Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1996, Side 54

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1996, Side 54
Samþykktir formannaráðstefnu Farmanna- og fiskimannasambands íslands haldin á Akureyri 27.-29. nóvember 1996: Mikið starf unnið á Akureyri Endurbætur á húsi Sjómannaskólans Formannaráðstefna Farmanna- og fiski- mannasambands Islands, haldin á Akureyri 27.-29. nóvember 1996, skorar á stjórnvöld að gera nú þegar áætlun um gagngert viðhald og endurbætur á Sjómannaskóla- húsinu í Reykjavík í samræmi við úttekt sem gerð var á húsinu fyrir nokkrum árum. Aætlunin geri ráð fyrir að framkvæmdum verði lokið á þremur árum og tryggt verði fyrirfram nægjanlegt fjármagn til fram- kvæmdanna, þannig að þeim verði Iokið innan þess tímaramma sem settur verður í upphafi. Greinargerð: Sjómannaskólahúsið var vígt og tekið í notkun árið 1945. Þá var endanlegum frágangi ekki lokið og frágang- ur lóðar að mestu eftir. Frágangi er ekki iokið enn. Frá því að húsið var tekið í notkun upphaflega og fram til dagsins í dag eða í rúm fimmtíu ár hefur nánast ekkert viöhald farið fram á húsinu og hafi eitthvað verið gert hefur verið um að ræða bráða- birgðaklastur. Sú aðstaða eða öllu heldur aðstöðuleysi sem húsið býður upp á í dag er engum bjóðandi, hvorki nemendum né starfsmönnum. Því miður virðist sem stjórn- völd telji að aðstaða til fagmenntunar sjó- manna sé eitthvað sem ekki þurfi að sinna. Sú lítilsvirðing við sjómenn sem birtist í af- stöðu stjórnvalda til endurbóta á húsinu er með ólíkindum og næsta víst að öðrum starfsstéttum er ekki boðið upp á slíkt. A.m.k. verður ekki séð af afstöðu stjórn- valda að þau geri sér grein fyrir að þeir sem starfsmenntun sína sækja í umrætt hús skapi eftir nám sitt með störfum sínum lang- stærstan hluta af útflutningsverðmætum þjóðarbúsins. Hjá þjóð sem á nánast allt sitt undir góðum aflabrögðum og velgengni í sjávarútvegi er það þjóðarskömm aö ekki er búið að starfsmenntun þeirra sem eru lykil- menn greinarinnar af myndarbrag, bæði hvað varðar húsnæði og tækjakost. Fjárveitingar til Stýrimannaskólans Formannaráðstefna Farmanna- og fiski- mannasambands fslands, haldin á Akureyri Kristján Halldórsson, skipstjóri á Svalbak. 27.-29. nóvember 1996, lýsir furðu sinni á afstöðu Alþingis til fjárveitinga til rekstrar Stýrimannaskólans í Reykjavík og skorar á það að bæta nú þegar úr því ófremdarást- andi sem þar ríkir. Ráðstefnan vekur sér- staka athygli á þeirri alvarlegu staðreynd að á þessu skólaári skuli 3. stig við Stýrimanna- skólann í Reykjavík ekki vera starfrækt og að þeim nemendum, sem sóttu um skólavist til áframhaldandi náms sem þeir hófu tveimur árum fyrr, var vísað frá. Minnkandi aðsókn að skipstjórnarnámi á undanförnum árum mun óhjákvæmilega leiða til þess að skortur verði á skipstjórnar- mönnum með fyllstu atvinnuréttindi til starfa á kaupskipum og varðskipum eftir fáein ár. í þessu sambandi minnir ráðstefnan á að FFSÍ hefir, um árabil, hvatt til og reyndar tekið þátt í tillögugerð sem lýtur að endurskipulagningu skipstjórnarnámsins sem ráðstefnan telur, til lengri tíma litið, vera lykilinn að því að unga menn og konur fysi að nema skipstjórnarfræði og leggja fyrir sig skipstjórnarstörf, en án árangurs hingað til. Með tilliti til þess sem að framan segir lýsir ráðstefnan yfir ánægju með framkomn- ar tillögur um „skipan skipstjórnarnáms“ sem menntamálaráðuneydð sendi frá sér í júní sl. þótt einhverju þurfi að víkja þar til, sbr. t.d. athugasemdir FFSÍ dags. 2. ágúst 1996. Ráðstefnan leggur áherslu á að menntamálaráðuneytið geri nú gangskör að því að ljúka við tillögurnar sem allra fyrst svo hægt verði að hefjast handa við undir- búning að gildistöku þeirra. í þessum efnum telur ráðstefnan að tími framkvæmdanna sé löngu kominn. Ráðstefnan tekur undir allar tillögur Skólanefndar Stýrimannaskólans í Reykjavík sem koma fram í umsögn hennar um tillögur menntamálaráðuneytisins, ekki síst að skólinn verði einn þeirra framhaldsskóla sem bjóði upp á nám á sjávarútvegsbraut, en ekki einungis sérgreinahluta hennar eins og tillögur ráðuneytisins gera ráð fyrir. Leggur ráðstefnan líkt og skólanefndin áherslu á að skólinn fái fjárveitingu í þessu skyni á fjár- lögum fyrir árið 1997 þannig að hann geti boðið upp á kennslu á sjávarútvegsbraut haustið 1997 og kennsla fagnáms samkv. nýju kerfi geti mögulega hafist haustið 1998. STCW-samþykktin Formannaráðstefna Farmanna- og fiski- mannasambands íslands, haldin á Akureyri 27.-29. nóvember 1996, krefst þess að sam- gönguráðherra hlutist til um eftirfarandi: Að STCW-samþykktin verði gefin út í heild, á íslensku, með þeim breytingum sem taka gildi 1. febrúar 1997, að ákvæðum Sjómannalaga, sem fjalla um hvíldartíma sjómanna, verði breytt til samræmis við hvíldartímaákvæði STCW-samþykktarinn- ar, sem taka gildi 1. febrúar á næsta ári, og að þær reglugerðir sem STCW-samþykktin áskilur verði gefnar út. Greinargerð: Á árinu 1995 gerðist fsland aðili að STCW-samþykktinni. Hins vegar 54 Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.