Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1938, Side 14

Náttúrufræðingurinn - 1938, Side 14
140 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll111111111111111111111111111111111111111111111llllllllllllllll"lllll'lllllllllllIIIHlllllllt unda sumarið að byrja, og aldrei hefir þorskinum liðið betur, en einmitt nú. Aldrei hefir hann verið jafn vel undir allt búinn og jafn fús til að bregða á leik eins og einmitt núna, nú er hann að komast á bezta aldur, en samfara því, er eins og grípi hann einhver óljós hneigð til þess að komast eitthvað burt, ein- hver óljós þrá virðist knýja hann að óþekktu marki. Fáir af fé- lögum hans fara á grunnmiðin í ár, flestir eru haldnir sömu þrá og hann sjálfur, þeir synda og synda með stuttum hvíldum, en láta þó einskis ófreistað til þess að afla sér hvaða fæðu sem er. Þegar tekur að hausta í áttunda sinn, hafa þeir þrátt fyrir allt ferðalagið safnað að sér mikilli forðanæringu. Þeir kenna ekki lengur þeirrar deyfðar, sem vön er að grípa þá á haustin, eða þeir svara henni að minnsta kosti á annan hátt en nokkurn tíma fyr. í stað þess að leita niður í djúpin og bíða þar af sér veturinn, halda þeir stöðugt áfram ferð sinni, hlið við hlið, enginn vill verða eftirbátur hinna, enginn vill gefast upp. Og eðlishvötin, sem hefir knúið þá af stað í þetta ferðalag, hefir séð svo um, að eftir því, sem ferðinni er haldið lengur áfram komast þeir í hlýrri og hlýrri sjó, lífsfjörið sljóvgast því ekki vegna kulda, en fgrðinni er stöðugt haldið áfram. En smátt og smátt fer að draga úr ferðaþránni, það er eins og umhverfið sé að verða betur og betur í samræmi við þorskana, enda eru þeir nú orðnir þreyttir eftir allt þetta strit og fegnir að setjast að og ná sér í ætan bita. Það er eins og það leggist í þá, að þetta vor verði eitthvað öðru vísi en öll hin, og nú er komið fram yfir nýjár. Lítið grunar þá, að þeir séu nú aftur komnir suður á Selvogsbanka, og eigi að fara að skila nýrri kynslóð til kom- andi tíma. En mennirnir í landi vita betur. Togari kom inn með ágætan afla rétt fyrir nýja árið, fiskurinn var frekar smár, en Rijög jafn, hann var veiddur í Jökuldjúpinu. Mennirnir í landi þykjast sjá það, eftir ýmsum sólarmörkum, að nú sé von á góðri vertíð. Og svo þegar gránar af degi á austurhimninum, þegar bát- arnir kljúfa bylgjur og brotsjói með hávaða og boðaföllum, til þess að komast fram á miðin, þegar þorskarnir finna einhvern innri lífsyl streyma í gegnum hold og merg, þar sem þeir eru að skapa nýja kynslóð, sem hér á að koma í þeirra stað eftir átta eða níu ár, kemur dauðinn í líki botnvörpu, og byrgir alla torfuna í gini sínu. Ef til vill sleppur þorskurinn okkar, eins og hann hefir gert mörgum sinnum áður, ef til vill á hann

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.