Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1976, Blaðsíða 7

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1976, Blaðsíða 7
aðmíráls og hollensk, undir stjórn van Tromp aðmíráls á Ermasundi, sem heilsaði ekki. Blake skaut því fyrir framan flaggskip hollendinga aðvörunarskoti, van Tromp lét sig ekki. Skaut þá Blake á skipið og drap einn mann, en þá svaraði Hollendingurinn í sömu mynt og þannig hófst fyrsta stríðið milli Breta og Hollendinga. Marryat. Frederik Marryat, skipstjóri og rithöfundur, sem skrifað hefur margar æsispennandi skáldsögur, hafði ýmislegt annað á prjónun- um. Til dæmis merkjaflögg, sem skip nota við ýmis tækifæri. 13 slík flögg eru enn notuð af þeim sem Marryat bjó til, en öðrum hefur verið breytt. Korvettur. Á seinni heimstyrjaldarárunum, voru hin léttvopnuðu og snún- ingslipru skip, sem kölluðust kor- vettur mikið á ferðinni, sérstaklega voru þau hentug, sem fylgdarskip kaupskipalestanna, þar sem þau voru til aðstoðar stærri herskipum og voru alltaf á ferðinni, líkt og smalahundar. Til fyrirmyndar við byggingu þessara skipa voru litlu hvalveiðibátarnir, sterkbyggðir og hraðskreiðir, auk þess að vera snarir í snúningum. Freigátur voru stærri og betur vopnum búnar. Báðar þessar skipagerðir bættust brezka flotanum í síðasta stríði, og lánuðu Bandaríkin Bretum 102 freigátur. Þaraf fengu Rússar 28 og skiluðu aftur 27, en ein hafði farist. Þessum 27 freigátum var skilað til Japans þangað, sem eigendunum var gert að sækja þær, en það drógst, enda komust þær í gagnið á ný, þegar Kóreustyrjöldin hófst. Jolly Roger Hvernig sjórænngjaflaggið fékk nafnið ,Jolly Roger“ er ekki vitað, en þegar talað er um þennan fána, dettur mönnum í hug, hauskúpa með krosslögðum leggjum á svört- um grunni, en það voru til fleiri útgáfur af þessu hrollvekjandi merki. Stundum gat að líta heila beinagrind og gjarna mynd af foringjanum til hliðar, með brugðið sverð, svona til áherzlu á, að kaupskipa skipstjórum væri ráðlegast að gefast upp, án bar- daga. Ef kaupfar, þótt vopnað væri, hitti sjóræningjaskip á rúm- sjó, urðu þau jafnan að lúta í lægra haldi og var þá ekki að sökum að spyrja. En væri það herskip en ekki kaupfar, sem um var að ræða, horfði málið öðruvísi við. I febrúar árið 1721 hitti brezka herskipið „Swallow“ ræningja skipin „Ranger“ og „Royal Sover- eign“ á hafi úti. Herskipið neyddi ræningjana til uppgjafar og tók 300 fanga. 52 þeirra voru teknir af lífi, eftir réttarhöld í landi, hinir fengu ævilanga þrælkunarvist. Ví KINGUR 239

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.