Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1976, Blaðsíða 41

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1976, Blaðsíða 41
gat haft þessi áhrif á gang mála. I.S. gleymir því að í samstarfsnefndinni eru sjó- menn og það voru sjómennirnir sem höfðu áhrif á samningana eins og þeir áttu auðvitað að gera. Svar við bréfi Sigmars til biaðsins. Upphaf bréfs Sigmars er, „fyrir hverja vinnur F.F.S.Í.“ Ég get vel skilið þessa spurningu Sigmars eftir að heyra viðhorf hans til samtakanna á síðastliðnu ári, þar sem nokkrir menn stóðu að því í Eyjum að vilja kljúfa sig úr heild- arsamtökum sjómanna, og vil ég þá spyrja hverra hagur var það ef tekist hefði að splundra samtök- unum? Afturámóti sakna ég þess úr því Sigmar hefur svona mikinn áhuga á félagsmálum að hann skuli ekki hafa verið einn meðal þeirra manna, sem komu frá Eyjum til að vera við samningagerðina, því miður vantaði hann í þann hóp, en af hverju það veit ég ekki. Varðandi það atriði að F.F.S.Í. hafi unnið einum hópi manna betur en öðrum get ég ekki tekið undir, vel getur farið svo að Sig- mar komist í þá aðstöðu að vinna eftir þeim samningum sem gilda fyrir farmenn og getur hann þá gert samanburð eða fengið upp- lýsingar hjá þeim mönnum, sem vinna eftir farmannasamningum í Eyjum, mikið þætti mér það ánægjulegt ef upp kæmi að ein- hverjir væru ánægðir með samn- inga sína. Ekki finnst mér Sigmar þurfi endilega að taka upp hanskann fyrir Sigurpál, mér finnst hann hafi gert grein fyrir sínum málum sjálfur og eftir langt viðtal sem við áttum saman, fannst mér ekki vera svo mikill skoðanamunur á milli okkar, að það bil væri óbrúanlegt, hvað samstarfsnefndina áhrærir vil ég vísa til fyrri ummæla minna þar um. Um viðtal það, sem ég átti við eina af konum varðskipsmanna þá get ég ekki skilið það hugarþel, sem bak við ummæli Sigmars liggur, auk þess er um algerðan misskiln- ing að ræða hvað félag þeirra áhrærir, þar átti að vinna að bættum samskiptum áhafna, út- gerðar og fjölskyldnanna, svo sem betri upplýsingar um ýmislegt, sem varðaði þau samskipti. Mér þykir æðimikið um alls- konar misskilning vera að ræða hjá Sigmari og hefði hann sjálfsagt minnkað til muna hefði hann til dæmis setið síðasta sambandsþing síðan verið í samninganefnd fyrir félag sitt. Ég er ekki á nokkrum vafa um að viðhorf hans hefðu breyst við nánari kynni af þeim málum sem að er unnið hverju sinni. Það er auðvitað nokkuð á sig lagt að sitja yfir samninga gerð dag eftir dag nótt eftir nótt. Ég skil menn vel sem hjá því vilja komast, en njóta þó alls sem fæst, og auð- veldur er eftirleikurinn; það er, að kasta hnútum í félagana, sem i eldinum stóðu. Hér með er iokið skrifum af minni hálfu um þetta mál. Ingólfur Stefánsson VÍKINGUR 273

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.