Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1996, Page 66

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1996, Page 66
Framhaldssaga - 2. hluti værvt ævintýri rennuna, því ekki var hægt að snúa við í henni. Vélstjórinn taldi að það væri eitthvað að skrúfunni, en það sást ekki vegna þess hversu sjórinn var mórauður. Af þessum ástæðum var farið inn í dokk og fenginn kafari, hann kom upp með fiskikörfu er farið hafði upp á annað skrúfublaðið. Þetta tók það langan tíma að við komumst ekki út fyrr en á næsta flóði, þá reyndist allt í lagi og haldið var af stað. Þegar birti sáum VK> REKALD OG BRAK Á SJÓNUM AJden beið á fljótinu. Strax var farið af stað heim á Ieið og haldið norður Irska-kanal og með landi að Butt of Lewis. Þaðan var stefn- an sett á Ingólfshöfða. Norðan við Færeyja- bankann mættum við skipalest á austurleið. Við sáum nokkra ljósblossa suð-vestur og vestur af okkur og eitt skip er öslaði framhjá okkur, sennilega korvetta. Veður var þá norð-austan sex til sjö vind- stig, nokkur sjór og skýjað. Þegar birti sáum við ýmislegt rekald og brak á sjónum, einnig olíubrák á nokkru svæði. Nokkru seinna sást tundurdufl fljóta aftur með bakborða í u.þ.b. þriggja til fjög- urra mílna fjarlægð. Meira bar eigi til tíðinda sem eftir var leiðarinnar heim og veður fór batnandi er nær dró Iandi. Við komum að Ingólfshöfða sem ætlað var og haldið var vestur með landi. Við Vestmannaeyjar höfðum við samband við bát sem var á leið til hafnar þar og skip- stjórinn var beðinn að hringja til Hafnar- fjarðar og láta vita að Síldin og Alden væru við Eyjar á heimleið og allt væri í lagi um borð, sem hann og gerði. Talstöð mátti ekki opna á þessari Ieið yfir hafið nema í neyðartilfelli, hún var innsigluð. Það kom í ljós er þeir atburðir sem höfðu orðið, þ.e. er árásin á Fróða og Reykjaborg, að íslensku skipin er sigldu ein síns liðs voru gott skotmark hjá kafbátum þegar gott veður var og myrkur. Þá var ekki lengur hægt að tala um íslen- sku skipin og að sjómennirnir nytu öryggis vegna hlutleysis þjóðarinnar og vopnaleysis, því við vorum að flytja nauðsynjar til eins stríðsaðila. Þessi ferð endaði giftusamlega er bæði þessi skip voru bundin við bryggju í Hafnar- firði og við gengum í land. Nokkru seinna var Síldin útbúin á togveiðar og við fiskuðum í Faxaflóa og víðar. 66 „Nei, ég var ekki sofnaður," sagði ég, þrátt fyrir að ég hefði verið sofnaður. „Heyrðu,“ sagði hún, „ég ætla að hugsa til þín á meðan þú ert á sjónum, kannski heyrumst við þegar þú kemur í Iand.“ „Já, gerum það,“ var það eina sem ég gat stunið upp. Með það kvaddi hún. Ég var glaðvaknaður, hún hvarf ekki úr huga mér. Kynni okkar höfðu verið með einstökum hætti. Ég fór á bókasafnið og kvennaveiðar voru eins fjarri mér og hugsast gat. Þar hitti ég hana, fór með henni á kaffihús og þaðan heim til hennar, var hjá henni og naut hennar, síðan er eins og hún vilji bæði halda í mig og sleppa mér. Þessi fallega kona, ég veit hvað ég vil, ég vil hana. Senn kemur að því að ég fari á sjóinn. Það er eitt sem ég get gert, það er fyrir mig, það er að Iáta sem mér standi á sama þar til ég fer á sjóinn. Ekki reyna að hitta hana, alls ekki hringja til hennar og þaðan af síður fara til hennar. Ég sagði við sjálfan mig: Stattu þig. Vertu ákveðinn. Ég sofnaði ekki, hvað sem ég reyndi. Það var að nálgast hádegi, ég lá í rúminu og reyndi hvað ég gat að hugsa um eitthvað annað en hana. Síminn hringdi, skyldi það vera hún? Ég svaraði. „Blessaður, strákarnir koma í land í fyrramálið og það verður farið aftur á sjó eftir þrjá daga, þú fylgist betur með.“ Það var útgerðarstjórinn sem hringdi. Jæja, þá vissi ég það. Það eina sem mér kom til hugar var að þrífa í kringum mig, varð að dreifa huganum. Það var af nógu að taka, ég hafði ekki þrifið lengi. Eftir nokkra stund fannst mér nóg gert, vissi sem var að hægt var að gera betur en ákvað að láta þetta duga. Dagurinn leið hægt, en Ieið. Um kvöldið ákvað ég að ganga niður í bæ. Það var gott veður en fátt fólk á ferli. Þá fáu sem ég kan- naðist við forðaðist ég. Hafði ekki áhuga á að ræða við neinn nema hana. Ég leitaði hennar á hverjum veitingastaðnum á eftir öðrum, en hún var greinilega ekki úti á lífinu. Ég drakk ekki mikið, vildi ekki vera áberandi fullur ef ég hitti hana. Það var ekki eftir neinu að hanga, fór heim og svaf. Næsti dagur leið í rólegheitum. Ég mætti um borð og það var vissulega gaman að hitta strákana aftur. Að minnsta kosti var ég laus við einsemdina. Strákana þekkti ég vel, var búinn að vera lengi til sjós með flestum. Eftir að við vorum lagðir af stað á miðin fór ég inn í klefa og ætlaði að lesa. Ég hafði ekki legið lengi í kojunni þegar Bjössi kom inn í klefann. Milli mín og Bjössa var sérstakt samband. Bjössi steig ekki í vitið og átti til að mismæla sig meira en aðrir menn. Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.