Morgunblaðið - 30.12.2006, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 30.12.2006, Blaðsíða 40
40 LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ fólk Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn ÞIÐ TVÖ SKULUÐ BARA HAFA ÞAÐ GOTT Í KVÖLD, AF EINHVERRI SKRÍTINNI ÁSTÆÐU ER HÚN HRIFIN AF ÞÉR OG EF ÞESSARI FALLEGU DÖMU ER SAMA, ÞÁ VÆRI ÉG TIL Í AÐ BJÓÐA HENNI UPP Á DRYKK FYRIRGEFÐU ELLEN... HVER ERT ÞÚ? VARAÐU ÞIG!! KANNSKI GET ÉG KENNT STJÓRNVÖLDUM UM ÞETTA! ÞARNA FÓRSTU ALVEG MEÐ ÞAÐ! ÞÚ BRAUST LAMPA OG ÞÚ GETUR EKKI KENNT NEINUM UM ÞAÐ NEMA SJÁLFUM ÞÉR! ÉG HEF ÁKVEÐIÐ AÐ TRÚA Á ÖRLÖG ALLT SEM AÐ GERIST ER FYRIRFRAM ÁKVEÐIÐ OG ÞAÐ ER EKKERT SEM VIÐ GETUM GERT TIL ÞESS AÐ KOMA Í VEG FYRIR ÞAÐ. ÞANNIG AÐ EKKERT SEM ÉG GERI ER MÉR AÐ KENNA POT ÉG GAT EKKI STOPPAÐ MIG, ÖRLÖGIN RÁÐA ÞETTA VORU ENGIN ÖRLÖG! GET ÉG AÐSTOÐAÐ ÞIG? ÉG ER KOMINN HINGAÐ TIL ÞESS AÐ BERJAST GEGN FÁVISKU, VILLIMENNSKU OG GRÆÐGI! ÞÚ HEFUR FARIÐ HÚSAVILLT HRÓLFUR HRÆÐILEGI Á HEIMA NEÐAR Í GÖTUNNI ÞVOTTAHÚS HJÁLPAÐU MÉR MEÐ ÞETTA GRÍMUR. HVAÐ ER ATLI ANNARS AÐ GERA? HANN ÁKVAÐ AÐ SKELLA SÉR Í BAÐ... HÚN FÓR ÚT AF SKILJIÐ EFTIR SKILABOÐ OG ÉG HRINGI UM LEIÐ OG ÉG GET HÆ M.J. ÉG ER BÚINN AÐ SAKNA ÞÍN. ÞAÐ ER MIKLU ERFIÐARA... BÍP!! MEIRA AÐ SEGJA SÍMSVARINN HENNAR VILL EKKI TALA VIÐ MIG KANNSKI HÆTTI ÉG AÐ HUGSA UM ÞAÐ HVAÐ ÉG SAKNA HENNAR MIKIÐ EF ÉG SVEIFLA MÉR AÐEINS Það er gaman að skjóta uppflugeldum um áramót ogslá landsmenn flestumöðrum við í skotgleðinni. Hins vegar verður að sýna varkárni þegar skoteldar eru meðhöndlaðir til að forðast slys. Jón Ingi Sigvaldason er sölu- og markaðsstjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar: „Flugeldar eru ekki leikföng og mikilvægt að virða þau aldursmörk sem merkt eru á flug- eldana. Allir skoteldar sem seldir eru á vegum Landsbjargar eru merktir með leiðbeiningum á ís- lensku og leggjum við áherslu á að fólk fylgi þeim vandlega,“ segir Jón Ingi. „Mikilvægt er að allir noti hlífðargleraugu, bæði fullorðnir og börn, jafnt þeir sem eru að tendra skoteldana og þeir sem eru að horfa á, og nauðsynlegt vera með vett- linga þegar kveikt er í flugeldum eða haldið á blysi.“ Jón Ingi leggur áherslu á að það sé fjölskylduskemmtun að skjóta upp flugeldum á gamlársdag: „Mörg af þeim slysum sem verða um áramót verða vegna þess að áfengi er haft um hönd þegar verið er að skjóta upp flugeldum, en flug- eldar og áfengi eiga aldrei að fara saman,“ segir Jón Ingi. „Það er einnig mjög áríðandi að koma í veg fyrir hvers kyns fikt hjá börnum og ungmennum með flugelda, og eru yngri strákar þar í sérstökum áhættuhópi. Alltof margir hafa misst fingur, brennt sig illa eða hlotið augnskaða af fikti með flug- elda.“ Til að fyrirbyggja fikt ungmenna með skotelda lét Landsbjörg meðal annars gera fræðslumyndband sem sýnt hefur verið í grunnskólum og sjónvarpi: „Þar segja sögu sína ein- staklingar sem hafa slasast við flug- eldafikt, og sýnt er frá aðgerð á hönd eftir sprengingu,“ segir Jón Ingi. „Vonumst við til að mynd- bandið hafi gert börnunum ljóst hversu hættulegt er að fikta í sko- teldum, og hversu alvarlegar afleið- ingarnar geta orðið. Foreldrar mega þó ekki sofna á verðinum, og ber að gæta að því að afgangs flug- eldar rati ekki í rangar hendur.“ Þá er góð regla, sérstaklega ef farið er að heiman á gamlárskvöldi, að gæta að því að gluggar séu lok- aðir: „Og þegar búið er að skjóta upp skottertum á að hella úr vatns- fötu eða moka snjó yfir kökuna til að slökkva í glóð sem gæti leynst í tertunni,“ segir Jón Ingi. „Þá hefur Landsbjörg gefið út góðan leiðbein- ingarbækling um hvernig sinna þarf húsdýrum, sem oft hræðast glym- inn af skoteldunum á gamlárskvöld. Er hægt að fá bæklinginn á öllum flugeldasölum Landsbjargar.“ Flugeldasala um áramót er lang- mikilvægasta tekjulind björg- unarsveitanna: „Ef þessa stuðnings nyti ekki við væru björgunarsveit- irnar ekki jafnöflugar og raunin er,“ segir Jón Ingi. „Við leggjum mikla áherslu á gæði og öryggi skot- eldanna og seljum aðeins úrvals- framleiðslu, og hafa fulltrúar Landsbjargar gert úttekt á þeim verksmiðjum sem við verslum við, sem hafa bæði framúrskarandi starfsmannastefnu og fylgja ströng- ustu öryggisstöðlum.“ Hátíð | Flugeldasala er mikilvægasta fjáröflunarleið björgunarsveitanna Sýnum aðgát með flugelda  Jón Ingi Sig- valdason fæddist í Reykjavík 1972. Hann útskrif- aðist af raf- virkjabraut frá FB 1995 og legg- ur nú stund á nám í við- skiptafræði við HR. Jón Ingi starfaði við bygging- arvinnu og rafvirkjun, og síðar sölu- og markaðsstörf. Hann var einn af stofnendum verslunarinnar Fjallakofans og útivistartímaritsins Útiveru. Jón Ingi hefur starfað hjá Slysavarnafél. Landsbjörg frá árinu 2003 og verið í björg- unarsveit í 17 ár auk þess að starfa í aðgerðastjórn Almannavarna á höfuðborgarsv. og svæðisstjórn björgunarsveita. Jón Ingi er kvænt- ur Valborgu Sigrúnu Jónsdóttur og eiga þau eina dóttur. Fáðu úrslitin send í símann þinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.