Lesbók Morgunblaðsins - 26.01.2008, Qupperneq 1
lesbók
ÓÐURINN TIL GLEÐINNAR
VILJIÐ ÞIÐ FAGNA BRÆÐRALAGI MANNA? HÉRNA HAFIÐ ÞIÐ
ÞAÐ, MANNKYNIÐ EINS OG ÞAÐ ER Í REYND >> 15
Leikurinn lítur út fyrir að vera tapaður, fyrir okkur borgarbúa » 2
Mikines Yfirlitssýning á verkum færeyska málarans Mikines verðru opnuð í Kjarvalsstöðum í dag en Mikines var málari færeysku þjóð-
arinnar og þjóðarsálarinnar, á svipaðan hátt og Kjarval hér. Verkið hér að ofan er sjálfsmynd Mikines frá árinu 1933. » 3
Eftir Þröst Helgason
vitinn.blog.is
Árið 2006 var meistaraverk Irène Ném-irovsky, Suite Française, gefið út í enskriþýðingu og rataði á flesta vinsældalistaþað árið. Tveimur árum áður hafði bókin
komið út á frummálinu í Frakklandi og vakið mikla
athygli. Bókin inniheldur dagbókarfærslur Ném-
irovsky frá 4. júní 1940 til 1. júlí 1941 en þá var
Frakkland undir hernámi Þjóðverja. Dagbækurnar
mynda í raun tvær ófullgerðar skáldsögur eða nó-
vellur en Némirovsky ætlaði að skrifa þrjár til við-
bótar sem áttu að gerast á stríðstímum, en hún var
send í útrýmingarbúðir nasista í
Auschwitz í júlí 1942 þar sem
hún lést mánuði síðar.
Suite Française er einstakt
verk vegna þess að hún er skrif-
uð af gyðingi á hernámstíma og
birtir ekki síst forvitnilega mynd
af daglegu lífi undir oki nasisma,
tilfinningum hinna hernumdu og
fáránleika ástandsins. Fyrri sag-
an „Storm in June“ gerist í París
en sú seinni „Dolce“ fjallar um
samskipti nasista og íbúa í
frönsku sveitaþorpi.
Némirovsky var vinsæll höfundur í Frakklandi
fyrir stríð. Hún fæddist í Úkraínu 1903 en fluttist til
Frakklands árið 1919 eftir að hafa búið í eitt ár í
Finnlandi en þangað hraktist fjölskylda hennar und-
an rússnesku byltingunni. Hún byrjaði að skrifa 18
ára að aldri er hún stundaði nám við Sorbonne í Par-
ís. David Golder var fyrsta bókin sem kom út eftir
Némirovsky 1929. Útgefandinn hafði fengið hana
senda í pósti og vildi strax nálgast höfundinn sem
var hins vegar hvergi finnanlegur, útgefandinn aug-
lýsti eftir honum í blöðum sem bar ekki árangur
enda var Némirovsky á fæðingardeildinni. Þegar
hún loksins kom á fund útgefandans lýsti hann furðu
sinni yfir því hvernig svo ung kona gæti skrifað svo
frábært skáldverk. Némirovsky var neitað um
franskan ríkisborgararétt árið 1938 en ári seinna
turnaðist hún til kaþólskrar trúar og hóf að rita
greinar í andgyðingleg tímarit, sennilega til þess að
fela gyðinglegan uppruna sinn og verja dætur sínar
tvær ofsóknum. En allt kom fyrir ekki. Árið 1940
missti eiginmaður hennar vinnu sína og Némirovsky
fékk bækur sínar ekki lengur útgefnar.
Eftir dauða Némirovskys lágu bækur hennar
meira og minna í þagnargildi í sex áratugi en þá
treysti dóttir hennar sér loksins til þess að lesa dag-
bókarhandritið sem móðir hennar hafði skilið eftir
hjá henni. Þar leyndist Suite Française og síðan hef-
ur einnig verið gefin út skáldsagan Fire in the Blood
(2007) sem hún skildi eftir í handriti. Og í ársbyrjun
kom út bók sem inniheldur fjórar stuttar skáldsögur
eftir Némirovsky, The Ball, Snow in Autumn, The
Courilof Affair auk fyrrnefndrar David Golder.
Claire Messud skrifar inngang að bókinni og að auki
fylgir ritinu æviskrá höfundarins þar sem líf hennar
er rakið í tímaröð.
Frönsk
svíta
MENNINGARVITINN
Irène
Némirovsky
Laugardagur 26. 1. 2008
81. árg.