Morgunblaðið - 30.12.2006, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 30.12.2006, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Hjört Gíslason hjgi@mbl.is SALA á íslenzku fiskmörkuðunum hefur verið mikil á árinu 2006. Í heildina fór salan í 106.500 tonn sem er nokkru meira en áætlanir voru um. Heildarverðmæti er um 14,8 milljarðar króna. Þá var í fyrsta skipi í sögu fiskmarkaðanna selt fyrir meira en milljarð í hverjum mánuði ársins. Rysjótt tíð í nóvember og desem- ber leiddi til lítils framboðs og verð hefur verið mjög hátt. Í gær fór verð á slægðum þorski og steinbít hæst í 314 krónur kílóið og óslægð ýsa fór hæst á 296 krónur kílóið. Loks fór kíló af lúðu yfir þúsund krónur. Mjög lítið framboð er að baki þessum tölum, en hinn 28. des- ember voru aðeins seld 163 tonn á mörkuðunum. Eftirspurnin eftir fiski á þessum tíma er mikil innan- lands, en sömuleiðis til útflutnings með flugi. Aukning var á sölunni alla mánuði á þessu ári nema í nóvember, en þá var 2.500 tonna samdráttur, vegna ótíðar að mestu. Magnið í desember verður ríflega 6.000 tonn, sem er svipað og í fyrra og nálægt með- altali síðustu ára. Verðmæti sölunnar í desember fór yfir einn milljarð króna og hefur því verið selt fyrir meira en milljarð í hverjum mánuði á þessu ári. Það hefur ekki gerzt áður í sögu fisk- markaðanna. Verðmætin urðu mest í marz og maí, en selt var fyrir ríf- lega 1,6 milljarða króna í hvorum mánuði. Minnst var salan í janúar, rétt rúmlega milljarður. Gott ár hjá mörkuðunum Eyjólfur Þór Guðlaugsson, fram- kvæmdastjóri Reiknistofu fiskmark- aða, segir að árið í ár hafi verið gott. Magnið hefði verið meira en reiknað hafði verið með, hvort sem notað var spálíkan í tölvu eða mannlegt mat. Menn hefðu haft áhyggjur af minnkandi þorskkvóta, samþjöppun í eignarhaldi á fyrirtækjum og að fiskvinnslan tæki meira til sín af fiski af eigin skipum. Raunin væri hins vegar sú að salan hefði aukizt og væri það ánægjulegt. Selt fyrir meira en milljarð í hverjum mánuði á árinu Í HNOTSKURN »Í gær fór verð á slægðumþorski og steinbít hæst í 314 krónur kílóið og óslægð ýsa fór hæst á 296 krónur kíló- ið. »Eftirspurnin eftir fiski áþessum tíma er mikil inn- anlands en sömuleiðis til út- flutnings með flugi »Verðmætið varð mest ímarz og maí, en selt var fyrir ríflega 1,6 milljarða króna í hvorum mánuði Salan á árinu yfir 106.000 tonn sem er nokkru meira en áætlað var                                             NÝVERIÐ rak búrhval á land í Þykkvabæjarfjöru en hvalrekinn uppgötvaðist á jóladag. Hvalurinn er miðlungsstór, u.þ.b. 12 metrar á lengd og sennilega um 25 tonn á þyngd, en þeir geta orðið 20 metrar og 50 tonn. Ekki er hægt að sjá hvað varð skepnunni að fjör- tjóni. Búrhvalir halda að mestu til sunnar í höfum og eru ekki algeng- ir hér um slóðir að vetri til. Þeir voru afar eftirsóttir áður fyrr, eink- um vegna olíu í höfðinu, sem getur numið allt að þriðjungi af lengd skepnunnar. Nú eru búrhvalir al- friðaðir, en þeir voru veiddir hér við land allt til 1980. Áður fyrr þótti hvalreki hinn mesti happafengur. Einkum sóttust menn eftir olíunni til lýsingar, en einnig var kjötið og spikið nýtt. Þá voru beinin nýtt, svo sem í þak- sperrur. Einnig þekkja margir að hryggjarliðir voru nýttir í ýmislegt, svo sem í mjaltastóla. Nú til dags er hvalreki sem þessi þó frekar til tjóns en hitt.Ljósmynd/Kjartan Hvalreki í Þykkva- bæjarfjöru GJAFABRÉF frá Hjálparstarfi kirkjunnar reyndust vinsæl til jóla- gjafa þetta árið og söfnuðust alls 3,5 milljónir króna með þessum hætti. Að sögn Önnu M. Þ. Ólafsdóttur, fræðslu- og upplýsingafulltrúa Hjálparstarfs kirkjunnar, hefur ver- ið boðið upp á gjafakort sl. tvö ár og sýndi almenningur því nokkurn áhuga á jólunum í fyrra að gefa slík kort. „Nú í ár má hins vegar segja að orðið hafi sprenging í sölu kort- anna.“ Að sögn Önnu gátu gefendur gjafabréfa Hjálparstarfs kirkjunnar valið á milli þess m.a. að styrkja vatnsverkefni í Afríku, menntun barna á Indlandi, að leysa þrælabarn úr ánauð, gefa geit til fátækra fjöl- skyldna í Afríkulöndum eða styrkja efnalítil ungmenni á Íslandi til að ljúka framhaldsskólanámi. Aðspurð segir Anna að lang- vinsælast hafi verið að gefa geit, en hver geit kostar 2.400 kr. „Þær fara til fátækra fjölskyldna annars vegar í Malaví og hins vegar í Úganda,“ segir Anna. Einnig segir hún nokkuð um það að einstaklingar og hjón hafi gefið brunn í Afríku, en hver brunnur kostar 120 þúsund krónur. Spurð hvort hún kunni einhverjar skýr- ingar á auknum vinsældum gjafa- korta Hjálparstarfsins segir Anna fólk hafa haft á orði að þetta væri til- valin jólagjöf handa þeim sem ættu allt, auk þess sem mörgum finnist gleðilegt að geta gefið þeim sem ekkert eiga hluti sem komi í afar góðar þarfir. Bólusetning vinsæl jólagjöf Að sögn Snjólaugar Aðalgeirs- dóttur, fjáröflunarfulltrúa Barna- hjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNI- CEF) á Íslandi, reyndust gjafabréf frá UNICEF vinsæl til jólagjafa. Hún sagði að útgáfa gjafabréfanna hefði verið undirbúin á liðnu sumri og þau höfð til reiðu fyrir jólin. „Við seldum ótrúlega mikið miðað við að við aug- lýstum ekki neitt. Þetta vakti meiri lukku en við bjuggumst í raun við.“ Snjólaug segir að gjafabréf af þessu tagi séu mjög góð þegar gefa eigi einhverjum „sem á allt“ jólagjöf. Fólk gat valið á milli þess að styrkja verkefni á sviði bólusetn- ingar barna eða á sviði menntunar barna í fátækum ríkjum Vestur- Afríku. Til dæmis kostar 1.700 kr. að styrkja barn til náms í eitt ár og hver bólusetning barns kostar 500 kr. Gefendur gáfu gjöf í nafni einhvers og fengu gjafabréf því til staðfest- ingar undirritað af framkvæmda- stjóra UNICEF á Íslandi. Bréfið var síðan afhent í stað jólagjafar. Gjafakort hjálparstarfs til- valin fyrir þá sem allt eiga RÉTTARHÖLDUM yfir Calvin Hill, sakborningi í manndrápsmálinu í varnarstöðinni á Keflavíkurflugvelli í ágúst 2005 þegar hin tvítuga As- hley Turner úr flugliði varnarliðsins var stungin til bana, hefur verið frestað í Bandaríkjunum. Ástæðan er úrskurður dómara um að yf- irheyra skuli verjanda sakbornings- ins um meint samtal sem fór þeirra í millum áður en Turner lést. Verj- andinn var á þeim tíma ráðinn til að halda uppi vörnum fyrir Hill vegna ásakana um að hann hefði stolið fé frá Turner. Samkvæmt því sem fram kemur á fréttavef Bandaríkja- hers um þinghaldið mun verjandinn á þeim tíma hafa sagt Hill að einn möguleiki á að verjast þjófn- aðarkærunni fælist í að Turner bæri ekki vitni. Þetta á Hill síðan að hafa fært í tal við þriðja aðila og þar með brotið trúnaðarskyldu milli sakborn- ings og verjanda með tilheyrandi hagsmunaárekstrum. Úrskurður um skýrslutökur yfir verjandanum hefur verið kærður og kann málið að dragast fram í apríl nk. Réttarhaldi frestað vestra MANNANAFNANEFND hefur hafnað beiðni um að kvenmanns- nafnið Gull verði fært sem eig- innafn í mannanafnaskrá, en sam- þykkt beiðni um millinafnið Gull. Þetta kemur fram í úrskurði mannanafnanefndar frá 6. desem- ber síðastliðnum. Beiðni um eig- innafnið Gull var fyrst tekin fyrir á fundi nefndarinnar í október en þá var afgreiðslu beiðninnar frestað til frekari skoðunar og gagnaöfl- unar. Í úrskurði mannanafnanefndar segir að í íslensku máli sé gull sam- safn í hvorugkyni og það brjóti í bága við íslenskt málkerfi að beygja það sem kvenkynsorð. Orðið gull geti hins vegar verið forliður í kvenmannsnöfnum, t.d. Gullveig. Í úrskurðinum segir að kven- mannsnafnið Líf sé ekki sambæri- legt. „Það er orðið til fyrir áhrif frá norræna nafninu Liv og eldri mynd þess orðs er Hlíf, af kvenkynsnafn- orðinu hlíf, „vörn, vernd, skjól“. Þá segir að kvenmannsnafnið Víf sé ekki heldur sambærilegt, en nafnorðið Víf sé kvenheiti og sé sama orð og „wife“ í ensku og „Weib“ í þýsku. Orðið gull uppfylli ekki þau skil- yrði sem gerð séu til eiginnafna samkvæmt lögum um mannanöfn frá árinu 1996 en uppfylli hins veg- ar þau skilyrði sem gerð séu til millinafna samkvæmt sömu lögum. Kvennafninu Gull hafnað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.