Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1938, Síða 52

Náttúrufræðingurinn - 1938, Síða 52
178 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN • 1111111111 ’ 11111111111111111111111111111111111111111111111111111111111IIIII1111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111IIIIII grundinni, áður en hún var tekin til ræktunar, en hins vegar telja þeir vafalaust upp þær, sem mest hefir borið á og því verið ríkjandi plöntur í gróðurlendinu. Þessar tegundir, sem þeir nefna, eru nú að mestu horfnar úr túnstæðinu, og sumar með öllu, eða réttara sagt, þær munu hafa horfið, þegar landið var tekið til ræktunar, og ekki numið það á ný. Hin eina, sem ætla má að litlum breyt- ingum hafi tekið er sóleyjan (Ranunculus acer). Loðvíðir (Salix tanata) og grávíðir (S. glauca) finnast að vísu í túnstæðinu, en sáralítið er þar af þeim. Gulvíðir (Salix phylicifolia), blágresi (Geranium silvaticum) og smjörgras (Bartschia alpina) finnast nú aðeins í tóftarbrotum og lækjardrögum, en eru hvergi áberandi. Annars geri ég ráð fyrir að lækjardrögin hafi aldrei orðið fyrir neinni verulegri gróðurbeytingu. Ein tegundin, sem fyrr getur, þ. e. hvönnin (Archangelica) er horfin. Ég get fullyrt, að hún vex nú hvergi í túnstæðinu eða í grennd við það, og mér tókst ekki að finna hana nokkurs staðar í dalnum. Hygg ég, að hún sé horf- in þaðan með öllu. Hins vegar vex þar geitla (Angelica) en strjál og smávaxin. Það gæti í fyrstu virzt undarlegt, að þessi þróttmikla planta hefir horfið með öllu, jafnmikið og af henni var áður en byggð hófst í dalnum, en frásögn Sigfúsar Jónssonar gefur þar svarið. Hann segir svo eftir fyrsta búskaparveturinn sinn í Víði- dal: „Ég geri annars varla ráð fyrir að (hvann)njólar sjáist hér oftar, því að ærnar mínar átu þá alla og allt hvannagras, sem þær náðu í. Hið sama gerðu hestarnir og vetrungarnir tveir, er ég átti, voru eigi beztir, því að þeir átu ræturnar með, þá er þeir náðu þeim“. Með þessum hætti er það eigi að undra, þótt hvann- irnar séu horfnar, og sýnir þetta meðal annars, að tegundirnar eru nokkurn tíma að nema land á ný frá öðrum héruðum. En í næsta nágrenni dalsins mun vera lítið um ætihvönn. Ef saman eru bornar niðurstöður sirklana úr túnstæðinu (Tafla I. 1—3) og úr víðigrundinni (Tafla I. 6) er munur þessara gróðurlenda auðsær. Á víðigrundinni eru víðitegundirnar ríkjandi plöntur, en grösin, sem heita mega einráð á túnstæðinu, eru i greinilegum minni hluta. Þannig hefir spádómur Thoroddsens ekki rætzt enn um það, að frumgróðurinn legði undir sig túnið fljótt, eftir að bærinn færi í eyði. Þetta virðist í raun réttri undarlegt, þegar á það er litið, hversu þróttmikill víðigróðurinn er í kringum túnið, en þetta gæti bent í þá átt, hversu lengi runngróðurinn er að nema land á þeim stöðum, sem lífsskilyrðin eru ekki hin hag-

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.