Morgunblaðið - 30.12.2006, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 30.12.2006, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2006 11 FRÉTTIR Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is MARKMIÐ með lagabreytingu um Flugmálastjórn Íslands sem sam- þykkt var á Alþingi sl. sumar, var að aðskilja eftirlits- og þjónustu- hlutverk Flugmálastjórnar. Var það gert með því að stofna hlutafélagið Flugstoðir ohf. um þjónustustarfs- semina en sérstök stofnun mun sjá um stjórnsýslustarfsemi, m.t.t. eft- irlits. Tilgangur Flugstoða ohf. er m.a. að annast rekstur og uppbygg- ingu flugleiðsöguþjónustu og flug- valla. Ákvörðunin byggðist á vinnu stýrihóps um framtíðarskipan flug- mála en í skýrslu hópsins kemur fram að viðamiklar breytingar hafi orðið á rekstrarumhverfi flug- samgangna á undanförnum árum. Ástæður breytinganna séu m.a. ör- yggis- og samkeppnissjónarmið. Samkeppni sé tryggð Í niðurstöðu stýrihópsins var m.a. vísað til þess að samkeppni væri haf- in í veitingu flugumferðarþjónustu. Hluti af eftirlitsverkefnum Flug- málastjórnar væri að hafa eftirlit með þjónustustarfsemi stofnunar- innar og til að koma í veg fyrir hugs- anlega hagsmunaárekstra var talið nauðsynlegt að aðskilja faglega yf- irstjórn eftirlits annars vegar og þjónustustarfsemina hins vegar. Fyrir liggi að flugstjórn- armiðstöðvar beggja vegna Atlants- hafsins muni sækjast eftir að yf- irtaka flugumferðarstjórn á Norður-Atlantshafi og mikilvægt sé því að veita samkeppnishæfa þjón- ustu hér á landi. Kjarasamningar lausir að ári Flugumferðarstjórar, sem sam- kvæmt frumvarpinu starfa frá ára- mótum hjá hlutafélaginu Flug- stoðum, telja að lífeyrismál sín séu í uppnámi við breytinguna og hefur aðeins þriðjungur þeirra ráðið sig til starfa hjá Flugstoðum. Formaður Félags flugumferðarstjóra (FÍF), Loftur Jóhannsson, hefur sagt að aldrei hafi verið útfært hver staða lífeyrismála starfsmanna yrði við breytinguna, en Ólafur Sveinsson, formaður Flugstoða, hefur hins veg- ar bent á að öllum væntanlegum starfsmönnum Flugstoða væru boð- in sömu kjör og þeir höfðu áður. Flugumferðarstjórar væru að nota tækifærið og krefjast launahækk- unar. Formaður FÍF segir slíkar yf- irlýsingar ekki eiga sér stoð í veru- leikanum. Kjarasamningar flugumferðarstjóra eru ekki lausir fyrr en eftir ár en flugumferð- arstjórar hafa hins vegar haldið fast við að semja beri við Flugstoðir um kjarasamninga og lífeyrismál. Stór hluti þeirra flugumferð- arstjóra, sem ekki hafa sótt um stöð- ur hjá Flugstoðum, fer á biðlaun ef málið leysist ekki. Leysist deilan ekki á allra næstu klukkustundum er ljóst að þjónusta á íslenska flugstjórnarsvæðinu skerðist, en hversu mikið eru menn ekki á eitt sáttir um. Formaður FÍF telur ljóst að flugfarþegar sem og flugfélög muni með áþreifanlegum hætti verða vör við skerðinguna í formi seinkana á flugi. Þá bendir hann á að fjöldi þeirra flugvéla sem koma megi inn á íslenska flug- umferðarstjórnarsvæðið haldist í beinu hlutfalli við fjölda flugumferð- arstjóra á vakt. Viðbragðsáætlun hefur verið und- irbúin hjá Flugstoðum og m.a. verð- ur hætt með flugumferðarstjórn í flugturninum á Akureyrarflugvelli en í staðinn kemur flugupplýs- ingaþjónusta með sama hætti og verið hefur um langt árabil bæði á Egilsstöðum og Ísafirði. Þá er verið að þjálfa upp flugumferðarstjóra hjá Flugstoðum. Þjónusta og eftirlit aðskilin en deilt er um lífeyrisréttindi Morgunblaðið/RAX Samið Þjónustusamningur milli Flugstoða og samgönguráðuneytis var und- irritaður í gær. (f.v.) Baldur Guðlaugsson, fjármálaráðuneyti, Sturla Böðv- arsson, Ólafur Sveinsson formaður Flugstoða og Þorgeir Pálsson forstjóri. Í HNOTSKURN » Lögum var breytt sl.sumar til að aðskilja þjón- ustu og eftirlit Flugmála- stjórnar. » Stofnað var hlutafélag íeigu ríkisins um þjónustu- hlutann, Flugstoðir ohf. » Í vetur var ljóst að flug-umferðarstjórar voru ekki sáttir og réðu aðeins 26 af 89 sig til starfa hjá félaginu. » Snýst deilan aðallega umkjaramál, fyrst og fremst lífeyrisréttindi. RÉTTARHÖLDUM yfir Calvin Hill, sakborningi í manndrápsmálinu í varnarstöðinni á Keflavíkurflug- velli í ágúst 2005 þegar hin tvítuga Ashley Turner úr flugliði varnarliðs- ins var stungin til bana, hefur verið frestað í Bandaríkjunum. Ástæðan er úrskurður dómara um að yfir- heyra verjanda sakborningsins um meint samtal sem fór þeirra í millum áður en Turner lést. Verjandinn var á þeim tíma ráðinn til að halda uppi vörnum fyrir Hill vegna ásakana um að hann hefði stolið fé frá Turner. Samkvæmt því sem fram kemur á fréttavef Bandaríkjahers um þing- haldið, mun verjandinn á þeim tíma hafa sagt Hill að einn möguleiki á að verjast þjófnaðarkærunni fælist í að Turner bæri ekki vitni. Þetta á Hill síðan að hafa fært í tal við þriðja að- ila og þar með brotið trúnaðarskyldu milli sakbornings og verjanda með tilheyrandi hagsmunaárekstrum. Úrskurður um skýrslutökur yfir verjandanum hefur verið kærður og kann málið að dragast til apríl nk. Réttarhaldi frestað HJÁLPARSTARF kirkjunnar hef- ur fengið tveggja millj. kr. gjöf til minningar um hjónin Kristbjörgu Halldórsdóttur og Leif Jóhannesson hárskera. Fer féð til að leysa börn á Indlandi úr skuldaánauð og koma í skóla; til vatnsöflunar í Malaví; til stuðnings munaðarlausum börnum í Úganda og til að styrkja íslensk ung- menni í námi sem veitir starfsrétt- indi eða inngöngu í lánshæft nám. Gjöf í minn- ingu hjóna ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.