Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1976, Blaðsíða 1

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1976, Blaðsíða 1
EFNISYFIRLIT Samábyrgð Islands á fiskiskip- um: Viðtal við Pál Sigurðsson forstjóra. Sig. Brynjólfsson: Mennirnir og þjóðarskútan Brezki flotinn Sjórinn — gullforðabúr I fárviðri á Atlantshafi Sjóslysavarnir norðmanna Stýrið í SV Danskir hraðbátar Lloyds registur Uppsögn Stýrim.skólans Stormsveipir og þrumur Félagsmálaopnan Rannsóknarskipið Argos Frívaktin og m. fl. Forsíðumvridin er frá Önundarfirði SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR Útgefandi: F.F.S.I. Ritstjórar: Guðm. Jensson (áb). og Jónas Guðmundsson. Ritnefnd: Guðm. Ibsen, Jón Wium, Ólafur Vignir Sigurðsson. Varamenn: Ásgrímur Björnsson, Guðm. Jónsson, Guðni Sigurjónsson. Ritstjóm og afgreiðsla er að Bámgötu 11, Reykjavík. Utanáskrift: Sjómannablaðið Víkingur, Pósthólf 425, Reykjavík. Sími 15653. Setning, umbrot, filmuvinna: Prentstofa G. Benediktssonar. Prentun: ísafoldarprentsm. h.f. Árg. kr. 2.500.00 38. ÁRGANGUR - 8. TÖLUBLAÐ 1976 Til lesenda Víkings Þetta 8. tbl. Víkings er óvenju seint á ferðinni. Til þess liggja m.a. sumarleyfin. Eru velunnarar blaðsins beðnir velvirðingar á því og lofum við auðvitað að herða róðurinn, við að ná reglulegum útkomutíma. Það er okkur, sem við Víkinginn störfum í hvortveggja í senn gleðiefni og uppörvun, hversu vinsældir blaðsins hafa haldist og ekki einungis það, veruleg aukning hefir orðið að áskrifendum og það svo að um munar. Haldi svo fram, sem full ástæða er til að ætla að verði, þarf Víkingurinn engu að kvíða framtíðinni og leitast mun við, að bregðast ekki vonum lesenda um efnisgæði. Staðreynd er, að Víkingurinn, sem hefur látið sig varða og birt greinar um allflest þau mál, sem við kemur sjómennsku og sjávarútvegi hefir oft á tíðum verið á undan samtímanum, og gott er til þess að vita, að mörg velferðarmál, sem blaðið átti frumkvæði að, en þóttu ótímabær þegar túlkuð voru, þvkja nú í dag góð latína. Mætti þar m.a. nefna þann skort á vöndun i meðferð sjávarfangs, sem Víkingur fyrstur fjölmiðla birti ófáar greinar um, suinar ekki í vægum tón og ekki alltaf við jákvæðar undirtektir. Síðan hefir þó þróunin orðið sú, að segja má, að bylting hafi orðið í þessúm efnum og kössum fiskjar er nánast sáluhjálparatriði hjá þeim ágætu sjó- mönnum, sem leggja áherslu á og hafa aðstæður til að koma með vandaða vöru að landi. Víkingurinn hefir frá upphafi verið einn öruggasti tengiliður hinnar al- hliða þjónustustarfsemi, við útgerðir og sjómenn, ekki síst hvað varðar öll tæki sem sncrta rafeinda, véla, veiðarfæra- og öryggisbúnað skipa, svo að eitthvað sé nefnt. Umboðsmenn og framleiðendur hafa frá upphafi gætt þess og skilið, að hið besta er aldrei of gott í búnaði skipa og sjómanna. Þeim hefur alla tíð verið ljóst að Víkingur með sína miklu og öruggu útbreiðslu er einn sá sterkasti og áhrifaríkasti auglýsingavettvangur, sem völ er á, og kann blaðið þeim beztu þakkir fyrir mjög gott samstarf i þessari nauðsynlegu kynningarstarfsemi. í þessu blaði birtist ein þeirra ritgerða, sem viðurkenningu hlutu í rit- gerðasamkeppni, sem Sjómannadagsráð efndi til í vor; Sjómennirnir og þjóðarskútan. Höfundurinn er Sigurður Brynjólfsson fyrrv. íþróttakennari i Keflavík. Síðar verða svo birtar fleiri ritgerðar sem viðurkenningu hlutu og óhætt að fullyrða að margt er þar vel skrifað. Með komandi haustnóttum óskar Víkingurinn íslenskri sjómannastétt og öðrum landslýð gæfu og velgengni. G.J. VlKINGUR 233

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.