Andvari

Volume

Andvari - 01.10.1959, Page 46

Andvari - 01.10.1959, Page 46
156 ARNÓR SIGURJÓNSSON ANDVARI nokkru sinni hefur verið háð. Af þeim sökum einum, þó að ekki kæmi fleira til, er skiljanlegt, að atburðarins væri lengi minnzt. Telja má, að her beggja aðilja væri felldur í strá. Allir forystu- mennirnir í orustunni féllu, nema Sig- tryggur silkiskegg, enda segir í írskum heimildum, að hann hafi ekki í bardag- anum verið, heldur látið sér nægja að horfa á hann úr virkisturni Dyflinnar. Hinn írski bandamaður norrænna manna, Maelmortha konungur í Leinster, féll í öndverðum bardaganum, og komst eitt- hvað af liði hans undan á flótta. Sig- urður Orkneyjajarl og Bróðir féllu báðir. Síðustu leifar norræna hersins leituðu til strandar, og þar voru flóttamennirnir ýmist kurlaðir í fjörunni eða þeir drukkn- uðu í brimgarðinum. „Brjánn féll en hélt velli“, segir í íslenzkri vísu fornri. En sigur Brjáns var ekki mikill. Marg- aður sonur hans, er bjó írska liðið til orustu og stýrði því, féll í miðjum har- daga, sonur hans, Kerþjálfaður, er þá tók upp merkið, féll í sigrinum miðjum. í síðustu hríðinni, er harizt var við dreif norræna hersins í fjörunni, gekk yfir hann brotsjór, og þar drukknaði hann með fjandmönnum sínum. Enginn niðji Brjáns gat þá tekið upp rnerki hans. Af sonum hans lifði aðeins Dungaður, sem eigi getur hafa verið eldri en 11 ára, og móðerni hans var slíkt, að þess var engin von, að Irar hiðu cftir honum sem höfð- ingja sínum eða konungi: hann var sonur Kormlaðar. Irland beið orustunnar eigi bætur í áratugi, jafnvel aldrei. Víking- arnir norrænu áttu sér enga upprcisn eftir hana, og er eðlilegt að skoða hana sem lok víkingarinnar, herferðum Norður- landamanna til Vesturlanda eftir hana var öllum stjórnað af þjóðkonungum. Sigtryggur silkiskegg var áfram konung- ur í Dyflinni, en aðeins að nafni til, og aðeins vegna þess, að hann var slíkur aukvisi, að ekki þótti taka því að reka hann þaðan. Dyflinn var ekki lengur norrænt víghreiður, og ekki heldur lengur tengiliður milli norrænna manna og íra. Eftir Brjánsbardaga lokuðust leiðir íslend- inga um Hjaltland, Orkneyjar og Suður eyjar til írlands. Þeir áttu aðeins til minningar um þessa týndu þjóðbraut Darraðarljóð, hergmálið af því heiftar- æði, er sleit öll tengsl milli íslenzkra og írskra manna.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.