Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1996, Page 11

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1996, Page 11
lagfæringar á kvótakerfinu. Því ber auðvitað að fagna ef rétt reynist og eftir gengur. Enn vantar þó á að kvótabraskið og nauðung sú sem sjómenn eru beittir fái stuðning svo lög- um verði breytt og braskið afn- umið. Ég vonast til þess að niðurstaða formannafundarins verði sú að við hvetjum alla alþingismenn til þess að styðja frumvarp þeirra Guðmundar Hallvarðssonar og Guðjóns Guðmundssonar alþingi- smanna um afnám leigukvóta- brasksins. Vantar íslenska ATVINNUSTEFNU Um alllangt skeið hefur ís- lensk farmannastétt átt undir högg að sækja í atvinnulegu tilliti. Það fækkar í farmanna- stéttinni og mestur hluti kaup- skipanna siglir nú undir erlend- um fánum. Við höldum því fram, forystumenn sjómanna, að það skorti verulega á að hér á landi sé rekin íslensk atvinnustefna. Þegar við tölum um íslenska atvinnustefnu þá eigum við að sjálfsögðu við það, að íslensk stjórnvöld eigi að standa vörð um íslenska atvinnu eins og frekast er kost- ur. Auðvitað er þetta sagt að því gefnu að á kaupskipaflot- anum starfi íslenskir undir- menn, ella verða aldrei til neinir íslendingar sem fá þjálfun og hafa áhuga á farmannsstörfum yfirmanna. En við verðum að ætla að svo framsýnir séu ís- lenskir ráðamenn að starfs- greinar, sem eru þjóðinni verðmætar, leggist ekki af. Það er nauðsyn að halda utan um öll íslensk atvinnutækifæri. Allt annað er feigðarflan í heimi þar sem samkeppni um störf fer vaxandi. Við erum tilbúnir að ræða og takast á við ýmsar breytingar í farmennskunni ef það verður til þess að efla á ný íslenska atvinnu í farmennskunni. Við sjáum ekki að laun okkar fólks séu þar sá þröskuldur að ekki sé hægt að gera út íslensk far- skip. Nágrannaþjóðir okkar hafa létt opinberum álögum af þessari atvinnustarfsemi hjá sér, til þess að standast þá hörðu samkeppni sem er í alþjóðlegum flutningum, og þannig fjölgað verulega á ný farmannastörfum. Að þessu leyti getum við tekið undir með því að segja: Aukum á ný ís- lenska farmennsku og framtíð allra íslenskra farmanna. NÝ hringferð í eilífðar- MÁLUM Á þessari ráðstefnu munum við leggja drög að því starfi sem framundan er. Allir okkar kjarasamningar eru lausir eins og annarra landsmanna. Ég ætla ekki að hafa mörg orð um það mál nú við setningu þess- arar formannaráðstefnu. Við erum nú að byrja nýja hringferð í þeim eilífðarmálum sem kjarasamningar eru í öllum launþegasamtökum. Þau mál fá sérstaka umfjöllun á fundum okkar næstu daga og vonandi verður forystuliðið samstiga í því að berjast af einurð og festu fyrir þeim rétt- lætismálum sem við setjum okkur á þessum formanna- fundi. Við munum fjalla um í sérlið á formannaráðstefnunni hvernig megi nota þær trúnað- arupplýsingar sem skipstjórar gefa upp til Hafró í aflaupplýs- ingum og um veiðisvæði. Jafn- framt að ný tækni í vinnslu upplýsinga opni ekki beint inn á togveiðar hvers skips og afla. Gerð verður grein fyrir tillögum að breytingum á lögum um veiðar togskipa innan tólf sjómílna. Útgeröarmenn — vélstjórar. Önnumst allar raflagnir og viðgerðir í bátum, skipum og verk- smiðjum. Áratuga þjónusta við íslenskan sjávarútveg tryggir reynslu og öryggi frá sérþjálfuöu starfsfólki.___________ SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR 11

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.