Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1938, Side 56

Náttúrufræðingurinn - 1938, Side 56
182 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 111111111111111111111111111111111111111111111111111111 ■ 1111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111 ■ 111111111111111111111111111111111111111 > Fjórar hinar fyrst töldu tel ég líklegt, að hafi flutzt inn í dalinn rneð mönnum. Hinar heyra allar til villigróðri dalsins, en hafa vafalaust vaxið betur í túninu en annars staðar, meðan ræktunar- innar naut, og búa þær að því enn, að undanteknum tveimur þeim síðustu, sem virðast njóta jafngóðra skilyrða utan túnstæðisins sem innan þess. Það verður þannig ljóst, að nú eru eftir litlar minjar túngróð- ursins í Víðidal, enda þótt víðigróðurinn hafi enn ekki getað lagt túnið undir sig. En þar sem telja má vafalaust, að túnið hafi aldrei verið komið í fulla rækt, er það næstum undravert, hversu einstakar tegundir túngróðursins hafa haldið velli í baráttunni við villigróðurinn, sem vitanlega hefir aldrei verið upprættur þaðan. Að svo búnu læt ég staðar numið. Vel má vera, að rannsókn fleiri eyðitúna og samanburður þein-a við ræktuð afdalatún kynni að leiða til einhverra annarra niðurstaðna, en höfuðatriðum þess, er hér er sagt, mun það tæplega breyta. Akureyri, 10. febrúar 1938. Steindór Steindórsson. Úr bréfi frá Akwreyri. Frá Akureyri ritar Kristján Geirmundsson 31. maí: Auðnutittlingarnir mínir þrífast vel hjá mér í búrinu (sem er stórt og úti). f sumar er leið, verpti eitt par, og þegar ungarnir voru orðnir 8 daga gamlir, fór móðirin að leggja undirlagið að nýju hreiðri, og sjö dögum seinna var fyrsta eggið komið í það. Voru þá ungarnir úr hinu hreiðrinu skriðnir út á greinarnar fyrir þrem dögum. Báðar útunganirnar lánuðust vel. I vetur gat eg veitt tvo lifandi svartþresti, karl og kvenfugl, að eg álít. Þeir eru báðir í fuglabúrinu mínu og líður vel, og kemur vel saman við auðnutittlingana mína. Töluvert er hér í vetur af gráþröstum, og lítur út fyrir að þeir ætli að fara að koma hér á hverjum vetri. Eg náði einum fugli af L. rubecula (Gulbrysting, B. Sæm.), og á eg hann nú uppsettan. B. Sæm. getur um, að hann hafi aðeins einu sinni sézt hér á landi, fyrir um tuttugu árum. Hafi verið settur í búr, en sloppið eftir fimm daga. Ól. Friðriksson.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.