Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1960, Blaðsíða 37

Náttúrufræðingurinn - 1960, Blaðsíða 37
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 89 Ránarkjarni (Alaria Pylaii). Þessi tegund er minni en hin fyrrtalda, blaðið er oftast egglaga og blaðgrunnurinn hjartalaga. Miðtaug blaðsins er ávöl niður úr, gróblöðin oft talsvert breiðari en á undanfarandi tegund, og öfug- egglaga. Leggurinn er á lengd 10—66 cm, blaðið er 14—34 cm á breidd og 30—100 cm á lengd. Blaðið er breiðast innfjarða, þar sem sjólaust er. Algengur meðfram allri ströndinni. Beltisþari (Laminaria saccharina). Leggur aðaltegundarinnar er sívalur venjulegast og frá 5—113 cm á lengd. Blaðið er 10—50 cm á breidd og allt að 200 cm á lengd Blaðgrunnur fleyglagaður á mjórri plöntum, en hjartalaga á hinum breiðari. Miðbik blaðsins eftir endilöngu er þykkt og leðurkennt og yfirborðið óslétt með smálægðum og listum á milli. Jaðrar blaðs- ins eru þynnri og bylgjóttir. Nýja blaðið vex í apríl—maí. Tegundin er breytileg. Mjóblöðótt afbrigði f. linearis vex við brimsamar strendur "við fjörumark. Er þá blaðið mjótt og sterkt. Breiðblaða afbrigði, f. latijolia vex á Vestfjörðum og Austfjörðum í djúpgróðr- inum. Aðaltegundin algeng meðfram allri ströndinni. Eyjaþari (Laminaria fœroénsis). Þessi tegund líkist mest beltisþaranum, sumpart aðaltegundinni og sumpart breiðblöðótta afbrigðinu. Aðaleinkenni tegundarinnar er, að leggurinn er holur. Leggurinn er á lengd 60—136 cm, blaðið á breidd 40—86 cm og á lengd 130—300 cm. Við A. og N.-ströndina. Kerlingareyra (Laminaria hyperboreai). Stórvaxinn þari, allt að því 5 metra langur, leggurinn (þöngull- inn) sívalur, gildastur neðst og fer smá mjókkandi upp á við. Blaðið er bæði breitt og langt og klofið í margar misjafnlega breiðar ræmur af ölduganginum. Ræturnar eru í ákveðnum langröðum. Nýja blaðið ekki fullvaxið fyrr en í apríl—júní eða jafnvel júlí (á Norðurlandi). Við A., N. og NV.-ströndina, algeng við SV. og S.-ströndina.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.