Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1996, Page 23

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1996, Page 23
greiðslur verða í þessu tilviki til 85 ára aldurs kr. 73.812.600,00 og barnalífeyrir að auki, já já enn ertu að lesa rétt tæpar sjötíu og fjórar milljónir. Inneign hans í Allianz hefði í þessu tilviki einnig orðið kr. 4.613.000,00. Á mæltu máli fjórar milljónir og sexhundruð þúsund. Og yrðu heildarörorkubætur. Þetta er eðli sameignarsjóða Varla passar þetta við fullyrðingar Sigrún- ar um að sjóðurinn erfi sjómanninn að miklu leyti. En hinu er ekki að leyna að það kemur fyrir að menn falli frá án þess að fá notið inneignar sinnar og ekki er um ekkju að ræða né börn undir 19 ára aldri. Þetta er eðli sameignarsjóða og meining þeirra. Það má segja að sjóðfélaginn sé að kaupa sér mjög öfluga og jafnframt dýra tryggingu fyrir sig og sína ef illa fer og ellilífeyri að auki. Vitið þið að 63.8% af greiddum lífeyri hjá LS á síðasta ári var vegna örorku, barna og maka. „Alltþaðfé sem inn í sjóðinn kemur mun með vöxtum fara út úr honum aftur íformi lífeyris. Það er öruggtþvíþað er enginn milliliður afneinu tagi sem hagnast á rekstri sjóðsins. Við sjómenn og útgerðir í landinu eigum og rekum þennan sjóð. “ 36.2% fóru í ellilífeyri. En þetta var slæmt ár. Þessar prósentur þyrftu helst að snúast við í framtíðinni. Það eru nokkrar smávægilegar villur í töl- unum hjá Sigrúnu sem ég eltist ekki við. En það sem hún segir um skattfrelsi eftir sjötugt er ekki rétt, lífeyrir er nú skattlagður að fullu. Eins er það alrangt hjá henni að skerðingar- reglan (lækkun um 0.4% fyrir hvern mánuð sem töku ellilífeyris er flýtt fyrir 65 ára aldur) hafi áhrif á rétt til makalífeyris. Ekkjan í dæminu hennar myndi því fá kr. 66.531,00 á mánuði en ekki kr. 50.618,00 eins og hún heldur fram. Rangt er einnig að einhver rét- tur glatist við það að hætta í LS og hefja greiðslu í Lífeyrissjóð verslunarmanna. Langflestir sjóðir eru aðilar að samkomulagi um samskiptareglur lífeyrisjóða og þar er tryggt að enginn réttur glatist við „flakk“ á milli sjóða. Undantekning frá þessu er þó Lífeyrissjóður opinberra starfsmanna og ein- hverjir smáir séreignasjóðir. VlTUM EKKI ÆVINA FYRR EN ÖLL ER Um dæmin hennar Sigrúnar að öðru leyti er það að segja, að augljóslega er hægt að greiða hærri ellilífeyri úr sjóði eins og Allíanz vegna þess að hann þarf aldrei að bera svona dæmi eins og að framan greinir. Þeir lofa 6% raunávöxtun næstu 50 árin sem vonandi gengur eftir, en þurfa svo ekkert að standa við það ef ávöxtunin reynist aðeins verða 4% á tímabilinu. En hjá LS þarf 4% raunávöxtun til að hægt sé að standa við skuldbindingar. Ellilíferyri hjá okkur verður örugglega hægt að hækka talsvert ef við náum 6% raunávöxt- un til langs tíma. Sigrún gerir mikið úr því að greiðslur úr LS séu skattlagðar en undan því sé mögulega hægt að komast hjá Allianz. Hefði nú ekki verið sanngjarnt að segja frá því í leiðinni að iðgjöid sjómanna til LS eru skattfrjáls (frá- dráttarbær frá skatti). En greiðslur til Allianz eru það alls ekki, enda er hann ekki lífeyris- sjóður. Þetta skiptir verulegu máli. Sigrún er í sinni grein að bera saman þýskan bundinn hávöxtunar bankareikning og íslenskan líf- eyrissjóð og gerir það með ósanngjörnum hætti. Að lokum þetta: Fyrir þá sem hafa það á hreinu að ekkert hendi þá á lífsleiðinni er tilvalið að greiða eingöngu í séreignarsjóð Allianz eða sambærilega sjóði. En fyrir okkur hin, sem vitum ekki ævina fyrr en öll er, er örugglega skynsamlegra að greiða í sameignarsjóð eins og Lífeyrissjóð sjó- manna. Sjómannablaðið VÍKINGUR 23

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.