Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1996, Page 64

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1996, Page 64
Frasögn af túr í seinna stríði með ísvarinn fisk til Englands og heim aftur sjonpípu kafbáts Ljósmyndin er grein Finns óviðkomandi, en myndin, ásamt fleirri myndum í blaðinu, er fengin úr bók sem heitir Captains Album, og hefur hún að geyma margar glæsilegar myndir sem teknar voru á seglskipum. Það komu ýmis atvik fýrir í þessum túr og greint verður frá þeim í þeirri röð er þau gerðust. Ég var ráðinn til að fara með þetta skip, Síldina GK 140, þvi skipstjórinn þurfti að vera í landi þennan túr. Stýrimaðurinn hafði veikst snögglega og varð að fara í land. Þetta gerðist allt sama daginn og ég varð að fara strax vestur á land og taka fisk. Fór af stað frá Reykjavík til ísafjarðar síðdegis 8. mars 1941, sama dag og Reykjaborg fór af stað til Englands sína hinstu för. A leiðinni vestur fórum við inn á Patreksfjarðarflóa, því Gísli Bjarnason, skipstjóri á Verði, og skip- verjar voru með og fóru um borð í bát er sótti þá út á flóann. Einnig var Arni Ingólfsson á Skutli með og skipverjar, þeir fóru í land á ísafirði. Þangað komum við að kvöldi 9. mars. Kominn stormur af suðri Daginn eftir fengum við þann fisk sem skipið tók og vorum búnir að ísa hann nokkru eftir miðnætti. Þá var strax lagt af stað til Hafnarfjarðar og er komið var að Bjargi fór vindur vaxandi af sunnan. Að Öndverðarnesi komum við klukkan tíu um kvöldið 11. mars, en þá var kominn stormur af suðri. Það var stoppað norðan við nesið og látið reka þar. Það voru engar veðurfregnir sendar út og eigi mátti minnast á veður er talað var í talstöð. Loftvogin stóð illa, ég bjóst við því að vindur snerist til suð-vesturs, sem og varð. Fór inn í klefa minn og opnaði útvarps- tækið og fór að hlusta. Þá heyri ég að skip- stjórinn á bv. Rán fer að segja frá árásinni á línuveiðarann Fróða, sem gerð var þá um morguninn, og afleiðingum hennar. Þar drápu kafbátsmenn fimm íslenska sjómenn. Ég þekkti þessa menn flesta, skipstjórinn á Fróða var skólabróðir minn úr Stýrimanna- skólanum. Mér varð svo mikið um að heyra þetta að ég fór str^x fram í stýrishúsið og setti á fulla ferð, fór út með nesi og var við Öndverðarnes klukkan ellefu, með stefnu á Reykjanes. A var stormur af suðri. Um nóttina gekk veður til suð-vesturs og vesturs og við slóuðum meðan veðrið var sem verst. Til Hafnarfjarðar komum við klukkan fimm síðdegis 12. mars. Engum af áhöfninni sagði ég frá þessu, það kom í fréttum þennan dag og þeir heyrðu það þá. Ég sá rottu koma ofan af bátadekki Stýrimaðurinn var enn veikur og sá sem hafði verið ráðinn vildi ekki fara. Þá varð það að ráði að skipstjórinn kom um borð, en ég fór sem stýrimaður. Enginn af áhöfninni fór í land. Alden var að fara til Englands með ísvarinn fisk og það var ákveðið að Síldin og Alden hefðu samflot út og upp, sem og varð. Um miðnætti var lagt af stað frá Hafnar- firði. Þegar skipinu var snúið frá á spring, og = HÉÐINN = ]_ r. i s MIÐJA ' i Hönnun • smíði • viðgerðir • þjónusta STÓRÁSI 6 • 210 GARÐABÆR • SÍMI 565 2921 • FAX 565 2927 64 Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.