Morgunblaðið - 30.12.2006, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 30.12.2006, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2006 41 dægradvöl 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Rf6 4. d3 h6 5. Rc3 d6 6. h3 Ra5 7. Bb3 Rxb3 8. axb3 Be7 9. Rh2 d5 10. O-O O-O 11. De2 dxe4 12. dxe4 c6 13. Rf3 Dc7 14. Rh4 He8 15. Df3 Rd5 16. Rf5 Bxf5 17. exf5 Rxc3 18. bxc3 Bf6 19. Ha4 a6 20. He4 Had8 21. Hfe1 Da5 22. c4 b5 23. De2 Hf8 24. Bb2 Hd2 25. Dg4 Hxc2 26. Bxe5 Bxe5 27. Hxe5 Dd8 28. De4 Dd2 29. Dxc6 Dxf2+ 30. Kh1 bxc4 31. bxc4 a5 32. Hg1 Dd4 33. He4 Dd3 34. f6 g5 35. Hge1 Kh7 36. Dc5 Dg3 37. Hg1 Kg8 38. Hd4 Df2 Staðan kom upp á alþjóðlegu móti sem lauk fyrir skömmu í Belgrad í Serbíu. Heimamaðurinn Branko Vuckovic (2.182) hafði hvítt gegn Ró- berti Harðarsyni (2.310). 39. Dxf8+! og svartur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Hvítur á leik. Skilyrt viðbragð. Norður ♠652 ♥ÁG8 ♦ÁD2 ♣D1065 Vestur Austur ♠ÁD97 ♠1043 ♥10743 ♥K965 ♦65 ♦10973 ♣K82 ♣73 Suður ♠KG8 ♥D2 ♦KG84 ♣ÁG94 Suður spilar 3G og fær út hjarta- þrist. Við þekkjum öll þessa stöðu - ÁGx í borði og Dx heima. Útspil í slíkum lit gefur sagnhafa færi á þremur slögum og það er nánast skilyrt viðbragð að láta lítið úr borði. Enda oftast rétt. En það eru undantekningar á öllu og hér hefur það slæmar afleiðingar að hleypa á drottninguna, því austur mun taka á kónginn og skipta yfir í spaða. Vestur fríar þrettánda spaðann og nær þar í fimmta varnarslaginn þegar hann kemst inn á laufkóng. Þetta er gamla lumman um að taka sér tíma í fyrsta slag - pússa gleraugun eða hræra í kaffibollanum. Þá sést fljótlega að spil- ið er 100% öruggt með því að drepa á hjartaás og svína í laufi. Níundi slag- urinn kemur sjálfkrafa á annan hálit- inn. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig Krossgáta Lárétt | 1 brúnaþunga, 8 ásýnd, 9 sól, 10 spil, 11 fugl, 13 málgefin, 15 karlfugl, 18 sanka sam- an, 21 endir, 22 kompa, 23 eldstæði, 24 hömlu- laust. Lóðrétt | 2 fen, 3 fingurs, 4 fiskar, 5 kjafturinn, 6 knippi, 7 erta, 12 kropp, 14 þjóta, 15 poka, 16 menga, 17 háværan gleð- skap, 18 fiskur, 19 ærsla- hlátur, 20 beitu. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 Hekla, 4 fölur, 7 munni, 8 öldum, 9 nál, 11 arra, 13 barn, 14 lofar, 15 þoka, 17 álit, 20 hró, 22 kopar, 23 kýtir, 24 tíran, 25 tólin. Lóðrétt: 1 hemja, 2 kænir, 3 alin, 4 fjöl, 5 lydda, 6 rúm- an, 10 álfur, 12 ala, 13 brá, 15 þykkt, 16 kópur, 18 lítil, 19 tæran, 20 hrun, 21 ókát. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 1 Haldið er úti gæludýrafjósi á bæskammt frá Akureyri með kan- ínum, landnámshænum, gullfiski, fasana og stundum gestum. Hvaða bær er þetta? 2 Guðjón Valur Sigurðsson hand-knattleiksmaður er íþróttamað- ur ársins. Hann leikur í Þýskalandi en með hvaða liði? 3 Hvað tókst að dæla mörgumtonnum af olíu úr Wilson Muuga á strandstað við Sandgerði? 4 Hreindýrakvótinn hefur veriðaukinn. Um hve mikið? Svör við spurningum gærdagsins: Íslensk félög hafa stofnað norræna ferð- arisann Northen Travel Holding. Hvaða fé- lög eru þetta? Svar: FL Group, Fons og Sund. 2. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins er á sjúkrahúsi vegna brunasára sem hann hlaut. Hver er hann? Svar: Guð- laugur Þór Þórðarson. 3. Ungur organisti, Sigrún Magna Þórsteinsdóttir fékk styrk úr minningarsjóði annars þekkts organista. Hver var hann? Svar: Karl J. Sighvatsson. 4. Knattspyrnumenn ársins í bæði karla- og kvennaknattspyrnu hafa verið valdir. Hverjir voru þeir? Svar: Eiður Smári Guð- johnsen og Margrét Lára Viðarsdóttir. Spurt er… ritstjorn@mbl.is  TRÚARBRÖGÐ eru mikið í um- ræðu samfélagsins í dag. Trúar- bragðakennsla skólanna er deiluefni og þeim Íslendingum sem eru ann- arrar trúar en kristinnar fjölgar stöðugt. Í kjölfarið hlýtur spurn- ingin um trúna, birtingarmyndir hennar og hlutverk í lífi hvers og eins að verða æ áleitnari. Tyrkneski nóbelsverðlaunahafinn Orhan Pa- muk skrifar eftirminnilega um þetta málefni í bók sinni Snjór, þar sem brottflutti Ka snýr heim til Tyrk- lands frá Þýskalandi og mætir nýju bókstafstrúarmönnunum og gúrúum þeirra. Í Ka mætir vestrænn efa- hyggjumaður, ávallt með kaldhæðn- ina á reiðum höndum, hinum ein- læga og uppljómaða bókstafstrúarmanni. Vandamálið með trúna hefst strax í æsku, en það er ekki Guð almátt- ugur eða hinn eingetni sonur hans sem veldur yngstu börnunum vand- ræðum eða hugarangri, barnatrúin er tæpast tilefni til spurninga og sjálfsskoðunar fyrr en eitthvað síðar á ævinni. Nei, það er auðvitað jóla- sveinninn. Er hann til? Þetta er stór spurning sem veldur öllum börnum vangaveltum í kringum hver jól og stærri börn segja sögur af pöbbum og mömmum á ferli um nætur sem þau minni vilja helst ekki trúa. Það er sem sagt dramatískt sögu- efni sem Andrés Indriðason tekst á við í nýrri bók sinni Jólasveinninn minn, myndskreyttri af Önnu Cynt- hiu Leplar. Fyrir jólin ákveður lítil stúlka að bíða eftir jólasveininum sem á að gefa í skóinn. Hún vaknar við að sveinki er mættur í herbergi hennar. Þau eiga nokkur orðaskipti, stúlkan efast í trúnni og kemst síðan að því að hér er pabbi á ferð. Stúlkan ákveður að stríða honum og kemur honum í ógöngur. Í lokin leysist úr klípunni og á ein- hvern óút- skýrðan máta, líklega ekki ósvipuðan þeim sem verður til þess að við getum sjálf hleypt trúnni, í hvaða mynd sem hún nú birtist, inn í líf okkar í dag, ákveður litla stúlkan að trúa. Hún veit að jólasveinninn sem kom var pabbi hennar, en það úti- lokar ekki þann möguleika að jóla- sveinninn sé til. Hún ákveður fyrir sjálfa sig að alvöru jólasveinar láti aldrei sjá sig. Andrés kemur þarna með lausn sem reynst hefur for- eldrum vel í gegnum tíðina og börn- unum líka, sem ógjarnan vilja sleppa trúnni á sveinka. Nú er auðvitað ekki saman að líkja trú og trú á jóla- sveininn en það má leika sér að því að setja sögu Andrésar á þennan hátt í stærra samhengi. Ekki með því að gera hana að líkingu fyrir trúna sem henni er ekki ætlað, held- ur líta á boðskap sögunnar sem þann að stundum geti verið gott að trúa, líka því sem ekki er rökstutt, sýni- legt eða sannanlega satt. Það bætir tilveruna og gefur henni leyndardóm en án leyndardóma væri lífið inni- haldslaus hversdagsleiki. Texti Andrésar er tiltölulega eðli- legur og tilgerðarlaus og trúverð- ugur sem einræða fimm ára barns. Teikningar Önnu Cynthiu fylgja textanum skilyrðislaust, fjölbreytni er í stærð og samspili við texta á síð- unum. Henni tekst vel að skapa þær heimilislegu persónur sem sagan segir frá, bangsann meðtalinn, og hún umvefur persónur sínar hlýrri birtu öruggs og notalegs heimilis. Bókin er ágæt lesning með börn- unum sem eru upptekin af tilvist sveinka og niðurstaða hennar afar ásættanleg. Alvöru jólasveinar láta engan sjá sig BÆKUR Barnabók Eftir Andrés Indriðason, Anna Cynthia Leplar myndskreytti. JPV 2006, 52 bls. Jólasveinninn minn Ragna Sigurðardóttir Andrés Indriðason. Stærsti aðdá-endaklúbbur bandarísku söng- konunnar Brit- ney Spears, sem starfræktur hef- ur verið á Netinu, er um það bil að leggja upp laup- ana þar sem for- svarsmenn hans kunna ekki lengur að meta stjörnuna. Ruben Gray, sem stofnaði net- klúbbinn www.worldofbritney.com, segir framkomu Spears frá því hún sótti um skilnað frá eiginmanni sín- um Kevin Federline hafa gengið svo fram af sér að hann vilji ekkert leng- ur til hennar þekkja. „Britney er að glata persónuleika sínum og áreið- anleika. Hún er búin að vera, að minnsta kosti hvað mig varðar,“ seg- ir hann. „Það gildir einu hvort fólk er sammála mér eða ekki. Það er orðið ómögulegt að halda uppi þeirri virðingu sem þetta starf krefst. Þannig að við höfum ákveðið að loka vefsíðunni.“ Fólk folk@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.