Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2008, Blaðsíða 78

Náttúrufræðingurinn - 2008, Blaðsíða 78
Náttúrufræðingurinn Gerður Guðmundsdóttir plöntu- vistfræðingur var ráðin til stofunnar haustið 2006. Hún stjómar gróður- vöktun á Vesturöræfum, þar sem meðal annars er notuð fjarkörtnunar- tækni til þess að fylgjast með hugsan- legum áhrifum Hálslóns á gróður. Þessi rannsókn er unnin fyrir Lands- virkjun og mun standa yfir næstu árin. Þá tekur Gerður þátt í gróður- rannsóknum vegna mats á umhverf- isáhrifum hinna ýmsu framkvæmda. Erlín Emma Jóhannsdóttir líffræð- ingur og meistaranemi við Háskóla íslands var ráðin sumarið 2004. Meistaraverkefni Erlínar lýtur að tegundagreiningu rykmýs úr ís- lenskum vötnum en verkefnið er unnið í samstarfi við Hilmar J. Malmquist á Náttúrufræðistofu Kópavogs og Jón S. Ólafsson á Veiði- málastofnun. Erlín vinnur að ýms- um rannsóknum á stofunni, t.d. um- hverfisvöktun vegna álvers Alcoa- Fjarðaáls í Reyðarfirði, auk þess að sinna rannsóknum á náttúrufari vegna mats á umhverfisáhrifum framkvæmda. Hún sér einnig um sýningarsal Náttúrugripasafnsins í Neskaupstað og náttúrufræði- námkeið fyrir böm á sumrin. Aslaug Lárusdóttir er skrifstofu- stjóri stofunnar og sér um ýmislegt sem tengist rekstri hennar gagnainn- slátt, heimasíðu og tölvumál. Sumarið 2007 unnu tveir sumar- starfsmenn á stofunni, þær Hrafn- hildur Ósk Unnarsdóttir líffræðing- ur og Berit Christensen plöntuvist- fræðingur. Á Egilsstöðum eru þrír starfs- menn. Skarphéðinn G. Þórisson líf- fræðingur hefur starfað hjá stofunni frá ársbyrjun 2000. Hann stjómar rannsóknum og vöktun á hreindýra- stofninum. Vöktunin felst fyrst og fremst í því að fylgjast með fjölda og dreifingu dýra allan ársins hring. Safnað er upplýsingum um felld dýr með aðstoð veiðimanna, en þær gefa m.a. upplýsingar um líkamlegt ástand dýranna og þá um leið ástand beitilands. Náttúrustofan leggur árlega fram tillögur um kynja- og svæðaskiptan veiðikvóta og um afmörkun ágangssvæða. Náttúrustofan er í nánu samstarfi við Hreindýraráð, Umhverfisstofn- un, sveitarfélög á Austurlandi og stofnanir þeirra og veitir ráðuneyti umhverfismála umsagnir og ráð um ýmislegt sem varðar náttúruvernd og hreindýrastofninn. Auk hrein- dýrarannsókna tekur Skarphéðinn þátt í mati á umhverfisáhrifum framkvæmda, þá sérstaklega hvað varðar varpfugla. Rán Þórarinsdóttir líffræðingur var ráðin haustið 2004 til hreindýra- rannsókna. Auk þess stundar hún meistaranám við Háskóla íslands þar sem hún vinnur að samanburð- arrannsóknum á hópamyndun andarunga á Mývatni og æðarfugls á Pollinum á Akureyri. Halldór W. Stefánsson sirtnir verk- efnatengdum rannsóknum fyrir hönd Náttúrustofunnar og í sam- starfi við Náttúrufræðistofnun Is- lands, ásamt Skarphéðni. Helstu verkefni Halldórs eru skráning á út- breiðslu og söfnun upplýsinga um varpfugla og vöktun gæsa á Austur- landi. Frekari upplýsingar og fréttir af starfsemi Náttúrustofu Austurlands má finna á www.na.is. 2. mynd. íapríllok er hlutfall hyrndra/kelfdra kúa kannað en geldar kýr eru þá búnar aðfeíla hornin. Á myndinni má sjá þrjátíu hyrndar kýr,fjórar kollóttar, þrettán kálfa og einn tarfá öðrum vetri austan í Laugarfelli norðan Snæfells þann 29. apríl 2007. Ljósm.: Skarphéðinn G. Þórisson. 78
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.