Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1960, Blaðsíða 14

Náttúrufræðingurinn - 1960, Blaðsíða 14
66 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN Viðeyjarsund. Brimnes, norðan Kollafjarðar, er einnig úr grágrýti, og virðist ekki ólíklegt að um sama hraunstraum sé að ræða og þann er runnið hefur niður dalinn norðan við Mosfell. Á yfirborð- inu er um venjulegt grágrýti að ræða, en neðri hluti iiraunlagsins er bólstraberg (7. mynd). Þetta er þó sýnilega eitt og sama hraun, sem hér hefur að öllum líkindum runnið í sjó fram, og hefur sjáv- arborð þá verið svipað og nú er eða lítið eitt lrærra. Vestan und- ir Klifbergi, í fjörunni þar, kemur franr jökulbergsklöpp undir bólstraberginu (8. mynd). Það lítur nákvæmlega eins út og áður nefnd lög við Aragötu, Oddagötu og víðar, og eins og þar er mikið af skeljabrotum í því og jafnvel lreilar skeljar. Á flóði fellur sjór yfir þessi lög, og oft munu þau lrulin sandi og fjörugrjóti. Hins vegar eru lausir steinar úr þeim víðs vegar í f jörunni. Austan við Grundará á Kjalarnesi er flöt malaralda, sem nær frá þjóðveginum og niður að sjó. í hömrunum þar má sjá, að grágrýt- ishraunið hefur runnið upp að þessari öldu, og er hún því eldri en það. Þunnt lag af aur, með leir og möl, liggur frá öldunni inn undir grágrýtið. Jökulalda þessi er m. ö. o. frá fyrri ísöld, a. m. k. að mestu leyti, en vafalaust hefur hún ummyndazt mikið við átök síðustu ísaldarjökla og eins við það, að sjór gekk yfir hana við eða eftir lok síðustu ísaldar. Undir þessari jökulöldu er fagurlega rák- að og heflað tertiert blágrýti, sem sjá má við sjóinn vestan við hana. Ekki virðist ólíklegt, að þau jökulbergslög, sem hér hafa síðast verið gerð að umtalsefni, séu frá sama tímabili, þ. e. frá sömu ís- öld. Hins vegar verður að svo stöddu ekkert um það fullyrt, frá hvaða ísöld hins kvartera jökultíma þessi jökulbergslög séu, þó að það liggi vitanlega hendi næst að ætla þau vera frá næstsíðustu ís- öld, þ. e. þeirri ísöld, sem í Evrópu gengur undir nafninu Riss-, en í Norður-Ameríku Illinois-ísöldin. SUMMARY Tillite in the neighbourhood of Reykjavík by Jón Jónsson The State Electricity Authority, Geolhermal Department. In the neiglibourhood of Reykjavik tillite or tillite-like sediments have been found in several places. These sediments are of different age, and the most important localities have been indicated on the map (Fig. 1) as T I,

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.