Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1938, Page 39

Náttúrufræðingurinn - 1938, Page 39
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 165 mimiiiiiimmiimimiiimiiniiiiiiimimmiiiiiiimiimmmmmiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiimimiiiiMiiiMiiiiiiiiiu gumpi er hann hvítur, undirstélþökur eru hvítar, á síðununt skiftast á hvítar og rauðbrúnar þverrákir. Axlarfjaðrir og undir- vængþökur dökkrauðbrúnar, að undanskildum þeim yztu, sem eru hvítar. Lithimnan ljósbrún. Nef og fætur brún-holdlitaðir. Væng- lengd 133—145 mm, á kvenfuglum stundum ekki nema 130—132 mm, neflengd 19—22.6 mm, ristarlengd 39—41 mm. Enginn veru- legur munur á karl- og kvenfuglum, kvenfuglar þó oftast minnl og ekki eins gráir á framanverðum hálsi neðan til. — K a r 1- o g kvenfugl í vetrarbúningi: Á veturna er rákin yfir Engjasvín. auganu og höfuð á hliðum ryðrautt, framanverður háls og upp- brjóst ljósryðbrúnt og vottar þá hvergi fyrir gráum lit á þessum stöðum. Að ofan er fuglinn allur miklu brúnni og fjaðrajaðr- arnir ryðlitaðri. Að öðru leyti eru vetrar- og sumarbúningur eins. — Ungir fuglar eru eins á lit og gamlir fuglar í vetrar- búningi, þó eru brúnsvörtu blettirnir á fuglinum ofanverðum minni, yfirvængþökurnar dálítið ljósari og þverrákirnar á síð- unum óreglulegri. Engjasvínið heldur sig helzt í röku, eða jafnvel þurru, ræktuðu graslendi með þroskamiklum gróðri, einkum þar sem mikið er af blómum, t. d. sóleyjum o. fl., einnig oft í gróðurmiklum smára- breiðum eða á kornökrum. Það gefur frá sér (karlfuglinn) mjög sérkennilegt hljóð á vorin og um varptímann, sem bezt verður táknað með „snarp arp“, og sem það oft lætur heyra tímunum.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.