Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1996, Page 37

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1996, Page 37
Til hliðar: Knattspyrnufélag Gullfoss stillir sér upp fyrir danskan Ijósmyndara. Félagsandi var góður um borð og menn voru hreyknir af hvíta og bláa félagsbúningnum. Neðar: Ársæll Jónasson kafari stjórnar verk- legri sjóvinnu í Stýrimannaskólanum veturinn 1953-’54. ar. Við vorum svo sem ekki óvanir því að gefa eitthvað til að liðka til í ýmsum höfnum og þá var allt opið, en þarna keyrði það úr hófi. Nígerískir tollarar komu eitt sinn um borð og sýndu útvarpstæki þernunnar mikinn áhuga. Töluðu um Iögreglu og dómara af því það var ekki skráð. Þegar ég gekk eftir þvi hvað þeir vildu sættu þeir sig við amerískar sígarettur,“ segir Þór. „Mútur þekkjast hvergi í Evrópu í dag, nema kannski í Mið- jarðarhafslöndum, og alls ekki í Ameríku. Þar eru tóbak og áfengi hvort sem er ódýr vara og því engin skiptimynt í viðskiptum. 1 Belgíu er þó ákveðin hefð fýrir því að gefa tollurum tvo pakka af sígarettum, meira af gömlum vana en sem mútur.“ Þór segir að töluverður munur sé á siglingum á Ameríku og Evrópu. Siglingin er lengri vestur um haf og þar er líka lengra á milli hafna en í Evrópu, sérstaklega í Skandinavíu. Nú sé jafnvel lestað og losað í tveimur Evrópuhöfnum á dag, sem auki álagið. Af erlendum hafnarborgum líkar honum best við enskar hafnir, sérstaklega Hull. „Enskir eru sérlega þægilegir í öllu sam- starfi. Þótt illa gengi á stundum var alltaf tekið létt á vandanum." Þór og Helga eiga þrjár dætur og þegar þær voru yngri nutu þær þess að pabbinn var í farmennskunni og gat keypt hluti sem ekki fengust hér. „Fram að fermingu keypti ég fyrir þær föt og annað. Þegar ég tók eftir því að peysa hvarf inn í skáp og sást ekki meir hætti ég að kaupa fat- nað og lét þær velja úr listum ef þær vildu. Seinna var úrval og verð alveg sambærilegt hér á landi og ekki ástæða til að standa í innkaup- um í erlendum höfnum. Núna er tíminn í höfnum líka svo stuttur að það er engin leið að fara í verslunarleiðangra.“ ÍSLENSKIR SJÓMENN EKKI ENDILEGA ÞEIR BESTU Talið berst að stýrimannamenntun fram- tíðarinnar og væntingum ungra manna til hennar. Þór segir að framtíðin sé ekki björt, enda sýni það sig í lítilli aðsókn í Stýri- mannaskólann. Önnur sérhæfing í þjóðfélag- inu hafi líka gert mönnum eldri en fimmtugt erfitt að breyta um starfsvettvang. „Samkeppnin í launum hefur gert það að verkum að íslenskir sjómenn hafa tapað. Hins vegar er það staðreynd að íslenskir sjó- menn eru þeir bestu; ekki endilega þeir bestu í heimi, heldur í vinnu við íslenskar aðstæð- ur,“ segir hann. Helga kemur inn í samtalið og er spurð hvernig henni finnist að fá bónd- ann alfarið inn á heimilið og hafa eytt ævinni við hlið sjómanns. „Pabbi var sjómaður og ég vissi því að hver- ju ég gekk þegar við giftumst. Það er ósköp góð breyting að fá hann alfarið í land, sér- staklega eftir að við urðum ein í kotinu. Flestir standa frammi fyrir breyttum aðstæðum á þes- sum aldri. Eg hafði heyrt frá öðrum sjó- mannskonum að breytingin yrði erfið en mér finnst það ekki,“ segir hún. Þór er spurður hvort hann hefði einhverju sinni séð eftir því að velja sér sjómennsku sem ævistarf. Hann þvertekur fyrir það. „Ég tók þessa ákvörðun þegar ég var sjö ára gamall og stóð fast við hana. Mér finnst ekki ástæða til að súta það sextíu árum síðar, enda er ég sáttur við mitt. Ég er að byggja sumar- bústað með fjölskyldunni en það tekur enda. Hvað ég tek mér fyrir hendur er ekki ákveðið. Starfslokin eru ekki slæm hvað varð- ar vinnuna heldur það að lítil laun hrapa nið- ur í ekki neitt,“ segir Þór Elísson sem lifað hefur gífurlegar breytingar í íslenska kaup- skipaflotanum. SJÓMANNABLAÐIÐ VfKINGUR 37

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.