Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1976, Blaðsíða 31

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1976, Blaðsíða 31
Þetta hlýtur að hafa verið fjarska- lega kvalafullt fyrir hina slösuðu, en við því var ekkert að gera. Við höfðum bjargað þeim frá frekari meiðslum, en það var hið eina sem við gátum gert fyrir þá. Litlu seinna missti Holma, annar Finni, handfestu á ránni og kastaðist niður hallann. Við stýrishjólið þurfti 4 menn og þar, sem 3 voru úr leik voru aðeins 9 verkfærir menn, að meðtöldum trésmiðnum, kyndaranum (donkeyman), seglsaumaranum og 3 stýrimönnum, til að vinna á þessu stóra skipi við þessar erfiðu aðstæður. Finnar höfðu yfirleitt litlar áhafnir á skipum sínum, miðað við það, sem venja var ann- arstaðar, og nú þegar Moshulu barðist fyrir lífi sínu, í versta fár- viðri, með kjölfestuna úr lagi var skipshöfnin alltof fámenn. Að sjálfsögðu var ekki um neinn mat að ræða, um slíkt var ekki hugsað. Við höfðum unnið í sam- fellt 7 klst., eftir 13 tíma langa vakt á undan. Um kl. 3 eftirmiðdag, fengum við smáglas af víni frá kortaklefanum. Ég held að það hafi verið vel þegið, þótt hættulegt gæti reynzt að sleppa takinu á borðstokknum til kuls. Áreynzlan við að halda jafnvægi var mikil, og þreytandi. Menn héldu sér í skjóli við borðstokkinn, en sjórinn sem brotnaði á hlið skipsins, fossaði niður eftir þilfarinu til hlés, þar semlunninginvar í kafi. Við vorum þarna í röð, næstum alla leið milli stefnis og skuts, með nokkru milli- bili. Við höfðum gert allt, sem hægt var að gera og biðum nú, hugsunarlítið, eftir því, sem skeði næst, og við þurftum ekki að bíða lengi. Ég var nálægt stýrimanninum, sem var ágætur sjómaður, með mikla reynzlu að baki, þótt ein- kennilegt megi virðast, hataði sjó- inn og þó sérstaklega seglskip, ég er viss um að þessi dagur hefur ekki breytt skoðun hans. Ástandið á skipinu var óhugnanlegt. Við urðum vitni að því, þegar 170 feta löng talía losnaði af nálinni, tóið raknaði í sundur og trefjarnar hurfu út í sortann á skemmri tíma en hægt er að segja frá. Enginn hefði trúað þessu, nema þeir sem sáu það sjálfir. Mér varð litið fram eftir til framseglsins. Það var stórt og um 1 ’/2 smálest að þyngd og 90 feta langt. Það bólgnaði út af þunga stormsins og mér hryllti við að sjá sauminn gefa sig og rifu myndast og lengjast. Það er alvar- legur hlutur, þegar segl rifnar í tætlur og slæst til. Þetta segl var svo stórt, að vel hugsanlegt var, að það tæki hið háa stálmastur með sér. Ekki nóg með það, heldur gátu hin möstur skipsins einnig farið sömu leið. Möstrin voru í stál- hólkum festum við þiljur skipsins, hæglega gat farið svo, að þau rifu stálhólkana frá þilfarinu. Lægsta mastrið var 5 smálestir. Kæmi þannig gat á skipið, yrði litlu bjargað, því að neðanþilja var Moshulu, næstum einn gámur. Ég benti stýrimanninum á segl- ið, því að engin orð voru heyrð í þessum stanzlausa gný veður- ofsans. Hann fór að fikra sig fram- eftir og ég fylgdi eftir. Engar skip- anir voru gefnar enda þýðingar- laust. Við söknuðum hinna slös- uðu manna, þegar við fórum að eiga við seglið. Þegar tillit er tekið til hins mikla halla skipsins og veðurofsans, má það teljast krafta- verk að okkur tókst að ná þeim hiuta seglsins, sem næst var veðr- inu og það var byrjað að rifna, og koma á það böndum. Þegar séð var að meira yrði ekki aðgert, fikruðum við okkur niður á þilfarið. Áhöfnin samánstóð af Finnum, Álandseyingum (sænskumælandi) og nokkrum enskumælandi mönnum. Þetta voru allt samhentir menn, sem kom bezt í ljós við þessar erfiðu kringumstæður. Þar sem hver maður, var jafngóður og sá næsti. En hvað sem því leið, sáum við að Álandseyingarnir höfðu safnast saman í nokkru skjóli við ketil- rúmsvegginn og héldu fund. Við hinir biðum, vissum ekki hvað var að gerast. Stýrimennirnir virtust óvissir, þar sem þeir héldu sig aftar á skipinu. Þá komu fundarmenn Björgunarbáturinn Þorsteinn á siglingu í Reykjavíkurhöfn, áður en hann var afhent- ur í Sandgerði við vígslu fyrstu björgunarstöðvar SVFÍ í júní 1929. Síðar voru vélar settar í bátinn og hann staðsettur í Reykjavík. Nú er báturinn aftur heima í Sand- gerði, þar sem honum verður komið í naust í hinni nýju björgunarstöð Sigurvonar. Ætla björgunarsveitarmenn að breyta bátnum eins og hann var upprunalega. VÍKINGUR 263

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.