Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1977, Qupperneq 61

Náttúrufræðingurinn - 1977, Qupperneq 61
niðurlögum þessara sjúkdóma. í upphafi var prófessor Níelsi Dungal, forstöðu- manni Rannsóknastofnunar Háskólans við Barónsstíg, falið að beita sér fyrir rannsókn á þessum faröldrum, en síðar unnu þeir læknarnir Guðmundur Gísla- son og Björn Sigurðsson ötullega að Jjví að greina sjúkdómana og leita að sjúk- dómavöldum. Var verkefni þetta svo um- fangsmikið, að nauðsynlegt þótti að reisa sérstaka rannsóknastöð til að sinna jressu og svipuðum viðfangsefnum. Var í Jrví skyni sett á stofn Tilraunastöð Háskólans í meinafræði að Keldum, og var dr. Björn Sigurðsson skipaður forstöðumaður stöðv- arinnar. Dr. Páll A. Pálsson var í upphafi ráðinn sem dýralæknir að Keldum og hef- ur hann æ síðan verið þátttakandi eða leiðandi í fjölda viðfangsefna á sviði bú- fjársjúkdómarannsókna, sem þar hafa farið fram. Með góðri samvinnu tókst þessum aðilum að greina sjúkdómsvalda hinna nýkomnu búfjársjúkdóma; svo sem þurramæði og visnu sem reyndust veiru- sjúkdómar og finna prófanir á garnaveiki og bóluefni gegn lienni. Rannsóknir á riðu í sauðfé og fyrr- nefndum veirusjúkdómum urðu til Jtess að fram kom kenning um sérstakan flokk liæggengra smitsjúkdóma, sem aðgreina má frá bráðum og langvinnum sjúkdóm- um. Skýrði dr. Björn Sigurðsson frá þess- ari kenningu í jjremur fyrirlestrum, sem liann flutti í London 1954, og lilaut hún viðurkenningu vísindamanna um allan heirn. Dr. Páll A. Pálsson var náinn samstarfs- maður Björns, og er Páll meðhöfundur að flestum greinum, sem ritaðar eru um rannsóknirnar að Keldum, en við fráfall Björns 1959 varð Páll leiðandi í búfjár- rannsóknum stöðvarinnar. Hann liefur unnið að ])ví að skipuleggja nýjar rann- sóknir, til Jtess að sýna fram á skyldleika visnu og þurramæði og hefur gert mjög athyglisverða tilraun til að kanna hlið- stæðu í riðu sauðfjár við heila- og mænu- sigg meðal manna. Sérstaka þolinmæði þurfti að viðhafa til Jress að sýna fram á, að hinar seinvirku veirur væru sjúkdóms- valdar. Nákvæmni og þrautseigja Páls, kunnátta hans í meðferð dýra og sérstæð Jtekking á dýrasjúkdómum hefur því ver- ið veigamikill þáttur í því, að lausn hefur fengist á fjölmörgum vandamálum á Jjessu sviði. Á síðari árum hafa rannsóknir á Iveld- um meðal annars beinst að einangrun og ræktun á veirum, rannsóknum á sýkingar- tækni og könnun á áhrifum sýkilsins. Nýir menn hafa komið til liðs við þær rannsóknir, en dr. Páll A. Pálsson hefur ætíð verið hinn trausti meiður jjeirrar samvinnu, enda býr hann yfir víðtækri Jrekkingu og reynslu af áralangri glímu við Jtessi viðfangsefni. Dr. Páll hefur auk þess haldið uppi samstarfi við erlenda starfsbræður, sem hafa leitað til Keldna og sumir unnið Jtar um stundarsakir. Einn úr Jreim hópi er dr. Carlton Gajdusek, sem í ár hlaut Nó- belsverðlaun fyrir rannsóknir sínar á Kuru, sem er hæggengur veirusjúkdómur meðal manna. Er margt hliðstætt í athug- unum og ályktunum hans og þeirra manna, sem unnið hafa að veirurannsókn- unum að Keldum. Slurla Friðriksson. 171
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.