Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1996, Síða 29

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1996, Síða 29
við en ekki inni í bugtinni, heföi hann ekki orðið fyrir kaðlinum þegar hann hrökk upp af pollanum. Það sé óskiljanlegt hvers vegna staðið var svo að verki þar sem stefnandi hafi áratuga reynslu til sjós, bæði sem stýrimaður og skipstjóri, og heföi ekki því átt að gera sér fiilla grein fyrir hættunni sem skapaðist við að standa svona að verki. Þá hafi stefnandi þekkt aðstæður á þessu skipi vel, þar sem hann hafi starfað á skipinu í tæp tvö ár sem sfyrimaður og verulegan hluta þess tíma sem yfirsfyrimaður. Hann hafi því þekkt vel til allra starfa um borð í skipum, hvort sem sé í höfn eða úti á sjó, og hafi margoft unnið við að leggja skipi að bryggju, bæði sem stjórn- andi í brú og sem stjórnandi á þilfari, eins og nú þegar slysið varð. Hafi stefnandi sýnt af sér gáleysi þegar hann hafi staðið inni í bugtinni við hífinguna og lagt sig þar með í hættu að óþörfu.“ Ástæða þess að ekki voru haldin sjópróf var sú að um erlent skip var að ræða, en Akranes er skráð á Kýpur. Niðurstaða dómsins í niðurstöðu dómsins segir meðal annars: ,Að áliti hinna sérfróðu meðdómsmanna er mjög líklegt að sú aðferð stefnanda að setja vafhinga um báða pollahausana og síðan áttur hafi gert það að verkum að tógið festist þegar skipið var keyrt áfram með þeim hætti sem gert var. Við þær aðstæður hafi stefnandi ekki haft nægjanlegt vald til að slaka á tóginu eins og þurfti. Atakið á tóginu og e.t.v. skekkja á ffernri pollahausnum hafi orðið til þess að tógið hrökk upp af pol- lanum og slóst í hönd stefnanda. Við þessar aðstæður má æda að stefnandi hefði átt að kalla til vanari menn sér dl aðstoðar, sem vom við vinnu aftur á skipinu.“ Atla til aðstoðar þegar slysið varð voru tveir hásetar, annar nýliði og hinn pólskur, og var erfitt að segja honum til verka. A afturskip- inu voru tveir menn, litlu vanari en þeir sem voru með Atla frammi á bakka. ,Af gögnum málsins liggur fyrir að þegar skip stefnda lagðist að bryggju í Salten í Noregi tiltekið sinn var ekki hægt að nota bógskrúfu vegna rafmagnsleysis. Vegna þess þurfti að nota springinn til að keyra skipið að bryggju að framan. Samkvæmt framburði stefnanda og 2. sfyrimanns, sem var við vinnu aftur á skipinu, keyrði skipstjórinn fullhratt í springinn sem varð til þess að stefnandi missti vald á tóginu með fyrr- greindum afleiðingum." Þrátt fyrir allt var Atli Helgason dæmdur til að bera ábyrgð á móti útgerðinni. PÓSTHÓLF 50, 620 DALVÍK, SÍMI 466 1670, BRÉFSlMI: 466 1833, GRÆNT SÍMANÚMER: 800 8670 scepiosí Óskum viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum gleðilegrajóla ogfarsældar á nýju ári.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.