Morgunblaðið - 30.12.2006, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 30.12.2006, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● ÚRVALSVÍSITALAN hækkaði um 1,22% í Kauphöll Íslands í gær og var við lokun markaða 6.410,48 stig. Í dag hækkaði Exista mest eða um 2,74% en Mosaic Fashion lækk- aði mest eða um 4,38%. Gengi ís- lensku krónunnar veiktist um 0,04% í miklum viðskiptum á milli- bankamarkaði í gær. Gengi Banda- ríkjadollara er nú 71,06 krónur, gengi pundsins er 139,11 krónur og gengi evrunnar er 93,70 krónur. Hlutabréf hækka ● HEITI KB banka á Íslandi breytist um ára- mótin í Kaup- þing, en lög- formlegt heiti bankans er Kaupþing banki hf. Bankinn seg- ir í tilkynningu að nafnabreytingin sé liður í þeirri langtímaáætlun stjórnar bankans að hann starfi und- ir sama nafni hvar í heimi sem er. Þá hefur Kaupþing banki ákveðið að hækka vexti óverðtryggðra inn- og útlána frá og með 1. janúar 2007 vegna hækkunar Seðlabankans á stýrivöxtum um 0,25 prósentustig. Vextir óverðtryggðra inn- og útlána hækka um allt að 0,25 prósentustig. Þannig hækka vextir í efsta þrepi markaðsreiknings úr 12,65% í 12,90% en ákveðið hefur verið að kjörvextir óverðtryggðra skuldabréfa verði óbreyttir 16,20%. Nafni KB banka breytt í Kaupþing ● VM - Félag vélstjóra og málm- tæknimanna og Kaupþing hafa gengið frá samkomulagi um al- menna bankaþjónustu ásamt eign- astýringu fyrir félagið. Sam- komulagið kveður einnig á um alhliða fjármálaþjónustu til handa þeim félagsmönnum VM sem það kjósa. Í tilkynningu segir m.a. að Kaup- þing muni bjóða félagsmönnum í VM tilboð í alhliða fjármálaþjónustu með verulegum frávikum frá því sem almennt er í boði, ásamt því að veita þeim fjölþætta þjónustu og ráðgjöf um lífeyris- og tryggingamál. Kaupþing með banka- þjónustu fyrir VM ÚTGÁFUFÉLAGIÐ Birtíngur hef- ur keypt útgáfufélagið Fögrudyr, sem stofnað var um tímaritið Ísafold. Birtíngur, sem áður hét Fróði, hefur m.a. gefið út tímaritin Mannlíf, Séð og heyrt, Vikuna, Gestgjafann, Nýtt líf og Hús og híbýli. Með fylgja einn- ig Veggfóður og Hér & nú sem Fögrudyr keyptu í vikunni af 365 miðlum hf. Eigendur hins sameinaða félags, Birtíngs, eru Hjálmur ehf., sem er að öllu leyti í eigu Baugs Group hf. (60%), LL eignir ehf., sem er í eigu Sigurðar G. Guðjónssonar hrl. (28%), Elín Guðrún Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri Birtíngs (10%), Mikael Torfason, aðalritstjóri Birt- íngs, og feðgarnir Reynir Trausta- son og Jón Trausti Reynisson, rit- stjórar Ísafoldar. Í tilkynningu frá Birtíngi segir að áform séu uppi um ný tímarit, m.a. á sviði íþrótta og sagnfræði, og mögu- leikar séu á að bæta þau tímarit sem fyrir séu. Aðspurðir neita talsmenn sameinaðra útgáfufélaga þeim orð- rómi að til standi að sameina Ísafold og Mannlíf. Hlutafé Birtíngs hefur verið hækkað í 215 milljónir og reiknað er með að velta komandi árs fari yfir einn milljarð króna. Birtíngur og Fögrudyr í eitt lægsta gildi í sumar, eða sem jafn- gildir 15,8% hækkun frá áramótum. Lokagildi gengisvísitölu krónunnar á árinu 2006 var 127,9 og hefur krónan því veikst um 18% á árinu. Lægst var gengi krónunnar hinn 30. júní þegar vísitalan var 134, að því er segir í Hálffimm fréttum Kaup- þings. Hæst var gengið hins vegar hinn 6. janúar þegar vísitalan var í 103,2 stigum. Velta á gjaldeyris- markaði hefur aldrei verið meiri og reyndist vera um 17,5 milljónir króna á dag að meðaltali miðað við um 8,4 milljónir á dag árið 2005. Úrvalsvísitalan hækkaði um 15,8% Gengi íslensku krónunnar veiktist um 18% á árinu   !" " # $ % $ &  ' ( )     *   % $ &# ' (  $ 4  $-4 . ,5 0 ,  56   ! ,& 5 %%0 7  ).   * !1  , % - " % 8 7 5 $9!%.&:     ;   ;   ;  ;    ;     ;  ;   < < < < < < < ÚRVALSVÍSITALAN hækkaði um 15,83% á árinu 2006 en um síðustu áramót stóð vísitalan í 5.534,39 stig- um en nú er hún 6.410,48 stig. Segir í Hálffimm fréttum Kaup- þings að markaðurinn hafi farið mjög vel af stað í ársbyrjun. Mesta hækkun Úrvalsvísitölunnar á einum degi nam 3,4%, hinn 5. janúar, en nokkuð var um miklar hækkanir á milli daga í upphafi árs og virtist stefna í enn eitt metárið í Kauphöll- inni. Úrvalsvísitalan stóð í 6.925,45 stigum í lok dags 15. febrúar og hafði þá hækkað um 25% frá ára- mótum. Lægsta gildi vísitölunnar Vatnaskil urðu með eftirminnileg- um hætti hinn 21. febrúar þegar Fitch Ratings breytti horfum á lánshæfi ríkisins í neikvæðar. Í kjöl- farið fylgdu margar neikvæðar skýrslur um horfur í íslensku efna- hagslífi og hjá íslensku bönkunum. Úrvalsvísitalan hríðféll og lækk- aði m.a. um 4,4% á einum degi hinn 24. mars og um 4,6% hinn 4. apríl. Úrvalsvísitalan náði sínu lægsta gildi hinn 27. júlí, 5.258,54 stigum Upp frá þeim tíma tók bæði gengi krónunnar og Úrvalsvísitalan að hækka á nýjan leik. Eftir lok viðskipta í dag stendur Úrvalsvísitalan í 6.410,48 stigum, hefur hækkað um tæp 22% frá sínu Í HNOTSKURN » Í upphafi árs var úrvals-vísitalan 5.534,4 stig. Við lok viðskipta í gær stóð vísital- an í 6.410,5 stigum og hefur því hækkað um 15,8% á árinu. » Gengisvísitala krónunnarvar í upphafi árs 103,2, en var 127,9 stig í gær. Því hærri sem vísitalan er, því lægra er gengi krónunnar. Eftir Arnór Gísla Ólafsson arnorg@mbl.is Í FRÉTT á viðskiptavef Berlingske Tidende er því haldið fram að sala FL Group á Sterling til Northern Travel Holding megi rekja til þess að „leynilegt“ ákvæði hafi verið í samn- ingi þegar FL Group keypti Sterling af Fons um að kaupin gætu gengið til baka ef tilteknum markmiðum væri ekki náð. Martin Niclasen, forstjóri FL Group Nordic, hafnar þessu og segist ekki vita til þess að slíkt ákvæði hafi verið í samningnum. Berlingske Tidende segir aftur á móti að heimildarmenn þess bæði í Danmörku og á Íslandi hafi staðfest þetta og salan á Sterling nú sé til komin vegna þessa ákvæðis. „Það er ekki óalgengt á Íslandi að það séu ákvæði þegar fyrirtæki eru seld. Ef fyrirtækið þróast ekki og nær ekki tilteknum málum, oftast á um einu ári, er seljandanum gert að kaupa fyrirtækið aftur,“ hefur Berl- ingske Tidende eftir íslenskum heimildarmanni. Kristján Kristjánsson hjá FL Gro- up segir engan fót vera fyrir fullyrð- ingum Berlingske Tidende og greini- legt að þeir séu á villigötum með heimildarmenn sína. En burtséð frá umræddri fullyrðingu séu síðan margar staðreyndarvillur í fréttinni um afkomu Sterling og eins um að tölur um afkomu félagsins séu ekki aðgengilegar, eins og t.d. einskipt- iskostnað vegna endurskipulagning- ar á rekstrinum. Allt séu þetta upp- lýsingar sem nálgast megi í uppgjörum FL Group. Segir endursöluákvæði skýra sölu FL Group á Sterling Berlingske Tidende fer algerlega villur vegar segir FL Group Villur FL Group segir staðreyndavillur í dönsku fréttinni. FL GROUP hefur fært stærsta hluta eignar sinn- ar í Glitni yfir í dótturfélög sín í Hollandi. FL Gro- up á 30,36% hlutafjár í Glitni en eftir tilfærsl- una verða tæp- lega 13,5% í eigu dótturfélagsins FL GLB Holding BV og 12,5% í eigu FL Group Holding Netherlands BV en bæði félögin eru að fullu í eigu FL Group. Eftir við- skiptin eru einungis 4,38% af hlutafé FL Group í Glitni skráð á FL Group. Samkvæmt tilkynningu til Kaup- hallar Íslands fóru viðskiptin fram á genginu 23,1. FL Group er ekki fyrsta félagið sem grípur til slíkra ráðstafana; Ex- ista er aðaleigandi Exista B.V. í Hol- landi sem heldur utan um stærri fjárfestingar Exista, m.a. um fimmt- ungshlut í Kaupþingi banka, fjórð- ungshlut í Bakkavör Group, og um 43% hlut í Símanum. Fyrir liggur að ná má fram miklu skattalegu hagræði með stofnun eignarhaldsfélaga í Hollandi vegna skattalegrar meðferðar á geng- ishagnaði. Kristján Kristjánsson hjá FL Gro- up segir þessa breytingu tengjast endurskipulagningu innan félagsins en dregur heldur ekki dul á að skattaumhverfið skipti máli og að í því efni vilji menn koma málum eins vel fyrir og hægt sé. Færir Glitn- isbréf til Hollands Hannes Smárason       !     " # "   + (  * #  ," " # $ =& ,5 04 .=& ,& 5=& ,  56   !62$ , %4 .=& %%04 .=& $-4 .=& 4  %=& &9!%.&:> " ).   %=& - " %> "=& 7 =& 7 5$= =& * !1 $/&=& 8=& -$ .* /  9? =& $4 .=& @5  "4 . " =& @5  "54 .=& A3= /=& B7C, D E!=& DE !  =& F   =& 0 .1/)  /$ %' * &:* "0& 234)  /$   4 "=& !./ =& 5 / "/ (                                                                              "1 0%.  "  D + %"# ).*                                                          1    1 1 1 1                1 1                          1    F%. +%G ! ,DH, =   $/" 0%.             1  1 1 1 1 *+  0%0  A"I *J6      ; ; $D*9 K,C        ; ; L,L B7C* %%=         ; ; B7C)=& A%%     ; ; @L9C K MN        ; ; FRJÁLS verslun útnefndi í gær mann ársins 2006 í íslensku við- skiptalífi við hátíðlega athöfn á Hótel Sögu. Heiðurinn féll í skaut Róbert Wessmann, hinum 36 ára forstjóra Actavis, og afhenti Geir Haarde forsætisráðherra honum viðurkenningarskjöld. Verðlaunin fékk Róbert fyrir einstakan árang- ur við stækkun fyrirtækisins. Ljósmynd/Geir Ólafsson Maður ársins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.