Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1977, Side 32

Náttúrufræðingurinn - 1977, Side 32
Þóroddur Guðmundsson: Gróður í Kerlingarfj öllum Sumarið 1963 og nokkur sumur þar á eftir var ég á skíðanámskeiði í Kerl- ingarfjöllum í sumarleyfum mínum. Ég gerði það mér til gamans og heilsu- bótar. Fjöllin eru það fegursta há- lendi, sem ég hef séð, og loftið tært og hressandi. Það var því ómetanleg heilsubót að dvölinni þar. Ekki spillti heldur námskeiðsfólkið, sem var frjálslegt og glatt. Ég hafði með mér Árbók Ferðafé- lags íslands 1942, þar sem Kerlingar- fjöllum er lýst á skýran og skemmti- legan hátt. Ekki er þó gróðurfarslýs- ingin á marga fiska. Um gróðurinn segir svo: „Það er óliætt að segja það um Kerlingarfjöll, að þau munu vera eitthvert hið gróðursnauðasta fjall- lendi á íslandi — og kann þá ein- liverjum að finnast langt jafnað.“ Við fyrstu sýn kom mér gróðurinn allt annað en fátæklega fyrir sjónir. Óvíða hef ég séð auðlegð l)lóma birt- ast með slíkri fegurð sem þar og hvergi á nýstárlegri hátt. Ég hugsaði mér því, að gaman væri að athuga gróður Kerlingarfjalla í þeinr tóm- stundum, sem ég fengi frá skíðaiðk- unum, og gera lista yfir hann. Lét ég nú ekki sitja við hugmynd þessa, en hófst þegar handa, þegar hlé varð á íþróttaiðkunum kvöld og morgna og miðjan dag. Ég hafði mikla skemmtun af þessu, og grasafræði- áhugi greip um sig meðal námskeiðs- gesta. Þeir buðu sig þegar fram sem sjálfboðaliðar við gróðurathuganir mínar, lögðu mér óspart lið og komu með plöntur á rninn fund. Þannig leið námskeiðstími sumars- ins 1963 fyrr en varði. Á sama hátt leið hann næstu sumur og allt til haustsins 1965, en þá fór ég síðast í Kerlingarfjöll um skeið. Ég naut allt- af hjálpar við gróðurathuganirnar, allir voru brennandi af áhuga. Jafn- vel forstöðumaður námskeiðsins, Valdimar Örnólfsson, varð gripinn enn þá meiri áhuga en aðrir. Tekið skal fram, að áhugi minn var ekki vísindalegs eðlis, heldur forvitni náttúruskoðarans, er hefur yndi af blómum, dýrum og steinum. Hér verð- ur aðeins minnst á gróðurfarið, þó að jarðfræði fjallanna sé ef til vill enn rneiri athygli verð. Hærri tind- arnir eru að mestu úr líparíti, og er sú bergtegund að vísu ekki gróður- sæl. Þeir ná um 1400 m yfir sjó, og eru af þeirri ástæðu einni fáskrúðug- ir. En því undraverðari er gróðurinn á hinum lægri þeirra, sem eru úr mó- bergi. Miðað við önnur hásléttusvæði er Náttúrufræðingurinn, 46 (3), 197G 142

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.