann. Kjartan Ragnarsson leikstýrir uppsetningunni og er það í fyrsta skipti sem hann vinnur fyrir LA. Leikarar í sýningunni eru leik- hópur LA og útskriftarárgangur Nemendaleikhússins. | 16 Megas sem- ur tónlist við leikrit í fyrsta skipti Spenntur Megas kveðst hafa hrifist af textum Þorvalds Þorsteinssonar. Morgunblaðið/Einar Falur Moskvu. AFP. | Hvít-Rússum og Rússum tókst ekki í gær að ná sam- komulagi um verð á gasi frá Rúss- landi til Hvíta-Rússlands og verður viðræðum haldið áfram í dag. Sergei Kipryanov, talsmaður rússneska olíufyrirtækisins Gaz- prom, sagði í gærkvöldi að mark- miðið væri að skrifa undir samning fyrir 1. janúar. Hvít-Rússar ætla ekki að leyfa flutning á jarðgasi frá Rússlandi til Evrópu um Hvíta-Rússland frá 1. janúar næstkomandi hafi sam- komulag um verð á gasi frá Rúss- landi til Hvíta-Rússlands ekki náðst fyrir þann tíma, en Gazprom vill að Hvít-Rússar greiði hærra verð fyrir gasið en hingað til. Mikið þref hef- ur verið í samningaviðræðunum og segir Alexander Lúkasjenkó, for- seti Hvíta-Rússlands, að þjóðin láti ekki undan þrýstingi og Hvíta- Rússland eigi ekki að greiða hærra verð fyrir gas en Rússland. Hvít-Rússar og Rússar deila enn Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is LÖGFRÆÐINGAR Saddams Husseins, fyrrverandi forseta Íraks, gerðu í gær hinstu tilraunir til að koma í veg fyrir aftöku Sadd- ams þegar þeir fóru fram á það við bandarískan dómara að hann hindr- aði að Bandaríkjamenn framseldu Saddam í hendur íraskra yfirvalda. Háttsettur embættismaður írösku ríkisstjórnarinnar sagði í gærkvöldi að Saddam Hussein yrði hengdur fyrir klukkan sex í morg- un að staðartíma eða fyrir klukkan þrjú í nótt að íslenskum tíma. Hann sagði að ákvörð- un um tímasetn- inguna hefði ver- ið tekin á fundi fulltrúa Banda- ríkjanna og Íraks og að Saddam yrði framseldur í hendur Íraka skömmu fyrir af- tökuna. Romano Prodi, forsætis- ráðherra Ítalíu, sendi frá sér yf- irlýsingu þar sem hann óskaði eftir að hætt yrði við henginguna og rík- isstjórnir Brasilíu, Chile, Jemen og Líbýu mótmæltu aftökunni. Sami al-Askari, þingmaður og ráðgjafi forsætisráðherra Íraks, sagði í gær að gengið hefði verið frá öllum formsatriðum vegna hengingar Saddams Husseins og því væri ekk- ert því til fyrirstöðu að aftakan færi fram. Íraski dómarinn Moneer Had- dad, sem óskað hafði verið eftir að fylgdist með aftökunni, sagði í gær að hann hefði verið beðinn að mæta vegna hengingarinnar. „Það er ekki eftir neinu að bíða,“ sagði hann. Talið er að aftakan leiði til of- beldisverka í Írak og er íraski her- inn sem og sá bandaríski við öllu búinn. Hengja átti Saddam fyrir klukkan þrjú í nótt Í HNOTSKURN » 5. nóvember sl. var Sadd-am Hussein, fyrrverandi forseti Íraks, dæmdur til dauða fyrir glæpi gagnvart mannkyninu, þegar hann fyr- irskipaði líflát 148 sjíta í þorp- inu Dujail norður af Bagdad 1982. » 26. desember sl. staðfestiáfrýjunarréttur í Írak dauðadóminn yfir Saddam Hussein og kom fram að aftakan þyrfti að fara fram innan mánaðar. Saddam Hussein Forsmekkurinn Gamlárskvöld með allri sinni litadýrð á himnum nálgast óðfluga en skv. venju ætla landsmenn að skjóta flugeldum á loft til að kveðja gamla árið. Menn tóku forskot á sæluna við Perluna í gærkvöld, en þá var þar haldin flugeldasýning, ungum sem öldnum til mikillar ánægju. Morgunblaðið/RAX Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is FLUGSTOÐIR ohf. skrifuðu í gær undir þjónustu- samning við samgönguráðuneytið um starfsemi fé- lagsins næstu tvö árin, en í samningnum felst að Flugstoðir munu reka áætlunarflugvelli landsmanna og sjá um flugleiðsöguþjónustu. Enn hafa rúmlega 50 flugumferðarstjórar sem í dag starfa hjá Flugmálastjórn Íslands ekki ráðið sig til starfa hjá Flugstoðum. „Eins og staðan er núna er ég ekki bjartsýnn á að þetta leysist fyrir áramót,“ segir Ólafur Sveinsson, stjórnarformaður Flugstoða. Hann segir að engar formlegar viðræður séu í gangi, en neitar því ekki að skilaboð hafi gengið á milli manna. „Þetta er ástand sem enginn vill hafa, ég held að allir séu meðvitaðir um skyldur sínar til þess að reyna að fá flugumferðarstjóra til starfa, og þeir með- vitaðir um sínar skyldur til að koma til starfa.“ Ástæða þess að flugumferðarstjórar vilja ekki ráða sig er sú að ekki hefur verið gengið frá samningi um bætur fyrir skerðingu á lífeyrisréttindum sem báðir aðilar viðurkenna að verða við flutninginn frá Flug- málastjórn til Flugstoða, segir Loftur Jóhannsson, formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra. Ólafur segir að Flugstoðir hafi bæði lýst því yfir að réttindi flugumferðastjóra muni halda sér, og einnig boðist til að tryggja þeim lífeyrisréttindi í ráðning- arsamningi hvers og eins. Slíka lausn segir Loftur óviðunandi, þar sem þá lendi það á einstökum flugumferðarstjórum að sækja þessi réttindi sín með vísun í gamlan samning þegar þeir fara á eftirlaun. Loftur segir erfitt að skilja hvers vegna ekki sé hægt að ganga frá samningi við FÍF um þetta atriði. Það hljóti að vera Flugstoðum að meinalausu að gera samning fyrst þeir hafi lofað að tryggja lífeyrisréttindin. Í greinargerð sem FÍF sendi frá sér er metinn kostnaður flugfélaga af ákvæðum í viðbúnaðaráætl- un Flugstoða. Þar kemur fram að kostnaðarauki geti orðið rúmar 10 milljónir kr. á dag í janúar. Verði ástandið óbreytt allan janúar geti kostnaðurinn orðið um 315 milljónir og á heilu ári um 4,6 milljarðar. „Ástand sem enginn vill hafa“  Þjónusta og eftirlit | 11 ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.