Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1976, Blaðsíða 19

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1976, Blaðsíða 19
Fendarinn er eitt merkasta hjálpartæki skipstjórnarmanna til þess að forðast tjón á skipinu í höfnum. Þeir geta orðið býsna stórir — eins og skipin, en hér birtum við mynd af stærsta fendara í heimi, en Gulf olíufélagið pantaði fjóra slíka. Þeir eru sex metra langir og fjórir metrar í þvermál. aðrar í 70 öðrum löndum, víðs- vegar um heim. Sem elsta og stærsta skipaflokkunarfélag heims, hefur stofnunin mikil áhrif á efna- hagslífið. Meira en þriðji hluti kaupskipaflota heims, er byggður og haldið við, eftir reglum sem Lloyd’s ákveður. Vátrygginga- félagið ásamt stálskipastöðvum og verkfræðingum, láta óhlutdrægni sitja í fyrirrúmi, en leggja áherslu á, að kröfur um styrkleika og nauðsynlegt viðhald, sé eftir sett- um reglum, sem kunnátta og reynsla hafa gefið. Lloyd’s skipa- listinn er þekktur og viðurkenndur um heim allan. í mörg ár flokkuðu menn skip í ýmsa mismunandi flokka, en í dag, er það flokkunin “A 1“ sem öll skip á sjó, verða að fullnægja. Teikn- ingar af skrokk og vélaútbúnaði, verða að vera fyrirfram viður- kenndar af Skipalista Lloyd°s. Oft er nauðsynlegt að gera breytingar, til þess að fá samþykki Lloyd’s. Stálið, sem nota á verður að vera reynt fyrirfram, smíða og steypu- hlutar, athugaðir og viðurkenndir. Eftirlitinu lýkur ekki fyrr en endanleg reynsluför hefur átt sér stað. Þegar skipið er fullsmíðað, VÍKINGUR eru skýrslur athugaðar af nefnd frá Lloyd’s., sem gefur síðan út flokk- unarskírteini. Allar upplýsingar um hvert einstakt skip, koma svo í skipalistanum, m.a. brúttó skráð tonn, rúmtak, þilfar, vélar, skipa- smíðastöð, sem byggt hefur skipið, eigendur o.fl. Flokkunarfyrirkomulagið hefur einnig verið tekið í notkun við aðra starfsemi utan skipasiglinga og Lloyd’s Register meðhöndlar önn- ur tæknileg verkefni, svo sem kjarnorkustöðvar, aflstöðvar, olíu- hreinsunarstöðvar, gas- og efna- verksmiðjur, o.fl. um alla veröld. Öll spursmál fá svör frá færustu sérfræðingum og öll vandamál leyst frá þessum aðilum. Lloyd’s Register á ekkért stofn- fé, greiðir engan hagnað, hefur enga hluthafa og engin tengsl við ríkisvaldið. Tekjur eru eingöngu greiðslur fyrir veitta þjónustu og hagnaður notaður til endurbóta og viðhalds stofnuninni. Eins og áður segir er breska Lloyd’s afar kröfuhart um efni og útbúnað skipa. Það þótti því tíð- indum sæta og vakti heimsathygli, þegar flokkunarfélagið veitti snemma á þessu ári, japanska stórfyrirtækinu Nippon Kokans skipasmíðastöðinni „Bláan stimpil“, sem viðurkenningu fyrir vandað stál og annað efni til skipa, sem aðrar greinar þessa risafyrir- tækis framleiða. I þessari viður- kenningu, sem er hin fyrsta í sögu Lloyd’s Register of Shipping, felst, að flokkunarfélagið viðurkennir framleiðslu hinna ýmsu hluta skipsskrokksins án hins venjulega eftirlits, sem reglurnar gefa fyrir- mæli um og tekur gildar tækni- legar lýsingar á efni og styrkleika- gæðum þess. Nippon Kokans skipasmíða- stöðin, eða NKK, er í Tsrunni í Japan og eitt stærsta framleiðslu- bákn i Japan, framleiðir t.d. um 21 millj. tonn af stáli og járni árlega. Fyrirtækið er eitt af 5 stærstu sinnar tegundar í heiminum og allt skipulag þess er álitið eitt hið fullkomnasta í heimi. i í biðstofu cinkaleyfisskrifstofuimar. ★ Gildar ástœdur. Þegar Mark Twain va eitt sinn í heimsókn hjá vini sínum um helgi eina, var hann spurður að sunnudagsmorgni, hvort bjóða mætti honum drykk fyrir morgunverðinn. Twain viðurkenndi, að sig langaði að sönnu í einn gráan, en yrði þó að af- þakka boðið af þremur ástæðum, í fyrsta lagi væri hann bindindismaður, í öðru lagi drykki hann aldrei fyrir morgunverð og í þriðja lagi væri hann þegar búinn að fá sér drjúgann sopa! 251

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.