Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1976, Side 24

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1976, Side 24
Eftirfarandi grein er tekin úr nóv.-des. hefti Skandinavisk Skib- fart ’75, og ætti að vera nokkuð forvitnileg því um er að ræða þá tegund hraðskreiðra báta, sem varðskips skipherrum okkar, leist bezt á að mundi henta okkur til gæzlustarfa í þorskastríðinu. Byggt á reynslu af fyrri tundur- skeytabátum hefur danski sjóher- inn endurbætt TB-68 áætlunina hjá Frederikshavn Skipasmíða- stöðinni A/S. Á árinu 1972 voru pantaðir 8 bátar, og 1974 2 í viðbót, þannig að áætlað er að byggja alls 10 báta. I byrjun nóvember s.l. afhenti skipasmíðastöðin fyrsta bátinn — WILLEMOES. Eftir að prins Henrik, hafði gefið bátnum nafn í júnímánuði, hefur umfangsmikil reynsla á honum farið fram, sem hefur sannað að báturinn full- OJLUNGSEN HF ÁNANAUSTUM SÍMI28855 Elzta og stærsta veiðar- færaverzlun landsins. nægir öllum þeim kröfum, sem menn gerðu sér vonir um. Við þyrftum að eignast 1—2 af slíkum varnarskipum. « Það hefur verið mjög erfitt verk fyrir skipasmíðastöðina, að byggja þennan tundurskeytabát, sem áð- ur hefur eingöngu smíðað venjuleg flutningaskip. Þetta er mjög ný- tískulegt skip, og flókið verkefni, sem gera miklar kröfur til stöðvar- innar og mannanna, sem þar vinna, einnig til þeirra aðila, sem leggja til efnið. Línur skrokksins eru „Round-bridge“, sem henta betur við aðstæður í Eystrasalti, heldur en „glide“ báts gerðin. Skrokkur og innrétting eru gerðar með tilliti til að báturinn þoli þung högg og til varnar ABC-vopnum. Þunginn er 240 lestir, og mesta lengd 46 metrar. Vélarnar eru sambyggðar Rolls Royce gastúrbínur og Gene- ral Motors dieselvélar og rafmagn framleiða þrír Forden rafmótorar. Hver gastúrbína drífur eina skiptiskrúfu og síðu skrúfur, sem eru tvær, ganga fyrir dieselvélum og eru til tilfærslu skipsins og stefnubreytinga. Hraði bátsins er sagður yfir 38 hnútar. Vopnaútbúnaður er fall- byssa, sem getur skotið eldflaugum og tundurskeytum, stjórnað með radar. Einnig 78 mm. loft- og „sö- máls“ byssa, tvö tundurskeytarör, 2 SSm eldflaugar, (yfir sjólínu) og sex skotrennur fyrir rakettur. Öllum vopnum er stjórnað með elektroniskum tækja útbúnaði. Skipshöfnin er 28 manns, þar af 6 yfirmenn. Verð hvers báts frá skipasmíðastöðinni er ca. 25 millj. kr. (d), en með öllum útbúnaði, tilbúinn til notkunar mun verðið verða ca. 50 millj. kr. Sjómenn — Útgerðarmenn Umboðsmenn um land allt BRUNABÓTAFÉLAG ÍSLANDS Sími 26055 (3 línur) - Laugavegi 103 256 VlKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.