Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1960, Side 6

Náttúrufræðingurinn - 1960, Side 6
58 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN Vestan til og efst í hömrunum norðan í Úll'arsfelli kemur fram þunnt (1—1,5 m) lag, sem virðist vera jökulberg. Sunnan og aust- an í fellinu kemur þetta berg einnig fram á nokkrum stöðum, eins og sýnt er á kortinu, þar sem það er merkt T 2, en á jarðfræðikort- inu er þetta ekki sýnt sérstaklega. Brotlínur liggja um Úlfarsfell þvert á nokkrum stöðum, og þess vegna eru jökulbergslögin austan og sunnan á fellinu nú ekki í beinu áframhaldi af laginu vestan til á því. Tvær brotlínur eru sýndar á jarðfræðikortinu, en þær eru lieiri. Það atriði skal þó ekki rakið hér. Rétt ofan við Fellsmúlabæinn kemur þetta jökulberg fram, og liggur þar 2—2,5 m þykkt lag af því ofan á blágrýtinu. Neðst er það mestmegnis úr köntóttu grjóti, og eru steinarnir í því oftast nær 10—30 cm í þvennál. í því eru smálinsur af sandsteini og leir- steini, og basaltið í steinunum er hvað öðru líkt. Yfirleitt er bergið ekki ólíkt því, að um væri að ræða broturð jökuls. ísrákir hafa þó ekki fundi/.t þarna, hvorki á steinum né lieldur á undirlagi urðar- innar. Ofar í laginu ber meira á núnu grjóti í því, og þar er það yfirleitt úr fínna efni, og eins ber þar mun meira á mismunandi blágrýti. Gæti þetta bent til þess, að grjótið í þessu væri lengra að flutt en það, sem undir er. Að langmestu leyti er um blágrýti að ræða, en nokkuð er þarna líka af líparítmolum og jafnvel líparít- vikri. Þessir molar eru smáir, venjulega 2—6 cm í þvermál. Berg- lögunum hallar þarna 10—12° suðaustur. Örstuttu ofar og vestar er jökulbergslagið líka á yfirborði á all- stóru svæði. Þar er sýnileg þykkt þess um 4 m, og í því eru steinar allt að 80 cm í þvermál. Undirlag þess sést ekki, en það sem mest líkist jökulbergi liggur ofan á brúnleitum sandsteini, sem er ógreini- lega lagskiptur og minnir á túff. Þessi sandsteinn verður án skarpra takmarka að gráleitu jökulbergi, og eru rúllaðir steinar þar í mikl- um meirihluta. Á báðum þessum stöðum ber mest á molum úr gráleitu basalti í jökulberginu. Holurnar í þessum basaltmolum eru yfirleitt ekki fylltar, en aðeins klæddar kristalsskán. Sandsteinslínsur eru á stöku stað í jökulberginu, þær eru oft brúnleitar og minna á móberg. Einn stór steinn þarna er með greinilegum ísrákum. Á norðausturhomi fellsins kemur jökulbergið fram á nokkrum stöðum. Sökum hallans á berglögunum eru jökulbergslögin ekki sýnileg austan á Úlfarsfelli, en milli Úlfarsfells og Hafrahlíðar er allmikið

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.