Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1977, Qupperneq 64

Náttúrufræðingurinn - 1977, Qupperneq 64
Hubertus Preusser: The Landscapes of Iceland, tyþes and regíons. Dr. W. Just b.v. Publishers, The Hague, 1976, 36S bls. Það rit, sem ber ofangreindan titil, var lagt fram sem doktorsritgerð við háskól- ann í Saarland vorið 1972. Þess er hvergi getið í ritinu, hvenær höfundur þess liafi dvalist á íslandi en það kemur þó fram, að hann hefur dvalist hér þrisvar þegar hann vann að samningu þess. Því má við bæta, að hann kom hér einnig á meðan gaus í Heimaey og skrifaði mjög greina- góða ritgerð um það gos. Auk þess ltefur hann skrifað greinar um uppblástur á Is- landi og um reitajörð. Eins og titill doktorsritgerðarinnar gef- ur til kynna fjallar hún um landslag á Islandi og skiptingu landsins eftir því. Skilgreiningu á hugtakinu landslag (land- scape) tekur Preusser eftir landa sínum, landfræðingnum J. Schmithúsen, sem mik- ið hefur skrifað um þetta efni, en sá hefur ekki mér vitandi beilt Jteirri skilgreiningu á íslenskt landslag, enda Jrótt hann hafi hingað komið sem Jrátttakandi f fræðslu- ferð erlendra jarðfræðinga 1960. Sam- kvæmt þeirri skilgreiningu, sem Preusser notar, tekur lnigtakið landslag til alls Jress, „ólifræns, lífræns og andlegs", sem setur ntark sitt á viðkomandi landslagssvæði (landscape region). Verður því að taka tiilit til einkenna af völdum landmótandi afla, innanvirkra og utanvirkra, svo og tillit til gróðurfars og dýralífs og einnig mannvistar. Fyrsti þriðjungur bókar Preussers er almenn lýsing á landinu, jarðfræðileg og landfræðileg, og tekur einnig til liagrænn- ar landafræði. Þessi lýsing er vandvirknis- lega unninn, með mörgum kortum og línuritum. Þá tekur við lýsing á helstu landslagsgerðum, en Jiær eru að mati Preussers 9: gróið láglendi, sandar, fjarða- lendi, túndru hásléttur, hálendi á eldri grágrýtismynduninni, gróðurvana basalt- hásléttur, jarðeldasvæði, jöklar og eyjar. Er höfundur fjölorðastur um jökla og jarðeldasvæðin, en Jtar greinir liann á milli Jreirra, sem myndast hafa á lilýviðris- skeiðum, Jteirra sem hlaðist hafa upp undir jökli, og nútímasvæða. Meginlandi Islands skiptir Preusser í 26 1. gráðu landslagssvæði og er Stór-Reykja- vík Jrað 26. Þar við bætast 4 eyjasvæði: Breiðafjarðareyjar, Hrísey, Grímsey og Vestmannaeyjar. Innan þessarra 30 aðal- svæða eru 68 2. gráðu svæði, og innan Jjeirra 41 3. gráðu svæði. Er síðari helm- ingur bókarinnar lýsing á hverju svæði fyrir sig. Bók Preussers er nær einvörðungu sam- tíningur (compilation). I ritskrá eru um 840 titlar og bókin morar af tilvitnunum, Jtær slaga hátt upp í 3000. Höfundur lief- ur tínt saman hið mikla efni af stakri samviskusemi, en leggur sjálfur lítið af mörkum út frá eigin athugunum nema sjálfa svæðaskiptinguna. Hann gerir yfir- leitt ekki upp á milli skoðana þeirra, sem vitnað er í, Jjegar um ólíkar skoðanir er að ræða, en rekur þær hlutlaust. Hann kann skil á flestum þeim erlendum ritum og ritgerðum um ísland, er varða við- fangsefni hans og Jjeint ritum íslenskum, er liafa útdrátt á erlendu máli, en íslensk rit, sem mjög varða svæðalýsinguna, svo sem Árbækur Ferðafélags íslands, liefur liann ekki getað notfært sér. Hann birtir Ijölda korta úr Jjeim ritum, sein ltann vitnar í, og honum hefur tekist að raða Jjúsundum Jjekkingarbrota saman í mynd, sem liægt er að átta sig sæmilega á, og er Jjað ekki svo lítið afrek. Hætt er þó við, að sumir lesendur eigi nokkuð erfitt með að sjá skóginn fyrir trjámergðinni. Mest gildi hefur bók Preussers að mínu viti sem næsta traust uppsláttarrit, Jjar sem fljótlegt er að finna hvað skrifað lief- ur verið á erlendum málum um landa- fræði og jarðfræði sérhvers Jjeirra mörgu svæða, sem landinu er skipt í, svo og um landafræði og jarðfræði íslands almennt. Raunverulega innheldur Jretta rit mjög mikinn fróðleik um ísland. Sigurður Þórarinsson. 174
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.